Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Síða 2

Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Síða 2
2 VESTFIRSKA FRÉTTAB LAÐIÐ Hrannargötu 2 ísafirði True Lies Einn síns liðs er hann fær um að bjarga heim- inum. Spurningin er hvort hann geti einnig bjargað hjónabandinu. Stjórnandi þessarar myndar James Cameron slær hér flest fyrri verk sín út með eftirminnilegum hætti og víst er að þeir eru fáir sem ekki hafa mikið gaman af þessari ein- stöku mynd, enda fer hún án vafa beint á toppinn. TILBOÐ á spólum Oildir frá 1. mars! Taktu eina nýja spnlu ng íáðu eina gamla irítt - Aðeins kr. 400.- TOPP TIU 1. Wolf 2. Getting Even with Dad... 3. Four Weddings and... 4. True Lies 5. Beverly Hills Cop3 6. Airborne 7. Joshua Tree 8. Lightning Jack 9. Maverick 10. Clifford Ráðherra fundar með starfsmönnum Djúpbátsins: Það var bara hreint rugl - segir Sighvatur Björgvinsson um þá hugmynd sem upp kom um að Hf. Djúpbátnum yrði gert skylt við afgreiðslu vegáætlunar að afhenda Fagranesið til Slysavarnaskúla sjómanna Sighvatur á fundi um borö í Fagranesinu. Meö honum á myndinni eru vélstjórarnir Kristján Lyngmo lengst til vinstri og Konráö Bjarnason. Sighvatur Björgvinsson ráð- herra hefur undanfarna daga verið á yfirreið um Vestfjarða- kjördæmi eins og fleiri sem gefið hafa kost á sér á fram- boðslistum í komandi kosning- um. Á sunnudag hélt Sighvatur fund með starfsmönnum Djúp- bátsins í framhaldi af afgreiðslu Alþingis á vegaáætlun sem snertir mjög rekstur ferju á Isa- fjarðardjúpi. Blaðamaður Vestfirska fréttablaðsins hitti ráðherrann að máli á mánu- dagsmorguninn og var Sig- hvatur fyrst spurður að því hvort framtíð Djúpbátsins væri orðin ljós eftir afgreiðslu þingsins á vegáætlun sem snertir mjög samgöngumál í ísafjarðardjúpi. „Nei, framtíð Djúpbátsins er ekki ljós. Það sem ljóst er er það í fyrsta lagi að það er búið að taka ákvörðun um það að nota þessa ferjubryggjupen- inga sem eru inni á fjárlögum til að byggja ferjubryggjur. Þarnaeru um35 til 37 milljónir eftir og fyrir þá peninga er auðvelt að skapa fullnægjandi aðstöðu fyrir Fagranesið í Djúpinu. I öðru lagi er það alveg ljóst að það er ekkert hægt að leggja af rekstur Djúpbáts hér á Isafjarðardjúpi. Ég vil benda á í því sambandi að gengið er út frá því sem vísu að rekstri Akraborgar verði haldið áfram þangað til að jarðgöng eru komin í gagnið undir Hvalfjörðinn. Og fyrst að menn eru búnir að taka þá ákvörðun, hvernig dettur mönnum þá í hug að það sé hægt að hætta rekstri Fagra- nessins í Isafjarðardjúpi um leið og segja má að það sé stungin fyrsta skóflustunga að framkvæmdum við Djúpveg sem eiga eftir að taka tólf ár áður en þeim lýkur. I mínum huga, þá er það sem nú á að gera er í fyrsta lagi að nota þessa ferjubryggjupeninga eins og búið er að ákveða til að byggja aðstöðu fyrir bátinn. I öðru lagi þá er búið að tryggja Djúpbátnum rekstrarfé út allt þetta ár og það á að nota þetta ár til þess að ná samkomulagi við Djúpbátinn hf. um framtíð Fagranessins. Það á að mínu viti að felast í því að nota skipið fyrir ferðamenn til flutninga yfir sumarmánuðina. Það má segja að það sé ekki þörf á reglubundnum ferjusiglingunt um Djúpið yfir hásumarið, en alveg frá hausti til vors á að nýta þetta skip til ferjusiglinga í Djúpið. Slík not fara aldrei saman við það að skipið verði sett undir Slysavarnaskóla sjó- manna. Ut af fyrir sig er það ágætt verkefni og ekkert um það að segja annað en gott eitt, en þá fer það ekkert saman að ætla sér að nota Djúpbátinn undir slfka starfsemi og sem ígripaskip á sumrin og veturna fyrir bílaflutninga, það gengur ekkert upp. Ef skipið yrði tekið til þeirra nota þá eru uppi áform um það að innrétta bílaþilfarið fyrir kennslustofur og svo framvegis. Og það að skrá heimahöfn skipsins áfram á Isafirði, það segir okkur ná- kvæmlega ekki neitt. Svona skip sem væri í þjónustu Slysavarnaskóla sjómanna það væri á hinum ýmsu stöðum í hringinn í kringum landið. Á- höfnin yrði ekki frá ísafirði. Það er bara í mínum huga sem hálfgert blöff að segja það að það skipti einhverju máli hvar heimahöfn skipsins sé. Eins og ég segi, þá líst mér ekkert á það og vil bara slá því frá mér að skipið sé notað þannig. Það á að nota það áfram fyrir ferðamenn yfir sumarið og ferjurekstur á ísafjarðardjúpi frá hausti til vors, þannig á að leysa málið. Og það að ætla að tengja þessa afgreiðslu á vegáætlun saman við það að Djúpbáturinn hf. sem er prívat fyrirtæki eigi að afhenda eign sína til reksturs einhverjum öðrum aðila, er svona svipað og ætla að binda það sem skilyrði fyrir hafnar- framkvæmdum á Isafirði að eigendur Alþýðuhússins tækju það af Dúa og afhentu það t.d. hótelstjóranum til reksturs. Það myndi enginn heilvita maður láta sér detta það í hug að hengja slíkar ákvarðanir saman. Eins og þetta var upp- haflega hugsað, þá er það bara hreint rugl, enda áttuðu þing- menn Vestfirðinga sig á því og breyttu svolítið sínu viðhorfi." - hk. Frá fundinum um borö í Fagranesinu á sunnudaginn. Hér má sjá þau systkinin Guörúnu Dóru og Arnór, þar sem þau eru að hjálpa pabba sínum, Róbert Schmidt, aö draga björg í bú. Róbert veiðir skarfa og endur af kajak sínum á Súgandafiröi þegar vinna liggur niöri og vetrarstillur prýöa fjörðinn. Ekki skemmir fyrir aö skarfurinn er hollur matur og þeim systkinunum þykir hann lika ákaflega góður. heppnað goublot áSuö- ureyni Góublót var haldið í sam- komuhúsinu á Suðureyri laugardagskvöldið 25. febr- úar. Um 160 manns gerðu sér þar glaðan dag við þorramat, dans og aðra skemmtan og þótti gestum blótið heppnast vel. Það voru karlarnir sem sáu um blótið þetta árið en hefð er fyrir því að konur og karlar haldi blótin til skiptis. Arnar Guðmundsson flutti minni kvenna, Birkir Friö- bertsson flutti minni íslands en Arnar Barðason flutti minni Súgandafjarðar. Veislustjóri var Einar Guðn- ason. Dansað var fram á nótt að loknu borðhaldi og skemmt- un, þar sem gert var létt grín að mörgum íbúum staðar- ins, eins og venja er. KYNNINGARFUNDUR Laugardaginn 11. mars í barnaskólanum Súðavík frá kl. 14:00. Sunnudaginn 12. mars á Hótel ísafirði kl. 13 - 16. Upplýsingar í síma 5382 og 3653 RC húsin eru íslensk smíði og þekkt fyrir fegurð, smekklega hönnun, mikil gæði og óvenjugóða einangrun. Húsin eru ekki einingahús og þau eru samþykkt af Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins. Stuttur afgreiðslu- frestur. Útborgun eftir samkomulagi. Hringdu og við send- um þér upplýsingar. Íslensk-Skandinavíska hf. - Ármúla 15 - Sími 586 5550.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.