Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Qupperneq 3

Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Qupperneq 3
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐH) 3 Mokafli á línuna hjá Suðureyr- arbátum Guðmundur Svavarsson, skipstjóri á Rakel Maríu, og sonur hans, Elías Guðmundsson, landa 5,3 tonnum eftir daginn á 150 lóðir. Guðmundur Karvel Pálsson, skipstjóri á Önnu Borg, landar 4,7 tonnum eftir daginn ásamt Sigurði Jónssyni, sem ekki sést á myndinni. Myndir: Róbert Schmidt. Mokafli hefur verið hjá smábátum undanfarið ef þeir hafa komist á sjó, en lítið hefur gefið á sjó vegna mik- illar ótíðar. Þessa fáu sjódaga hafa margir fengið mokafla, og má þar nefna Önnu Borg, Rakel Maríu og Ingimar Magnússon. Þessir bátar ásamt fleirum fisk- uðu mjög vel tvo daga í röð. Fyrri daginn kom Rakel María með 5,3 tonn á 150 lóðir og 5 tonn næsta dag á 132 lóðir. Anna Borg var með 4,7 tonn fyrri daginn og rúmlega 3 tonn næsta dag á 125 lóðir. Uppistaðan er þorskur, en steinbíturinn er lítið farinn að gera vart við sig. Fiskurinn er stór en annars nokkuð blandaður. Þessa tvo sjódaga sem bátarnir veiddu vel komu á land um 70-80 tonn af fiski af 12-15 smábát- um. Nú hefur verið bræla á aðra viku og ekkert lát á lægðum sem ganga yfir landið. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Ásgeirsdóttur, Aðalstræti 17, ísafirði. Margrét Kjartansdóttir, Rannveig Kjartansdóttir, Guðmundur E. Kjartansson, Bryndís Jónasdóttir, Asgerður Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Fiskistofnar og umhverfið - eftir Jónu Valgerði Kristjánsdóttur Um það er ekki deilt að við ís- lendingar höfum um aldir lifað á því sem sjórinn hefur gefið okkur. Líf- ríki hafsins og sjávarbotninn er dýr- mætasta auðlind okkar og á þeirri auðlind byggist efnahagsleg tilvera okkar. Við eigum því að umgangast þessa auðlind af ábyrgð og á þann hátt að lífríkið beri ekki skaða af. Margt er enn óljóst í vistkerfi hafsins. Engar haldbærar skýringar eru á því hvers vegna klak misferst ár eftir ár. Ekki er tekið nægilegt tillit til allra þátta lífrfldsins við á- kvörðun á heildarafla einstakra fiskistofna. Allt í náttúrunni er hvað öðru háð og jafnvægi getur raskast vegna friðunar eða ofveiði einstakra tegunda. Nýjar rannsóknir Norð- manna sýna að hvalir og selir éta þúsundir tonna af þorski og þorskseiðum og hafa þannig mikil áhrif á stofnstærðina. Þá hafa breyttir neysluhættir þjóðarinnar valdið því að sjófugli fjölgar mjög, en hann lifir einnig á sntáseiðum og lirfum í sjónum. UMHVERFI OG VEÐURFAR En veðurfarið tekur líka sífelld- um breytingum og hitastigið t sjón- um er ekki það sama frá ári til árs. Allt þetta getur raskað verulega á- ætlaðri stofnstærð fisktegunda. Veiðimálastofnun hefur sett fram athyglisverðar tilgátur um laxa- göngur á Norðurlandi sem hún tengir laxagöngum í ám á Kola- skaga. Mismunandi er milli ára hvað skilar sér af seiðum sem sleppt er í ámar og virðist það ekki í beinu sambandi við seiðasleppingu, held- ur haft hitastig og umhverfisþættir afgerandi áhrif á stofninn. Þessar sveiflur í laxastofninum koma síðan fram 2 árum seinna í ám á Norð- austurlandi. Tengir Veiðimálastofn- Jóna Valgerður Kristjánsdóttir. un það þeim tíma sem það tekur hafstrauma að fara á milli þessara staða. Þeitrí spurningu var varpað fram hvort þetta gæti átt við um þorskstofninn líka. Ég var viðstödd á þeim fundi fyrir rúmu ári síðan, þar sem Veiðimálastofnun kynnti niðurstöður sínar, sem mér finnst allrar athygli verðar. En það er eins og ekki megi ræða þorskafla á ís- landsmiðum nema eftir forskrift frá Hafrannsóknarstofnun. ER AUKIN ÞORSKGENGD Á MIÐUNUM? Ekki ætla ég sem leikmaður að fullyrða neitt um áreiðanleika rann- sókna, en mér finnst eðlilegt að skoða með opnum huga allt nýtt sem kemur í Ijós. Vissulega gefa rannsóknir Veiðimálastofnunar til kynna að þorskstofninn í Barents- hafi sé í uppsveiflu 2 árum áður en það gerist hér. Ef svo færi væri það næstum of gott til að vera satt. En þeir tengja stærð fiskistofna meira öllum umhverfisþáttum, þ.e. sam- spili hafstrauma, veðurfars og há- loftastrauma heldur en því að menn geti gefið sér stofnstærð og upp- skeru fram í tímann skv. mælingum sem gerðar eru einu sinni til tvisvar á ári. Hljótum við ekki að álykta að lífríkið í sjónum sé háð hitastigi og straumum, rétt eins og grasspretta er háð loftslagi, vindátt og úrkornu? Og vöxtur villtra dýra á landi er háður því sem jörðin gefur. GRUNNSJÁVARMIÐ OG DJÚPSJÁVARMIÐ Núgildandi fiskveiðistjómun hefur ekki skilað uppbyggingu fiskistofna né dregið úr sókninni eða minnkað fiskiskipafiotann. Með til- liti til þess þarf að endurmeta stjórnunaraðferðimar með langtíma sjónarmið í huga. Kvennalistinn vill að fiskimið- unum sé skipt upp í grunnsjávarmið og djúpsjávarmið og grunnsjávar- miðin nýtt af íbúum nærliggjandi svæða. Skip yfir ákveðnum stærð- armörkum fái ekki leyfi til veiða á grunnsjávarmiðum. Við viljum koma á fót samstarfsnefnd sjó- manna og fiskifræðinga, útgerðar- manna og fiskvinnslufólks sem geri tillögur um stjórn veiðanna á grunnsjávarmiðum, áætlað ntagn og veiðarfæri. Einnig þarf að gera nýt- ingaráætlun urn djúpsjávarmiðin, og þar séu að veiðum stærri skip. Kvennalistinn lagði fram hug- myndir fyrir 8 árum, um að tengja veiðiheimildir byggðarlögum, en við vildum rjúfa þau tengsl sem verið var að festa með núgildandi fiskveiðistjómun að úthluta kvótan- unt til skipa. Það hefur nú sýnt sig að með því að binda veiðiheimild- irnar skipum hafa byggðirnar horft á eftir skipunum sigla í burt með kvótann. Eftir sitja íbúarnir með at- vinuleysið sem fylgir í kjölfarið, þegar rétturinn til veiða sem fylgt hefur búsetu öldum saman er tekinn af fólkinu. FULLVINNSLA OG NÝJAR TEGUNDIR En hvað sem líður stærð þorsk- stofnsins og annarra tegunda, þá em enn miklir möguleikar ónýttir í vinnslu sjávarafurða sem aukið gætu atvinnu og skapað gjaldeyris- tekjur. Auka þarf rannsóknir á van- nýttum tegundum og leita nýrra markaða. Það liafa orðið straum- hvörf á síðustu árum í betri nýtingu og fullvinnslu ýmissa fisktegunda og botndýra. Og við Vestfirðingar verðunt að taka þátt í þeirri þróun og hasla okkur völl í nýtingu og mark- aðssetningu nýrra fullunninna vara úr sjávarfangi. Þjóðvaki opn- ar kosninga- skrifstofu á ísafirði Þjóðvaki á Vestfjörðum hefur opnað kosningaskrif- stofu sína að Austurvegi 2 (Kaupfélagshúsinu) á annarn hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 14.00-18.00 og um helgar kl. 14.00-19.00. Sími skrifstofunnar er 3180 og kosningastjóri er Laufey Jónsdóttir. Kosningaskrifstofur opnaðar Pétur Bjarnason fræðslustjóri ræðir við gesti. Frá vinstri: Jóhanna Ásgeirsdóttir kennari; eiginmaður hennar, Pétur Guðmundsson myndlistarmaður; og Már Óskarsson sjómaður. í hinum rúmgóðu húsakynnum M-listans er jafnframt sýning á málverkum Péturs Guðmundssonar. Kvennalistakonur og gestir syngja „Hann á afmæli í dag“ fyrir útsendara Vestfirska fréttablaðsins sl. sunnudag á meðan hann tekur myndina. Jóna Valgerður er lengst til vinstri á myndinni. Vestfirska fréttablaðinu var um helgina boðið á tvær kosn- ingaskrifstofur sem þá var ver- ið að opna á Isafirði. Á laugar- daginn opnaði M-listinn (Vestfjarðalisti Péturs Bjarna- sonar) skrifstofu að Fjarðar- stræti 22 og á sunnudaginn opnaði V-listinn (Kvennalist- inn) skrifstofu í húsi Kaupfé- lags ísfirðinga, 2. hæð. Á báð- um stöðum var bakkelsi á borðum og létt yfir fólki. Myndirnar sem hér fylgja voru teknar þá. Isafjarðarkaupstaður Forkaupsréttur Bæjarsjóður ísafjarðar auglýsir eftir kaupendum að m/b Nóa ÍS- 86, sem bæjarsjóði hefur verið boðið að neyta forkaupsréttar að, sbr. lög um fisk- veiðar. Báturinn er lítill fiskibátur úr trefja- plasti (Færeyingur) og fylgir honum leyfi til grásleppuveiða svo og 0,000283% aflahlutdeild í þorski. Enn- fremur fylgir bátnum eftirtalið afla- mark innan ársins: Þorskur 11.673 kg, ýsa 1.358 kg, ufsi 766 kg og skarkoli 2.207 kg. Bæjarstjónnn á ísafirði. Kvenfélagið Hlíf 85 ára Kvenfélagið Hlíf á ísafirði varð 85 ára sl. mánudag, 6. mars. Fé- lagið var stofnað árið 1910 með það í huga að gleðja og styrkja aldraða og sjúka Á þeim tíma þekktist ekki félagsleg þjónusta í bænum og kom því í hlut félagsins að vinna að þeim málum. Konur tóku sig saman að elda mat fyrir fátæka og sjúka nokkrum sinnum á ári og færa þeim hann heim. Frá þeim tíma hafa Hlífarsamsætin verið haldin árlega. Dagvistunar- og öldrunarmál voru efst á baugi hjá félaginu fyrstu árin, en nú síðustu hálfa öldina hafa öldrunarmálin verið helstu viðfangsefnin. Félagið hef- ur gengist fyrir fjáröflun fyrir ýmis stórverkefni fyrir bæinn og keypt tæki fyrir sjúkrahúsið og elliheim- ilið og nú fyrir þjónustudeild Hlíf- ar. Gjafir hafa einnig verið gefnar til kirkjunnar. Hlífarkonur minntust afmælis síns með fjölmennu afmælissam- sæti með eldri borgurum í Félags- heimilinu í Hnífsdal sl. sunnudag.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.