Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Page 4
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
I FRÉTTABLAÐIÐ |
Vestfirska fréttablaðið er vikublað, óháð stjórnmálaflokkum.
Blaðið kemur út síðdegis á miðvikudögum og fæst bæði í lausasölu
og áskrift. Verð kr. 170 m/vsk.
Ritstjórn og auglýsingar: Aðalstræti 35, ísafirði, sími (94)-4011,
fax (94J-5225. Ef enginn er við á skrifstofunni er reynandi að hringja
í síma (94)-3223 (ísprent) .
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: HlynurÞórMagnússon.Túngötu 17,
ísafirði, hs. (94)-4446.
Útgefandi: Vestfirska útgáfufélagið hf., Aðalstræti 35, ísafirði.
Prentvinnsla: ísprent hf., Aðalstræti 35, (safirði, sími (94)-3223.
LEIÐARI
Hvað skal kjósa?
Kosningabarátta íslensku stjórnmálaflokkanna
er nú að komast á skrið, enda stutt til kosninga.
Sá háttur hefur gjarnan verið hafður á vítt og breitt
um landið að velja á lista flokkanna fólk sem
þekkir sitt heimafólk og staðhætti í sínum kjör-
dæmum.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að hugs-
anagangur þeirra sem leiða eiga pólitíska baráttu
Vestfirðinga sé ekki í takt við það fólk sem þeir
eiga að berjast fyrir.
Sköpun atvinnutækifæra í fjórðungnum skiptir
höfuðmáli fyrir áframhaldandi byggð á svæðinu.
Öll röskun á atvinnustarfsemi og tilhneiging til að
flytja störf að ástæðulausu suður á mölina við
Faxaflóa er alvarlegur hlutur. Þessu verða for-
ystumenn stjórnmálaflokka á Vestfjörðum að átta
sig á, að öðrum kosti hafa Vestfirðingar ekkert
með þá að gera.
Þjónustufyrirtæki í iðnaði á Vestfjörðum hafa í
gegnum tíðina lagt metnað sinn í að koma upp
dýrum tækjabúnaði, þar á meðal til að sinna út-
gáfustarfsemi vestfirskra stjórnmálamanna. Ef
þessir sömu pólitíkusar telja sig ekki lengur þurfa
neitt á vestfirsku vinnuafli og verkþekkingu að
halda, er þá ekki um leið verið að segja vest-
firskum kjósendum að éta það sem úti frýs?
Hörður Kristjánsson.
fpysfltogara?
- sama skip og Vestmannaeyingar
voru búnir að undirrita samninga
um kaup á með fyrirvara -
Forráðamenn Norðurtang-
ans á Isafirði, þeir Jón Páll
Halldórsson, Eggert Jónsson
og Pétur Jónsson vélstjóri,
ásamt Skarphéðni Gíslasyni
skipstjóra og Frímanni Sturlu-
syni skipatæknifræðingi, hafa
að undanförnu verið að skoða
frystitogara í Frakklandi með
hugsanleg kaup í huga.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hafa Vestmannaeyingar
verið þar ytra í sömu erinda-
gjörðum og undirrituðu kaup-
samning fyrir Vinnslustöðina á
frystitogara nú á dögunum með
fyrirvara. Frakkar munu nú
hafa rift þeim samningi og
hyggjast þess í stað selja
Norðurtanganum skipið. Þarna
mun vera um að ræða frystiskip
sem er nokkru stærra en Guð-
bjartur.
- hk.
ISAFJARÐARLEK)
VÖRUFLUTNINGAR
Aðalstræti 7 • ísafirð,
S 94-4107
S 985-31830
S 985-25342
Tilvísanakerfi hefur veriö við lýði á landsbyggðinni, en ekki í Reykjavílc
Sérfræðingar eru með
aðgerðum sínum að taka
ákveðinn rétt af sjúklingum
- segir Sighvatur Rjörgvinsson heilbrigöisráöherra og segir að veriö sé
að undirbúa aukna sérfræðiaðstoð inni á göngudeildum sjúkrahúsanna til
að svara aðgerðum sérfræðinganna
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra.
Fjölmargir sérfræðingar í
læknastétt hafa sagt sig úr lög-
um við Tryggingastofnun rík-
isins í framhaldi af ákvörðun
heilbrigðisráðherra að koma á
svokölluðu tilvísanakerfi. Til-
vísanakerfinu er ætlað að spara
ríkinu umtalsverðar upphæðir
og koma í veg fyrir að sér-
fræðingar í vinnu hjá ríkinu
vísi sjúklingum á einkastofur
sínar þar sem þeir rukki ríkið
síðan um háar upphæðir vegna
sérfræðikostnaðar. Fjölmargir
íbúar á landsbyggðinni sem
leita þurfa til sérfræðinga í
Reykjavík eru nú uggandi um
sinn hag og telja að vegna
þessarar deilu sé verið að taka
af sjúklingum rétt til endur-
greiðslu sérfræðikostnaðar. Þá
hafa heyrst gagnrýnisraddir úr
röðum heimilislækna sem telja
að aðgerðir sérfræðinga stjórn-
ist af eiginhagsmunastefnu á-
kveðins hóps innan sérfræð-
inga í læknastétt.
I samtali við Vestfirska
fréttablaðið síðastliðinn mánu-
dag gat Sighvatur Björgvins-
son heilbrigðisráðherra þess að
tilvísanakerfi hafi verið í gildi
á landsbyggðinna. Sagði hann
að reglan væri sú að úti á landi
færi fólk til heimilislæknis sem
tæki ákvörðun um það í sam-
ráði við fólkið sjálft hvort það
færi suður til sérfræðinga.
Sagði hann að í mörgum til-
vikum hjálpaði heimilislæknir-
inn fólkinu við að fá tíma sem
það gæti síðan gengið að sem
vísum þegar það kæmi til
Reykjavíkur. Sagði Sighvatur
að þetta kerfi hafi verið í gildi
úti á landi, en í Reykjavík væri
annað uppi á teningnum. Sagði
hann að læknir sem kæmi með
öll tilskilin réttindi sem sér-
fræðingur til íslands, hann gæti
með einu bréfi tilkynnt Trygg-
ingastofnun að nú ætli hann a
opna stofu og þar með farið að
skrifa reikninga á ríkið fyrir
þjónustu við sjúklinga sína.
Sagði Sighvatur að sérfræðing-
urinn réði því sjálfur hvernig
hann ynni það verk og þetta
væri hvergi til í löndunum í
nágrenni við okkur. Nefndi
Sighvatur sem dæmi að ef það
kæmi velmetinn stærðfræðing-
ur úr háskólanámi erlendis, þá
gæti hann ekki með einföldu
bréfi til Háskóla íslands tlkynnt
að hann ætli að opna kennslu-
stofu í stærðfræði og þar með
farið að skrifa reikninga á ríkið.
Slíkt sagði Sighvatur að gengi
ekki í skólakerfinu og ekki
heldur í heilbrigðiskerfinu.
Sagði Sighvatur að fólk sem
þyrfti að fara til sjúkraþjálfara
gæti ekki gert það á ríkisins
kostnað nema með tilvísun.
Fólk gæti ekki heldur fengið lyf
á kostnað ríkisins nema að
læknir skrifi lyfseðil. Sagði
Sighvatur að það kerfi sem
verið hafi við lýði í Reykjavík
ætti sér enga hliðstæðu í heil-
brigðiskerfinu eða öðrum op-
inberum rekstri.
Sú ákvörðun sérfræðinga í
Reykjavík að segja sig úr lög-
um við Tryggingastofnun sagði
Sighvatur að jafngilti verkfalli.
Sagði hann að menn þyrftu
ekkert að fara í grafgötur með
það af hverju sérfræðingar
væru að þessu. Sighvatur sagði
að menn væru ekki að þessu til
að tryggja hag sjúklinga sinna.
Sagði hann þessa menn líta svo
á að tilvísanakerfið gæti skert
tekjumöguleika þeirra sjálfra,
þessvegna gripu menn til þess-
ara ráðstafana. Sagði Sighvatur
að um 40% sérfræðinga hafi
ekki sagt sig af samningi við
ríkið og þeir væru úr flestöllum
greinum. Þá sagði hann að á
göngudeildum sjúkrahúsanna
störfuðu sérfæðingar á fullum
launum og þangað gæti fólk
leitað. Sagði Sighvatur að verið
væri að undirbúa það að auka
þá starfsemi til mótvægis við
aðgerðir sérfræðinganna. Þar
getur hinsvegar komið upp sú
spuming hvort sérfræðingar
muni líka neita að sinna sjúk-
lingum á göngudeildum þar
sem þeir starfa á fullum launum
og þá með hvaða rökum þeir
muni neita slíkri þjónustu.
Sérfræðingar eru að taka rétt
af fólki með því að neita að
vinna fyrir heilbrigðisþjónust-
una, sagði Sighvatur. Hann gat
þess að flestallir þessir sér-
fræðingar hefðu lært og starfað
í þeim löndum þar sem tilvís-
unarkerfi er við lýði og engar
athugasemdir gert við það.
Sagði hann sérfræðinga hafa
verið reiðubúna til að starfa
fyrir norska ríkið á þessum
grundvelli, danska rfkið líka,
Kanadamenn og fjölmörg
Evrópuríki. Sagði Sighvaturað
þeir vildu bara ekki starfa á
þessum sama grundvelli fyrir
sína eigin þjóð og hann spyr:
„Af hverju vilja þeir það
ekki?“
- hk.
íslandsmótið í bridge fyrir
yngri en 26 ára:
Rapr Torii 09 Hlyn-
ur Tryggvi í 2. sæti
íslandsmótið í bridge fyrir
spilara yngri en 26 ára var
haldið í Reykjavík helgina 24.-
26. febrúar. ísfirðingarnir
Ragnar Torfi Jónasson og
Hlynur Tr. Magnússon kepptu
á mótinu og voru saman í sveit
ásamt tveimur ungum Reyk-
víkingum. Þeir spiluðu þar
undir merkinu Póls-
rafeindavörur og náðu frábær-
um árangri — sveit þeirra fé-
laga hafnaði í 2. sæti eftir
barning á toppnum. Samhliða
sveitakeppninni var reiknaður
út árangur einstakra para og þar
urðu þeir Ragnar Torfi og
Hlynur í 2. sæti.
Núna um næstu helgi munu
þeir Ragnar Torfi og Hlynur á-
samt sínum gömlu félögum
Halldóri Sigurðarsyni og
Tryggva Ingasyni taka þátt í
styrktarmóti yngri spilara og
væntanlega spila þar undir
nierkjum Togaraútgerðar Isa-
fjarðar eða rækjutogarans
Skutuls. Á því móti verða pen-
ingaverðlaun fyrir efstu sætin.
SÍMI OKKAR ER 688888
V.
GEYSIR^,
PU TEKUH vto bIlnum A flugvellinum pegar »0 KEMUR OG
SKJLUB HANN EFTin A SAMA STAO PEGAH Pu FEHO.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns og föður okkar,
Björns Guðmundssonar,
Brunngötii 14,
ísafirði.
Kristjana Jónasdóttir,
Birna Björnsdóttir, Jónas Björnsson.