Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Qupperneq 8
VESTFIRSKA
8
Miðvikudagur 8. mars 1995
---- | PBFTT4BLAÐIÐ
vantað á að það hafi staðið við
hlutafjárskuldbindingar sínar.
Þetta bendir til að fleiri aðilar
en Þróunarfélagið hafi ekki
staðið við skuldbindingar sínar.
Þetta gefur tæplega til kynna að
Þróunarfélagið hafi verið að
selja hlutabréf sín á frjálsum
markaði í áföngum.
Árið 1993 fer töluvert að
bera á áhyggjum forráðamanna
Kögunar um framtíð félagsins.
Þannig segir Gunnlaugur Sig-
mundsson í viðtali við Morg-
unblaðið 12. maí: „Við höfum
miklar áhyggjur af niðurskurði,
ekki síst ef Bandaríkjamenn
taka flugvélarnar af Keflavík-
urflugvelli vegna þess hvað
stjómun þeirra er stór hluti af
kerfinu."
I upplýsingum Talnakönn-
unar er sterklega gefið í skyn að
þessi óvissa um framtíð Varn-
arliðsins á Keflavíkurflutvelli
hafi orðið til þess að Þróunar-
félagið ákvað að selja Kögun
og Eftirlaunasjóði starfsmanna
meiri hluta sinn í félaginu.
Kögun keypti 4,1 milljón að
nafnvirði og Eftirlaunasjóður-
inn þá væntanlega nafnvirði 1,7
milljóna. á genginu 4.
Á aðalfundi félagsins, 28.
febrúar 1994, var síðan ákveðið
að lækka þetta hlutafé sem
Kögun hafði eignast í sjálfu sér
um 2,5 milljónir. „Erfitt var
talið að selja allt hlutaféð á al-
mennum markaði vegna óvissu
um framtíðarhorfur félagsins
og því ákveðið að lækka það,“
segir í upplýsingum Talna-
könnunar. Hlutafé að nafnvirði
1,6 milljónir var ákveðið að
selja á almennum markaði.
Það er svo lokaatriðið í þessu
ferli að þann 11. ágúst 1994
barst Hlutafélagaskrá tilkynn-
ing frá stjórn Kögunar hf.að sú
ákvörðun hefði verið tekin á
fundi þann 15. júlí sama ár að
lækka hlutaféð um 10 milljónir
og að sú lækkun hefði verið
færð á móti eigin hlutabréfum
sem félagið hafði eignast
(hvernig hafði Kögun eignast
þessi bréf og hversu lengi hafði
félagið átt þau?).
Þar með hafði hlutaféð verið
lækkað í 7,5 milljónir króna úr
því sem upphaflega áttu að hafa
verið 20 milljónir króna. Af
14,2 milljóna hlut Þróunarfé-
lagsins virðast aldrei hafa verið
seldar nema í mesta lagi 1,6
milljón krónur á almennum
markaði!
Stærsti einstaki hluthafinn er
nú Eftirlaunasjóður starfs-
manna með 22,7% hlutafjár.
Ekki virðist hægt að fá upplýs-
ingar um nöfn nýrra hluthafa í
Kögun, hvað þá hlutafjáreign
þeirra. Gunnlaugur Sigmunds-
son vísaði aðspurður á Talna-
könnun. Þar fundust þessar
upplýsingar ekki.
En þótt ekki liggi fyrir nánari
upplýsingar um aðra hluthafa í
Kögun og dreifingu hlutafjár þá
er óhætt að fullyrða að því fari
fjarri að hægt sé að tala um
fyrirtækið sem almennings-
hlutafélag í þeim skilningi sem
almennt er lagður í það orð.
Ovissa um framtíðar-
horfur?
Það er umhugsunarvert
hvers vegna hlutabréf sem
keypt eru á genginu 4 eru af-
skrifuð. Ástæðan er sögð hafa
verið óvissa um framtíðarhorf-
ur félagsins. Á síðasta ári voru
tekjur félagsins meiri en
nokkru sinni fyrr, 160 milljónir
króna.
Þessi óvissa var aldrei fyrir
hendi. lón E. Böðvarsson, for-
stjóri Ratsjárstofnunar, sá á-
stæðu til að gera athugasemdir
við ummæli Gunnlaugs Sig-
mundssonar í Morgunblaðinu.
12. maí 1993 sem vitnað er f hér
að framan.
í Morgunblaðinu 14. maí
bendir Jón á að Kögun sé und-
irverktaki Ratsjárstofnunar og
að fyrri ummæli hans um að
engin teikn séu á lofti um sam-
drátt hjá Ratsjárstofnun eigi
einnig við um Kögun hf. „Það
eru engin merki þess nú að
verkefni Kögunar hf. dragist
saman vegna hugsanlegs nið-
urskurðar á Keflavíkurflug-
velli,“ sagði Jón E. Böðvars-
son.
Friðþór Eydal, upplýsingafull-
trúi Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, segir einnig að aldrei
hafi staðið til að hætta við gerð
eða rekstur hugbúnaðar íslenska
loftvamakerfisins.
Niðurlag
Af þessari samantekt mega
menn sjá að það er harðdrægur
athafnamaður sem framsóknar-
menn tefla fram hér á Vestfjörð-
um, en ekki gjaldþrota bjargvættir
eða vesæll barnakennari.
Þótt einhverjar umræður hafi
farið fram á dögunum um meint
STASI-tengsl ungra stúdenta í
Austur-Þýskalandi fyrir 30 árum
fara menn vonattdi ekki að rugla
slíku saman við launagreiðslur
Bandaríkjahers til þessa verðandi
þingmanns Framsóknarflokksins.
Síðast en ekki síst ættu Vest-
firðingar að hafa í huga að með
því að kjósa Framsóknarflokkinn
á Vestfjörðum leggja þeir sitt af
mörkum til að jafna kosningarétt-
inn. Þeir kjósa jú um Ieið þing-
mann fyrir eitt helsta þéttbýlis-
svæðið í Reykjaneskjördæmi.
Samantekt: Vestfirska/vg.
Hefur setið í stjórn 18 fyrirtækja
Töluverðar umræður hafa farið fram að undanfömu um
eignarhald á fyrirtækjum og innbyrðis tengsl fyrirtækja og
jafnvel einstaklinga. Þar hafa menn dregið í efa siðferðislegt
réttmæti þess að fáir einstaklingar sitji í stjórnum margra fyrir-
tækja.
Þróunarfélag íslands hf. var upphaflega í eigu ríkisins að
verulegum hluta og opinberra sjóða, Iðnþróunarsjóðs, Iðnlána-
sjóðs og Fiskveiðasjóðs. Tilgangur þess var að lána fé í á-
hætturekstur og því mikilvægt að það nyti trausts en yrði ekki
sakað um óeðlileg hagsmunatengsl við samkeppnisaðila hugs-
anlegs lánaumsækjenda.
Engu að síður tók félagið fljótlega að leggja megináherslu á
hlutabréfakaup í ýmsum fyrirtækjum, ekki síst á tæknisviði.
1990 þegar stjóm félagsins ákvað að hætta alveg lánastarfsemi
átti það þegar hluti í 14 fyrirtækjum. Árið 1992 átti Þróunarfé-
lagið í meira en 20 fyrirtækjum.
Það fór því ekki hjá því að Gunnlaugur tæki sæti í stjórnum
margra þessara fyrirtækja. Hann mun reyndar þegar hafa setið
í stjómum Marels hf. og Hlaðbæjar Colas þegar Þróunarfélagið
ákvað að kaupa 43% hlut í Marel 1987 og 51 % hlutafjár (ásamt
Hagvirki) í Hlaðbæ Colas 1989.
Árið 1990 sáu forsvarsmenn nokkurra húsgagnaframleiðenda
ástæðu til að gagnrýna aðildarmáta Þróunarfélagsins og stjórn-
arsetu Gunnlaugs í GKS sem stofnað var við samruna Kristjáns
Siggeirssonar hf. og Gamla kompanísins hf.
1 viðtali við Morgunblaðið 10. febrúar sagðist Gunnlaugur
ekki sjá neitt athugavert við það að hann sæti í stjórn GKS.
Hagsmunir Þróunarfélagsins í GKS væru litlir, „þó hins vegar
ég hafi farið að vinna að framgangi þess eftir að ég kom þar í
stjórn."
Gunnlaugur hefur setið í stjóm eftirfarandi átján fyrirtækja:
Skipaútgerð ríkisins 1977 - 1982
Fríhöfnin í Keflavík 1978 - 1982
Þömngavinnslan áReykhólum 1979 - 1982
Félagsstofnun stúdenta 1978 - 1982
Marel hf. frá 1979
GKS frá 1990
Iceland Crown í Hamborg 1989 - 1991
Hlaðbær Colas frá 1988 (stjómarformaður)
Kögun hf. 1988 - 1994
Fjárfestingarfélagið Silfurberg frá 1988
Islenska eignarhaldsfélagið frá 1990
Yleining hf. á Flúðum frá 1991 (stjómarformaður)
ísteka hf„ líftæknifyrirtæki. frá 1990
Hagþróun hf. frá 1990
Tölvusamskipti frá 1988
Vakahf.frá 1990
Gagnalind hf„ tölvufyrirtæki, frá 1993 (stjórnarformaður)
Borgey hf„ útgerðarfyrirtæki, Höfn í Homafirði (fulltrúi
Landsbankans)
Samkvæmt prófkjörsbæklingi Gunnlaugs M. Sigmundssonar
situr hann nú aðeins í stjórnum Hlaðbæjar Colas og Borgeyjar.
Veiði í Langadalsá
Til sölu eru veiðileyfi í Langadalsá í
ísafjarðardjúpi.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar
Magnússon á Hamri í síma 95- 13136.
Veiðifélag Langadalsár.
ORKUBÚ
VESTFJARÐA
Laust starf
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða
starfsmann í starf ritara á rekstrar-
deild að Stakkanesi 1 á ísafirði. Um er
að ræða hálft starf og verður ráðið í það
tímabundið. Laun verða samkvæmt
70. lfl. Fos-Vest.
Umsóknarfrestur er til 17. mars nk.
Upplýsingar gefa Jakob Ólafsson og
Ragnar Emilsson í síma 3211.
||||y Sýslumaðurinn
^fjfftf á Patreksfirði
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
vegna kosninga til Alþingis, sem fram
eiga að fara laugardaginn 8. apríl
1995, er hafin hjá sýslumanninum á
Patreksfirði og hreppstjórum í um-
dæminu skv. XI. kafla laga nr. 80/1987
um kosningar til Alþingis með síðari
breytingum.
Kosið verður á skrifstofutíma embætt-
isins, mánudaga til föstudaga frá kl.
10.00 til 15.00, og á kjördag, 8. apríl,
frá kl. 13.00 til 16.00.
Þeir sem kjósa þurfa utan kjörfundar
eru hvattir til að gera það sem fyrst til
að tryggja að atkvæði komist til skila
á réttum tíma.
Kjósandi sem vill greiða atkvæði utan
kjörfundar skal gera kjörstjóra grein
fyrir sér með því að framvísa fullnægj-
andi skilríkjum.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
1. mars 1995
Þórólfur Halldórsson
Skilagjalds-
skyldar
umbúðir:
Mót-
takan
verður í
Bræðra
tungu
Svæðisskrifstofa mál-
efna fatlaðra hefur tekið
að sér móttöku á skila-
gjaldsskyldum umbúð-
um á Isafirði. Móttakan
verður ( bílskúrnum í
Bræðratungu og verður
opin sem hér segir:
Mánudagakl. 17-20
Þriðjudaga kl. 17-19
Föstudagakl. 18-21
Laugardaga kl. 14-16
Fyrsti dagurinn sem
móttakan verður opin
er mánudagurinn 13.
mars kl. 17-20.
Skatt-
framtöl
Uppgjör
Tek að mér skatt-
framtöl og uppgjör
fyir einstaldinga.
í/önduð vinna.
Ægir Páll
Friðbertsson
Sími 4645
HJA OKKUR FÆKOU NYJUSTU MYNUBONDIN
' \ r<rri.Ti *ti<
Hafnarstræti 11 • ísafirði Sími 3339
A AÐEINS KR. 350