Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Page 9

Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Page 9
í\ mmm L 1 FRÉTTABLAÐIÐ 1 Miðvikudagur 8. mars 1995 Framboð til Alþingis Framboðslistum vegna kosninga til Al- þingis 8. apríl 1995 í Vestfjarðakjör- dæmi ber að skila til formanns yfirkjör- stjórnar að Hafnargötu 41, Bolungarvík, eigi síðar en kl. 12 á hádegi föstudaginn 24. mars 1995. Gæta skal þess um öll umboð, að til- greina skýrlega fullt nafn frambjóð- anda, kennitölu hans, stöðu og heimili. Framboðslista skal fylgja skrifleg yfir- lýsing allra þeirra, sem á listanum eru, að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við list- ann frá kjósendum í kjördæminu og skal fjöldi meðmælenda vera að lágmarki 100 og að hámarki 150. Yfirkjörstjórnin í Vestfjarðakjördæmi. Björgvin Bjarnason, formaður Ágúst H. Pétursson Birkir H. Friðbertsson Björn Teitsson Jens Kristmannsson Fegurðarsamkeppni Vestfjarða 1995: Dronningin krýnd í Krúsinni 1. apríl Fegurðardrottning Vest- fjarða 1995 verður krýnd í Veitingahúsinu Krúsinni laug- ardaginn 1. apríl nk. Þetta verður í sjötta sinn sem feg- urðardrottning Vestfjarða er krýnd og mun hún jafnframt titli sínum vinna sér rétt til þátttöku í Fegurðarsamkeppni Islands, sem haldin verður á Hótel Islandi föstudaginn 26. maí. Nú þegar eru aðstandendum keppninnar farnar að berast á- bendingar um glæsilegar vest- firskar stúlkur. Fleiri ábend- ingar eru vel þegnar, sérstaklega af fjörðunum í kringum Isafjörð. Aðstandend- ur keppninnar að þessu sinni eru þau Sigríður Ragna Jó- hannsdóttir, sími 94-5445, og veitingahjónin í Krúsinni, þau Dúi og Gróa. Sigríður Ragna stjórnar keppninni í ár Dagný Björk Pjetursdóttir danskennari, sem séð hefur um keppnina frá upphafi (1987) á- kvað að taka sér frí þessa keppni þar sem hún hefur átt við veikindi að stríða í vetur. Sigríður Ragna er því fram- kvæmdastjóri keppninnar í ár. Fyrirtæki á Isafirði hafa ver- ið ötul að leggja keppninni lið og hafa nokkur þegar tilkynnt sig: Studio Dan sér um líkams- rækt og ljósaböð fyrir stúik- urnar. Hárgreiðslustofa Siggu Þrastar sér um undirbúning hársins og greiðslur keppenda á krýningarkvöldinu. Snyrtivöruverslunin Krisma (Svana) sér um undirbúning húðarinnar, svo og um snyrt- ingu á krýningarkvöldinu. Gullauga (Dýrfinna) hefur alltaf gefið fegurðardrottningu Vestfjarða sérsmíðaðan skart- grip ásamt því að sérsmíða fyrir hana muni til að bera á Feg- urðarsamkeppni Islands. Hafið samband sem allra fyrst... Þau fyrirtæki sem vilja leggja keppninni lið eru vin- samlegast beðin að hafa sam- band í síma 5445 sem allra fyrst, og einnig þeir sem vilja koma á framfæri ábendingum um stúlkur. Þær verða að vera eldri en 17 ára og helst hærri en 1,70. ...því fyrirvarinn er stuttur Að lokum vilja aðstandendur keppninnar vekja athygli á því, að það er stuttur fyrirvari á keppninni í ár. Margar ástæður hafa valdið því hversu seint er farið af stað, „en við hvetjum alla sem vilja leggja okkur lið eða eru með ábendingar að gera það sem allra fyrst, því að laugardaginn 1. apríl verður örugglega mikið um dýrðir í Krúsinni“, segir Dagný Björk danskennari að lokum í frétta- tilkynningu sem hún sendi okkur. Púkar ntoka snjó fyrin peninga Þeir eru ekki að- gerðalausir þessar vik- urnar, púkarnir á Suður- eyri. Snjó hefur kyngt látlaust niður frá ára- mótum og þykir mönn- um nóg komið. 1 verslun staðarins og sjoppunni má sjá nokkr- ar auglýsingar, þar sem boðið er upp á snjó- mokstur frá innkeyrslum og útidyrum gegn vægu gjaldi. Margir hafa notfært sér þessa nauðsynlegu þjónustu, sem „skóflu- gengin“ bjóða. Fyrir að moka töluverðum snjó frá útidyrum eru púkun- um greiddar frá 150 til 200 krónur, eða eftir samkomulagi, eins og stendur í auglýsingun- um. Já. þeir deyja ekki ráðalausir. drengimir á Suðureyri. Það verður ekki af þeim skafið. R. Schmidt. 18" pizza með tveimur áleggstegundum + 12" hvítlauksbrauð + franskar + 2ja lítra kók VERÐ AÐEINS KR. 1.990 5267 PIZZA 67 - ALLT FYRIR ÞIG 5267 Fékk um 200 símhringingar vegna gamalla myndlykla Elías Guðmundsson (til hægri) afhendir Róbert Schmidt Tudi- myndlykil að gjöf til minningar um daginn. Ljósm. Ágúst Schmidt. í smáauglýsingum DV einn laugardag fyrir nokkru var auglýst eftir Tudi-myndlyklum (gömlu lyklunum) vegna lista- verkasmíða. Lyklarnir máttu vera bilaðir og gott verð í boði. Undir auglýsingunni stóð nafnið Róbert og heimasími fylgdi með. „Já, það hefur ekki stoppað hjá mér síminn. Við feðgarnir höfum skipst á að svara. Flestir taka þessu vel“, sagði Róbert Schmidt á Suðureyri í samtali við blaðið. Um kl. hálftíu á téðum laug- ardagsmorgni þegar auglýs- ingin birtist hringdi síminn hjá Róbert. Hann staulaðist ný- vaknaður fram úr til að svara og skildi lítið í því af hverju verið var að bjóða honum ó- nýtan myndlykil til kaups svona í morgunsárið. Ekki var hann fyrr lagstur á koddann en síminn hringdi afturog erindið var hið sama. Síminn var tekinn úr sam- bandi nokkru fyrir hádegi þeg- ar um 40 manns höfðu hringt. Síðar um daginn var honum stungið í samband aftur. Þá byrjaði hann aftur að hringja og linnti þvf ekki fyrr en um mið- nætti. Sunnudagurinn var öllu verri en þá hringdu um 20 manns á klukkutíma þann tíma sem síminn var í sambandi. Næsta vika öll var slæm og hálfum mánuði síðar er enn verið að hringja í Róbert og bjóða honum myndlykla. Skýringin kom í ljós sama dag og auglýsingin birtist. Elías Guðmundsson á Suðureyri kom þá í heimsókn til Róberts með gamlan Tudi-myndlykil og færði honum að gjöf til staðfestingar því, hver hefði gert honum grikkinn. Elías og fleiri vinir Róberts höfðu sett auglýsinguna í blaðið. Róbert hefur stundum verið óspar á alls kyns stríðni og hrekki í garð vina sinna gegnum árin og nú fékk hann það til baka með vöxtum. „Mér finnst þetta ágætur og vel heppnaður hrekkur“, segir Róbert Schmidt, „því að margir eiga um þessar mundir ónýta og úrelta myndlykla sem gott væri að losna við fyrir einhvern pening. Ég hefði glaður gert einhverjum öðrum þetta hefði mér bara dottið það í hug sjálf- um. En þeir höfðu betur í þetta sinn, bölvaðir. Þeir vita að ég er vanur að borga fyrir mig. Minn tími mun koma, eins og nú er sagt.“ Alls hringdu um 200 manns í Róbert út af þessari auglýs- ingu, fyrir utan þá sem hafa hringt á meðan síminn var ekki í sambandi og síðan ekki reynt til þrautar. „Jú, ég verð að við- urkenna að ég er orðinn dálítið þreyttur á því að þylja sömu rulluna aftur og aftur í simann, en þetta hlýtur að taka enda eins og allt annað til tilverunni, bæði gott og illt. Strákamir heim- sóttu mig þarna um kvöldið og héldu mér gleðskap og fengu að hlusta á þegar ég var að svara í símann. Þeir grétu af hlátri, bölvaðir. Já, svona er lífið“, sagði Róbert Schmidt. Og nú hefur DV sett Tudy- myndbandslykla á svartan lista ásamt fótanuddtækjunum og Sodastream-tækjunum frægu. Hvað ætli verði næst? Kannski lórantækin sem GPS er búið að ryðja úr vegi? Fasteignamiðlun Sigurður Óskarsson lögg. fasteigna- og skipa- sali Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík ÍBÚÐAKAUP Á REYKJAVÍKURSVÆÐINU Kaupendaþjónusta okkar aðstoðar íbúðakaupendur af landsbyggðinni, þeim að kostnaðarlausu, við að finna og kaupa eignirá Reykjavíkursvæðinu. Hringið og kynnið hug- myndirykkar og óskir og við hefjumst samdægurs handa. Sími 91-880150 Fax 91-880140

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.