Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Síða 12
LOKAÐ vegna breytinga
frá laugardeginum 11. mars til miðvikudagsins 22. mars.
RÝMINGARSALA verður á 2. hæð Bókhlöðunnar
-»,,„„»,7-™ SPQRTHLADAN
I FRÉTTABLAÐIÐ j
RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR:
SÍMI94-4011 • FAX 94-5225
Ákveðið hefur verið að bjóða fram lista í Vestfjarðaum-
dæmi undir nafninu Vestfjarðalistinn og listabókstafnum M
til Alþingiskosninganna í vor. Listinn er þannig skipaður:
1. Pétur Bjarnason, fræðslustjóri, ísafirði.
2. Stefán Gíslason, sveitarstjóri, Hólmavík.
3. Konráð Eggertsson, form. fél. hrefnuveiðimanna, (safirði.
4. Védís Thoroddsen, fiskverkakona, Bíldudal.
5. Inga Ósk Jónsdóttir, rekstrarfræðingur, ísafirði.
6. Jensína Kristjánsdóttir, bankastarfsmaður, Patreksfírði.
7. Hjördís Hjartardóttir, grunnskólakennari, Isafirði.
8. Gunnþóra Önundardóttir, leiðbeinandi, Reykjanesi.
9. Gunnar Pétursson, landpóstur, ísafirði.
10. Guðmundur Hagalínsson, bóndi, Hrauni, Ingjaldssandi.
Kosningaskrifstofa Vestfjarðalistans er að Fjarðar-
stræti 22 á ísafirði, símar 5344 og 5342.
ingur
í raöir BÍ
Páli Ólafsson markvörður
(í markmannsbúningi KR-inga).
Knattspyrnudeild BÍ hefur
fengið góðan liðsstyrk fyrir kom-
andi sumar. Markmaðurinn Páll Ólafsson, sem leikið hefur í
unglingalandsliðum íslands, bæði í knattspyrnu og hand-
bolta, mun standa á milli stanganna hjá BÍ. Jafnframt mun
Páll sjá um alla markmannsþjálfun hjá félaginu og verður
fróðlegt að sjá hvort markmannshæfileikum stráka af yngri
kynslóðinni fleytir ekki fram.
Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir liðið, sem skipað verður ungu
strákunum sem eru að koma upp hjá félaginu ásamt þeim
eldri strákum sem halda áfram. Meistaraflokkurinn hefur
misst marga leikmenn sem voru í fyrra, en einmitt þess
vegna hefur verið tekin sú stefna að treysta yngri mönnunum
fyrir því verkefni sem framundan er í sumar. Kröfurnar eru og
verða þær sömu hjá félaginu, að komast upp í 2. deildina, en
einmitt þess vegna eiga þessir ungu leikmenn skilið að finna
fyrir stuðningi allra sem fylgjast með íþróttum hér á isafirði.
Þetta verður erfitt en skemmtilegt verkefni, sem framundan
er.
Boltafélag ísafjarðar,
knattspyrnudeild.
Neyðarnúmer
slökkviliðs,
lögreglu
og sjúkraliðs
á Isafirði
Lokasprettuninn eftir í Vestfjarðagöngum:
Ráðherrasprenging
um aðra helgi
- Eftir er að sprengja um 80 metra haft í Breiðadalsgöngunum og verið
að klára lagningu á frárennsliskerfi í Botnsdalsleggnum
Nú er aðeins eftir að
sprengja um 80 metra haft í
þeim hluta Vestfjarðaganganna
sem liggur undir Breiðadals-
heiðina. Að sögn Björns Har-
ðarsonar eftirlitsmanns, þá er
ekki endanlega búið að dagse-
tja síðustu sprenginguna, en
fastlega er búist við að hún
verði um aðra helgi. Þá verður
trúlega mikið húllumhæ í
göngunum að viðstöddum
samgönguráðhema og fleiri
góðum gestum.
Greiðlega hefur gengið að
bora síðustu daga þrátt fyrir að
eitthvað sé um vatnsleka í
berginu. Sá leki hefur þó ekki
valdið neinum vandkvæðum.
Þegar hætt var borunum frá
Breiðadal í nóvember, þá var
farið að bera á vatni í göng-
unum, en Björn telur þó að á
þeim kafla sem eftir er verði
það vart til mikilla vandræða
þó búast megi við einhverju
vatni.
í Botnsdalsgöngunum hefur
verið unnið við að ganga frá
frárennslislögnum og verður
því verki lokið að mestu í
næstu viku. Þá verður vegurinn
í gegnum göngin lagfærður og
til hagsbóta fyrir þá sem um
göngin þurfa að fara. Töluverð
umferð hefur verið um göngin
frá Súgandafirði. Segir Bjöm
að það fari að jafnaði um 80
bflar um göngin þá virka daga
sem opið er. Á laugardögum er
aðeins opið í tvo tíma og fara
þá um 40 bflar um göngin.
- hk.
Gríðarlegt fannfergi
á Suðureyri
— texti og myndir: Róbert Schmidt —
Skaflarnir á Suðureyri eru víða 3-6 metrar og sums staðar
hærri. Menn segja að þetta sé farið að nálgast það mesta
sem snjóað hefur á Suðureyri, svo að menn viti. Hér má sjá
húsið að Eyrargötu 7.
Mikið hefur snjóað á Suður-
eyri í janúar og febrúar. Sumir
segja að þetta sé farið að nálg-
ast það mesta sem þar hefur
snjóað í manna minnum.
Skaflarnir eru víða 3-6 metrar
en þó er fönnin mest við verbúð
Fiskiðjunnar Freyju hf. Þar má
ætla að snjórinn nái allt að 8
metrum á þykkt. Nokkrir
björgunarsveitarmenn hafa
mokað fólk út úr húsum sínum
eftir snjóþunga daga. Dæmi eru
þess að fólk hafi þurft að fara
út um glugga á efri hæð og
sumir út af svölum. Mokst-
urstæki Suðureyrarhrepps hafa
verið í notkun nær sleitulaust
frá áramótum og hafa staðið sig
prýðilega við moksturinn.
Margar bifreiðir eru á kafi
undir fönn og hafa eigendur
Séð út Aðalgötuna.
þeirra flaggað eftir bestu getu
einhverjum metrum ofar þar
sem þeir telja að bflarnir séu
undir.
Súgfirðingar eru blessunar-
lega lausir við snjóflóðahættu
í firðinum, að undanskildu
fjallinu handan fjarðarins
gegnt þorpinu, upp af Norður-
eyri, en þar er nú engin byggð.
Þar koma stundum stór snjó-
flóð niður Norðureyrargil og
valda flóðbylgjum á firðinum.
Þar hafa stundum gengið á land
á Suðureyri og valdið tjóni.
Búið er að gera traustan grjót-
garð við neðstu byggðir þannig
að ekki er mikil hætta á því að
sjór geti flætt þar yfir. Mikill
snjór er við varnargarðinn og
gerir hann hærri og öflugri.
Verbúð Fiskiðjunnar Freyju hf. á Suðureyri. Þar hefur safnast
ótrúlega mikill snjór.
Hér er búið að gera göng að útidyrum, en fyrr um morguninn
þurftu börn og fullorðnir að fara út um svaladyrnar á efri hæð
til þess að komast leiðar sinnar.