Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1995, Page 2
VESTFIRSKA
Miðvikudagur^22MJÓvembeM995^^^^^^^^^^^^^^^^J
FRÉTTABLAÐIÐ
------------\
Hljómborg
Hrannargötu 2
ísafirði
E 456 3072
Körfuboltinn. l. delld:
Leikur hinna
sterku varna
Sherlock
- Undercover Dog
GAMANMYND
LEGEND
OF THE FALL
GEISLADISKAR
GEISLADISKAHULSTUR
HLJÓMTÆKI
HLJÓÐFÆRI
SÖLUMYNDBÖND
GEB
mm
JÓLA-
imup
TÍMMLEGA
GÚÐ MYND
TOPP TÍU
1. DUMBDUMBER
2. THE SHAWSHANK REDEMPTION
3. NATURAL BORN KILLERS
4. BLANKMAN
5. OUTBREAK
6. FRIDAY
7. LITLU GRALLARARNIR
8. A SIMPLE TWIST OF FATE
9. LEON
10.1.Q.
V___________________.
- Isfirðlngar sigruðu leikni úr Breiðholti
í útileik á laugardaginn
KFÍ vann mikilvægan sigur
á laugardaginn þegar liðið vann
öruggan sigur á Leikni úr
Breiðholtinu í Reykjavík.
Lokatölur leiksins urðu 67
stig Isfirðinga á móti 56 stigum
Leiknismanna. „Þetta var leik-
ur hinna sterku varna“ svo
vitnað sé í DV.
Það virðist sem hlutirnir séu
að ganga upp hjá ísfirðingum
sem hafa gífurlega sterka vörn
og mikinn hreyfanleika. I hálf-
leik hafði Chris Ozment skor-
að 23 stig og gripu Leiknis-
menn þá til þess ráðs að reyna
að taka hann úr umferð í seinni
hálfleik. Við þá aðgerð losnaði
um aðra leikmenn fsfirska lið-
sins sem vann öruggan sigur.
Bestu menn þessa leiks voru
Christopher Ozment sem skor-
aði 30 stig í leiknum, Hrafn
Kristjánsson með 16 stig og
Baldur I. Jónasson sem skoraði
15 stig. Auðunn og Unnar
komust einnig vel frá sínu.
Þórður Jensson virðist ætla
að springa út á réttum tíma.
Hann er sívinnandi í vörninni
og það er einmitt vörnin sem
vinnur leikina. Þórður var að
margra mati maður leiksins
ásamt Chris.
Næsti heimaleikur ísfirðinga
er nú á föstudagskvöldið kl. 20
Þórður Jensson er á hraðri
uppleið í liöi KFÍ.
í íþróttahúsinu á Torfnesi og
verður húsið opnað kl. 19:30.
- Gaui Þ.
Staðan í 1. deild. Leikir Unnir Tapaðir Skoraðar körfur Stig
ÍS 6 6 0 466-393 12
Snæfell 7 6 1 695-524 12
KFÍ 6 5 1 538-457 10
Leiknir R 7 5 2 582-528 8
Þór Þ 6 3 3 467-463 6
Selfoss 6 3 3 482-440 6
Stjarnan 6 2 4 404-478 4
Reynir S 7 2 5 537-652 4
ÍH 6 1 5 493-596 2
Höttur E 7 0 0 383-536 0
Fjölliðamot í drengjaflokki
KFÍ strákarnir
ytirkeyrðu Skallagrím
og sigruðu með 71
stigi gegn 35
- Byrjunin hjá KFÍ á mótinu i Njarðvík einkenndist af
taugasnennu og reynsluleysi sem kostaði tvo ósigra
Um síðustu helgi fór fram í
Njarðvík annað af þremur fjöl-
liðamótum í C-riðli drengja-
flokks í körfubolta.
KFI-drengir mættu galvaskir
til leiks og léku þrjá leiki á
mótinu. Gegn Njarðvík C,
Laugdælum og Skallagrími.
Skemmst er frá því að segja að
í fyrstu tveim leikjunum sem
voru á laugardag kom fram
mikil taugaspenna hjá KFI-
strákunum auk skorts á leik-
reynslu sem kostaði tvo sigra.
Á sunnudeginum komu
strákarnir hins vegar tvíefldir
til leiks gegn Skallagrími,
ákveðnir í að sýna að þeir gætu
spilað ágætis körfubolta.
Ætlunarverkið tókst, því þeir
hreinlega yfirkeyrðu liðsmenn
Skallagríms og sigruðu með
glæsibrag: 71 stig gegn 35
stigum Skallagríms.
Leikmenn KFÍ voru þessir:
Jón H. Guðnason, Guð-
mundur Guðmannsson, Magn-
ús Sveinbjörnsson, Birgir
Birgisson, Pétur Þ. Birgisson,
Kristinn Vilbergsson, Haukur
Gylfason, Guðni K. Brynj-
ólfsson, Valur Norðdahl, Atli
Þ. Jakobsson, Kristján Sveins-
son, Ragnar Þrastarson og
Shiran Þórisson sem átti stór-
leik og skoraði 34 stig.
Ljóst er að ef þessir strákar
æfa áfram að sama krafti og
þeir hafa gert hingað til, þá eiga
þeir eftir að gera góða hluti.
Það sem þá skortir einna helst
er leikreynsla.
SÍMINN OKKAR ER 5688888
ACVCID Bílaleiða
VH 0 vl HC Car rentat
Mj TEKUfl VIC BlLNUM A FLUGVELLINUM ÞEGAfl ÞU KEMUfl OG
SKILUfl HANN EFTIR A SAMA STAO PEGAfl pU FEHÐ
Skemmtun fyrir aldraða:
Reynir ingason
syngur á Hlíf á
sunnudagsKvðldið
- Á efnisskránni eru m.a. lög og
texfar eftir vestfirska höfunda
NÚ á sunnudagskvöldið 26. nóvember mun Reynir Inga-
son, söngvari og framkvæmdastjóri Djúpbátsins með meiru,
syngja einsöng á Hlíf, dvalarheimili aldraðra á ísafirði.
Undirleikari Reynis við þetta tækifæri verður Margrét Gunn-
arsdóttir.
Efnisskrá tónleikanna sem Reynir og Margrét nefna „Á
vetrarkvöldi“ er mjög fjölbreytt og getur þar m.a. að heyra lög
og texta vestfirskra höfunda.
Eldri borgarar eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að
hlýðaá söng Reynis og spil Margrétarogætti enginn að verða
fyrir vonbrigðum með þeirra framlag.
Þess má geta að Verkalýðsfélagið Baldur styrkir þessa
tónleika í þágu eldri borgara.
Dagný Þrastar
með
glernamskeið
Dagný Þrastardóttir mun á
næstunni bjóða upp á gler-
listarnámskeið í samvinnu við
Farskóla Vestfjarða. Fyrsta
námskeiði hefst á laugardaginn
25. nóvember. kennt verður á
laugardögum kl. 9 - 17 og á
sunnudögum kl. 10- 18.
Aðeins þrír nemendur kom-
ast að á hverju námskeiði og er
kennt í húsnæði Rammagerðar
ísafjarðar að Suðurtanga 6.
Innritun á þessi námskeið er
í síma 456 3540 hjá Ramma-
gerðinni og í síma 456 4215 í
Farskóla Vestfjarða.
Á námskeiðum þessum er
kennd gerð hefðbundinna gler-
mynda þar sem mislitt gler er
fest saman með tini. Þá er
einnig kennd vinnubrögð við
gerð ýmissa muna með sömu
tækni.
Farskóli Vestfjarða hefur
gert talsvert af því að aðstoða
fólk sem hug hefur haft á að
bjóða almenningi upp á nám-
skeið af ýmsu tagi og hafa
ráðamenn skólans verið mjög
viljugir að ýta undir slíka
fræðslustarfsemi.
- hk.
Laufey Jónsdóttir hefur sótt glerlistarnámskeiö hjá Dagnýju
Þrastar. Segir Laufey að námskeiðið sé mjög krefjandi og
jafnframt lærdómsríkt og skemmtilegt. Hvetur hún alla þá
sem áhuga hafa á að kynna sér þessa grein að hafa samband
við Dagnýju, því það verði enginn svikinn af að sækja
námskeið hjá henni.