Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1995, Qupperneq 3

Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1995, Qupperneq 3
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ L Miðvikudagur 22. nóvember 1995 Brids: ísafjanðarmótinu í tví- menningi lýkur í kvöld Nú er lokið þremur kvöldum af fjórum á jöfnu og spennandi ísafjarðarmóti í tvímenningi 1995, en úr- slitin ráðast í kvöld á veitingastaðnum Á Eyrinni. Staðan eftir þrjú kvöld er þessi (fimm efstu pör, sem öll eiga möguleika á sigri): 1. Magnús - Guðmundur 293 2. Arnar Geir - Einar Valur 291 3. Sigurður - Finnur 281 4. Óskar - Esra 281 5. Júlíus - Georg 274 ISAFJÖRÐUR Almennur borgarafundur um sameiningarmálin Almennur borgarafundur um fyrir- hugaða sameiningu á norðanverðum Vestfjörðum verður haldinn í Stjórn- sýsluhúsinu á ísafirði, 4. hæð, sunnu- daginn 26. nóvember 1995 og hefst kl. 16.00. Frummælendur verða bæjarfulltrúarn- ir og samstarfsnefndarmennirnir Smári Haraldsson og Þorsteinn Jó- hannesson. Að loknum framsöguerindum verða almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Magnús Reynir Guðmundsson. ísfirðingar eru hvattir til að koma á fundinn. Bæjarstjórn ísafjarðar. lil hamingju, Vestfirska - eftir Elmu Guömundsdóttur, formann Samtaka bæjar- og héraðsfréttablaða Vestfirska fréttablaðið, sem gefið er út á ísafirði, átti 20 ára af- mæli í byrjun þessa mánaðar. Stofnandi blaðsins var Árni Sig- urðsson prentari og var hann útgefandi þess fyrsta áratuginn eða svo. Vestfirska fréttablaðið er með eldri óháðum bæjar- og hér- aðsfréttablöðum landsins og er efni þess fjölbreytt og vinnsla þess og frágangur allur til fyrirmyndar. Vestfirðingum er fengur að slíku blaði, sem og öðrum þeim landsmönnum sem eiga sér bæjar- og héraðsfréttablað. Útgáfa bæjar- og héraðsfréttablaða á íslandi er ekki auðveld, þó svo að um 50.000 slík eintök komi fyrir sjónir landsmanna í viku hverri. Oftar en ekki hefur slíkri útgáfu verið komið af stað af hugsjón einni saman og hæfilega mikið af bjartsýni verið með í farteskinu. Svo hygg ég að hafi verið með Vestfirska fréttablaðið. Útgáfa bæjár- og héraðsfréttablaða er mikið þjóðþrifamál. í þeim birtast fréttir og frásagnir sem að öllu jöfnu birtast ekki í öðrum fjölmiðlum og þessi blöð eru upp til hópa merkustu heimildir og jafnvel vafasamt að hægt væri að rita sögu ýmissa staða án þess að þeirra nyti við. A fyrstu árum Samtaka bæjar- og héraðsfréttablaða einbeittu þau sér að því að ná meira jafnrétti gagnvart „stóru“ fjölmiðlunum, t.d. í auglýsingum og áskriftum frá hinu opinbera. Sú barátta var árangurslítil. Nú í nokkur ár hafa stjórnvöld ekki séð ástæðu til að kaupa bæjar- og héraðsfréttablöðin. Það var á sínum tíma liður í sparnaðaráætlun þáverandi ríkisstjórnar að segja upp áskrift sinni að einu eintaki af hverju þessara blaða. Þessu fögnuðu forsvars- menn blaðanna á sínum tíma og hvöttu til að skrefið yrði stigið til fulls og öllum fjölmiðlaáskriftum yrði sagt upp; þar með sætu allir fjölmiðlar við sama borð. Þessi samþykkt samtakanna hefur ekki náð fram að ganga. Það ætti að vera metnaðarmál íbúa hvers bæjarfélags að hlúa að þeim blöðum sem gefin eru út í þeirra bæjarfélögum og ekki síður ætti það að vera metnaðarmál viðkomandi sveitarstjórnar að gera það sama. Bæjar- og héraðsfréttablöðin eru besti og ódýrasti auglýsingamiðill hvers bæjarfélags og hvergi safnast á spjöld sögunnar meiri staðbundinn fróðleikur en þar. Ég óska Vestfirska fréttablaðinu til hamingju með áratugina tvo og óska þeim alls hins besta um ókomin ár. Elma Guðmundsdóttir, formaður Samtak bæjar- og héraðsfréttabtaða. Gísli Hjartarson skrifar: Ég er ennþa fúll og á móti - svar til bæjarstjórans á ísafirði Lágfleygt þótti mér svar bæjarstjórans áísafirði í síðasta tbl. Vestfirska við grein minni um valdhroka meirihluta bæj- arstjórnar Isafjarðar, sem birtist í sama blaði viku fyrr. I fyrsta lagi á ég erfitt með að skilja hvers vegna hann (bæjarstjór- inn) er að óhreinka sig með því að taka þátt í pólitískum deilum milli minnihlutans og meiri- hlutans í bæjarstjórninni. Ef mig misminnir ekki, var Kristján Þór Júlíusson ráðinn með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa allra flokkanna skömmu eftir bæjarstjórnar- kosningarnar í fyrravor. Það þýðir einfaldlega að alger sam- staða var um ráðningu hans, líka í minnihluta bæjarstjórnar. Þess vegna hélt ég í einfeldni minni að Kristján Þór væri bæjarstjóri allra bæjarbúa, líka krata, komma og Kvennalista, en ekki bara sjálfstæðis- og framsóknarmanna, sem beita honum fyrir sig eins og skildi til að verja mistök sín í meirihlut- anum. Hvers vegna verja þessir fimm bæjarfulltrúar, sem skipa meirihlutann, sig ekki sjálfir þegar einhverjum dettur í hug að gagnrýna störf þeirra? Það hlýtur að stafa af þvf að bæjar- stjórinn núverandi lítur á sjálf- an sig sem pólitískan bæjar- stjóra, þrátt fyrir að hann hafi hvergi verið í kjöri í sjálfum bæjarstjórnarkosningunum. Gísli Hjartarson. Tveir fyrrverandi bæjarstjór- ar voru hins vegar í kjöri á framboðslistum við kosning- arnar 1990, þeir Haraldur L. Haraldsson og Smári Haralds- son. Engan undraði því að þeir væru pólitískir bæjarstjórar og svöruðu fyrir bæjarfulltrúana í meirihlutunum þáverandi. I öðru lagi er svargrein bæj- arstjórans ekki efnislegt og málefnalegt svar við gagnrýni minni um valdhroka meirihlut- ans, heldur ásakanir vegna þess að fyrr í haust leyfði ég mér að hafa skoðun á innflutningi 25 flóttamanna frá Bosníu til Isa- fjarðar. Taldi ég að bæjarstjórn ætti fremur að huga að hús- næðislausum Isfirðingum en erlendum flóttamönnum varð- andi útvegun húsnæðis. Sér- staklega var tekið fram að sú skoðun mín byggðist ekki á kynþáttafordómum eða útlend- ingahatri, heldur einungis um- hyggju fyrir okkar minnstu bræðrum og systrum sem undir hafa orðið í lífsbaráttunni hér í sínum heimabæ. Það sem mesta athygli mína vakti í svargreininni var það að bæjarstjórinn treystir sér ekki til þess að lýsa skoðun sinnni á persónu minni sjálfur, heldur vitnar hann orðrétt í skrif Smára Haraldssonar, fyrrver- andi bæjarstjóra, í Vestfirska í byrjun árs 1994. Þá stóðu fyrir dyrum bæjarstjórnarkosningar og vorum við Smári reyndar báðir í framboði við þær kosn- ingar, hann fyrir komma, ég fyrir krata. Sendingin frá Smára, frænda mínum og vini, var því fyrst og fremst pólitísk og þykir slíkt ekki tiltökumál hér um slóðir. Menn í stöðu bæjarstjóra hljóta fyrr eða síðar að fá á sig gagnrýni. Mig minnir að Krist- ján Þór hafi verið tekinn á beinið í leiðara DV fyrir skömmu og þar fullyrt að hann hafi sagt upp áskrift að Vest- firska fréttablaðinu vegna þess að honum líkaði ekki umfjöllun blaðsins!! Eg hef hvergi séð bæjarstjórann svara fyrir þau skrif og önnur skrif um hann og bæjarstjórn f fjölmiðlum lands- ins undanfarnar vikur. Það er einungis Skutulsritstjórinn sem fær það óþvegið frá honum. En ég hef bak til að bera það. Varðandi þá fullyrðingu Kristjáns Þórs að það séu „stórtíðindi í pólitískri sögu Isafjarðar“ að Skutulsritstjór- inn skuli ekki vara hræddur við núverandi meirihluta bæjar- stjórnar, er rétt að taka fram að töluverðan kjark þarf til að gagnrýna meirihlutann. Hinn almenni borgari leggur ekki í það vegna þess valdhroka sem sýndur hefur verið það sem af er þessu kjörtímabili. Þó hefur svolítið borið á gagnrýni nú undanfarnar vikur, t.d. frá starfsmönnum sorpbrennslunn- ar Funa, sem bæjarstjórinn rak eftir að snjóflóð eyðilagði stöðina. Kristján Þór varð þó að lúta svo lágt að þurfa að biðja forstöðumann Funa afsökunar á því að hafa sagt honum upp, því uppsögnin stóðst ekki lög. Ég vil gefa Kristjáni Þór þau heilræði, ef hann vill þiggjaþau frá mér, að láta bæjarfulltrúana svara fy rir sig sjálfa þegar þurfa þykir, en ekki geysast fram í ritvöllinn sjálfur og taka á sig gerðir þeirra. Það eru nefnilega þeir sem taka póltísku ákvarð- anirnar sem hann verður að framfylgja sem framkvæmda- stjóri bæjarfélagsins, hvort sem honum líkar betur eða verr. Höfundur er varabrejarfulltrúi Alþýðuflokksins og ritstjóri Skutuls, málgagns jafnaðar- manna á Vestfjörðum. Verulegur fjárhagsbati hjá Vesturbyggð - skuldir bæjarfélagsins lækka um 110 milljónir á þessu ári og um tugi milljóna á næsta ári - hlutfall rekstrarkostnaðar af skatttekjum breytist mjög til hins betra „Sveitarfélagið er að ná sér upp úr versta öldudalnum og útlit fyrir að á næstu þremur árum náum við okkur út úr okkar verstu skuldamálum“, sagði Gísli Ólafsson bæjarstjóri Vesturbyggðar í samtali við Vestfirska í gær. „Núna erum að um það bil að fá umtalsverða skuldaniðurfellingu í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga vegna sameiningarinnar hér á sínum tíma. Auk þess höfum við selt eignir til að lækka skuldir. Látravíkin BA var seld og út úr henni fékk sveitar- sjóður um 14 milljónir króna. Okkur tókst einnig að selja hlutabréf sem við áttum í Odda hf. og fengum uni 10 milljónir út úr þeim. Með öðrum að- gerðum hefur okkur tekist að lækka skuldir um 20 milljónir í viðbót. Samtals lækka skuldir bæjarfélagsins um 110 millj- ónir á þessu ári“, sagði Gísli. Skuldir bæjarsjóðs Vestur- byggðar voru um 400 milljónir skv. ársreikningi 1994 en þar fyrir utan voru skuldir hafnar- sjóðs upp á nærri 40 milljónir að auki. íbúafjöldinn í Vestur- byggð er rétt um 1400 manns. „Hafnarsjóður skuldar bæjar- sjóði verulegar upphæðir. Ég geri ráð fyrir því að þær skuldir verði gerðar upp með því að framselja eignir frá hafnarsjóði til sveitarfélagsins og sala þeirra muni skila bæjarsjóði í sölu um 30-40 milljónum til viðbótar þeim 110 milljónum sem áður er getið. Þar er um að ræða verbúðir á Patreksfirði, vöruskemmu á Patreksfirði og hluta af stjómsýsluhúsi á Bíldudal. Akveðnir aðilar hafa látið í ljós áhuga sinn á því að kaupa þessar eignir, en ég geri ekki ráð fyrir því að það verði fyrr en á næsta ári.“ Nú er að ljúka endurskipu- lagningu á öllum rekstri sveit- arfélagsins, ekki aðeins fjár- hagslegri, heldur einnig á bókhalds- og skrifstofukerfi Vesturbyggðar. Endurskipu- lagning þessi hefur verið unnin í samvinnu við Samband sveit- arfélaga og ráðgjafa tengda því. Á árinu 1994 kostaði rekstur bæjarfélagsins nærri allar skatttekjur bæjarsjóðs eða um 98% af þeim. „Ég geri ráð fyrir að þær aðgerðir sem við höfum ráðist í, þ.e. fækkun starfs- manna, uppsögn á föstum yfir- vinnusamningum og niður- skurður í rekstri málaflokka, muni skila okkur þeim árangri að rekstrarkostnaðurinn fari úr 136 milljónum á síðasta ári (af 139 milljón króna skatttekjum) niður í 120 milljónir króna í ár og verði að hámarki 85% af skatttekjum. Strax á næsta ári fer þetta svo að skila sér að fullu og þá geri ég ráð fyrir því að rekstrarkostnaðurinn verði um 107 milljónir en tekjurnar um 155 ntilljónir", sagði Gfsli Olafsson. Farskóli Vestfjarða Glerlistanámskeið Námskeið í gerð glermynda verða um helgar í Suðurtanga 6 á Isafirði. Það fyrsta hefst 25. nóv. nk. Kennt verður á laugardögum kl. 9.00-17.00 og sunnudögum kl. 10.00-18.00. Aðeins þrír nemendur komast að á hverju námskeiði. Kennslustundireru alls, kostnaður fyrir utan efni er kr. 10.500. Kennari er Dagný Þrastardóttir. Innritun er í síma 456 3540 (Rammagerð ísa- fjarðar) og 456 4215 (Farskóla Vestfjarða). Guðmundur Einarsson.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.