Feykir


Feykir - 02.09.1987, Side 5

Feykir - 02.09.1987, Side 5
27/1987 FEYKIR 5 Heimsókn frá Köge til Sauðárkróks - Feyldr spjallar við nokkra krakka frá Köge Dagana 18.-23. ágúst sl. voru í heimsókn 12 krakkar frá Köge, vinabæ Sauðár- króks í Danmörku og dvöldu þau hér frá þriðjudegi til sunnu- dags, nema á fimmtudeg- inum þegar þau fóru í Mývatnssveit. Þau voru á aldrinum 11-16 ára og var einn fulltrúi frá hverjum skóla, en 12 grunnskólar eru í Köge. Köge er í kringum 36 þúsund manna bær, um 200 krn frá Kaupmannahöfn. A miðvikudeginum var farið í fyrirtæki á Sauðár- króki og þau skoðuð, s.s. Steinullarverksmiðjuna, Fisk- iðjuna, Loðskinn, Hitaveit- una o.fl. Að loknum þessum skoðunarferðum var farið í reiðtúr. Að kveldi föstudagsins var haldið diskótek fyrir dönsku krakkana í félagsaðstöðu Gagnfræðaskólans þar sem jafnaldrar þeirra á Króknum áttu með þeim skemmtilega stund. Daginn eftir, á laugardegi, var farið í skoðunarferð um Skagafjörð og komið við í Glaumbæ. Síðan fór hópur- inn út í Drangey. Héðan fóru svo Danirnir á sunnudegi áleiðis til Reykjavíkur og þótti heimsóknin takast með afbrigðum vel. Hópurinn gisti í Gagnfræðaskólanum á meðan á dvölinni stóð og snæddi í nýju og glæsilegu eldhúsi skólans. Að sögn Björns Sigur- björnssonar skólastjóra, sem var leiðsögumaður hópsins ásamt Margréti Bjömsdóttur, eru heimsóknir sem þessar nauðsynlegar á milli vina- bæjanna og sagði Björn að frá Sauðárkróki myndu fara krakkar á næsta ári til einhvers vinabæjar Sauðár- króks. ,,Þá er hugmyndin að fara með t.d. heilan bekk úr Grunnskólanum” sagði Bjöm. Blaðamaður Feykis hitti fjóra krakka frá Köge á laugardeginum að lokinni Drangeyjarferð og spurði þau út í ferðina hingað og ýmislegt fleira. Þau hétu Anders Sörensen 13 ára, Anne Lauritsen 16 ára, Maria Larsen 11 ára og Jen Pedersen 15 ára. Þau voru fyrst spurð hvernig þeim hefði líkað dvölin á Sauðárkróki: „Þetta er búið að vera mikil upplifun að sjá ísland, allt öðru vísi en í Danmörku. Dvölin hér hefur verið frábær”. Hvað hefur verið skemmti- legast? „Það hefur svo margt verið skemmtilegt og erfitt að gera upp á milli. Það er öruggt að þetta verður ógleymanleg ferð. Við hlökkum mikið til að sjá Geysi á morgun”. (Krakkarnir komu við hjá Geysi á sunnudeginum á leiðinni suður. - Innskot blm.). Hafíð þið komið til íslands áður? ,;Nei, aldrei”. Á að koma aftur seinna? „Já, kannski þegar við verðum eldri”. Hvemig hugsuðuð þið ykkur Island áður en þið fóruð frá Danmörku? „Við héldum að það yrði mjög kalt. Við vissum að hér væri stórkostleg náttúra og stijálbýli, þ.e. bæimir litlir og fátt fólk”. Hvemig finnst ykkur krakkam- ir hérna í skólanum? „Þetta er fínn skóli og krakkarnir hafa tekið mjög vel á móti okkur. Flestirgátu nú ekki talað dönsku við okkur svo við töluðum ensku og það gekk vel. Diskótekið var gott og vel skipulagt, frábær lög”. Voru það sömu lögin og þið heyrið í Danmörku? „Nei, það var ekki. Við höfum lítið heyrt af þessum lögum en þau voru góð”. Hvað er vinsælast í Dan- mörku núna? Kim Larsen er vinsæll og svo hefur Withney Houston verið að slá í gegn. Depeche Mode, Genesis, Europe og Madonna eru einnig vinsæl”. Þekkið þið eitthvað af íslenskri músík? „Nei ekki svo mikið”. Þá gall við í einni; „Eg hefheyrt í Bubba Morthens”. Með þessum orðum lauk viðtalinu og krakkarnir ruku í matinn hjá Önnu Rósu og Bíbí. Krakkarnir frá Köge, frá vinstri Maria Larsen, Anne Lauritsen, Jen Pedersen og Anders Sörensen. í RAFTÆKJADEILD 20” Thompson sjónvarpstæki m/fjarstýringu verð kr. 36.630.- stgr. FRIGOR FRYSTISKÁPAR 200 Itr. kr. 28.661.- stgr. 275 Itr. kr. 31.863.- stgr. 380 Itr. kr. 35.634.- stgr. 460 Itr. kr. 39.154.- stgr. Bauknecht, AEG og Snoweap kæliskápar í úrvali Höfum fengið söluumboð fyrir Young Chong píanó og flygla. Verð frá kr. 95.000.- Allar upplýsingar í raftækjadeild Mikið úrval af iömpum og Ijóstækjum tekið upp næstu daga - í KJÖTDEILD - Kynning á Hraunbergslæri föstudaginn 4. september kl. 16.00-18.00 Kynningarverð

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.