Feykir - 28.10.1987, Side 5
35/1987 FEYKIR 5
mn
afurða. Þetta er mjög erfitt,
tökum sem dæmi að Slátur-
hús K.S. er byggt fyrir miklu
fleira fé en nú er slátrað þar.
Fyrir fimm árum var þar
slátað um 65000 fjár en nú
erum við komnir niður í
40000 og á næstu árum má
búast við enn frekari fækkun.
Það segir sig sjálft að það þarf
að halda vel á málum til að
draga saman kostnað að
sama skapi”.
Getur þú hugsað þér
kaupfélagið sem eina aðilann
hér, og þá á ég við bæði í
verslun og þjónustu?
„Já og nei. Ef ég hugsaði
mér það þá værum við ekki
þátttakendur i þeim fyrir-
tækjum sem við höfum verið
að leggja fjármagn og hlutafé
í. Eins og menn vita þá er
ekki einungis um það að ræða
að kaupfélagið sé að leggja
fram hlutafé og styðja þannig
við fyrirtæki heldur erum við
Skrifstofur K.S. eru bjartar og
alltaf að fjármagna upp
rekstur margra fyrirtækja,
bæði hér á Sauðárkróki og
einstaklinga (bænda) um allt
héraðið. Við erum því alltaf
með meiri og minni fyrir-
greiðslu við fyrirtæki og
einstaklinga hér í héraðinu
og ég hugsa að menn myndi
muna um það ef allt í einu
yrði nú skorið á þá
fyrirgreiðslu”.
Hvað um móralska stöðu
Samvinnuhreyfingarinnar og
samvinnuhugsjónarinnar?
„Það er nú sjálfsagt
misjafnt, og fer trúlega eftir
nýtískulegar.
því hvort maðurinn er
samvinnumaður eða eitthvað
annað. Við búum í þjóðfélagi
breytinganna og það hefur
verið afskaplega mikil breyting
á þjóðfélaginu á síðustu 4-6
árum og ég held að við eigum
eftir að ganga í gegn um
miklu meiri breytingar og
auðvitað þarf Samvinnuhreyf-
ingin að aðalaga sig breyttum
viðhorfum. Við þurfum að
upphugsa leiðir þar sem við
getum hyglað okkar félags-
mönnum meir og betur en
við höfum gert. Það verður
að viðurkennast að arður af
versluninni er enginn í dag og
verslun út um land hefur
barist í bökkurn og þar af
leiðandi hefur okkur ekki
tekist að borga neinn arð um
árabil. Við þurfum að koma
fólki í skilning um hver sé
ávinningur að því að vera
’félagsmaður í kaupfélagi.
Þetta er stærsta málið sem
snýr að hinum félagslega
þætti. Hvað hvarðar efna-
hagslega þáttinn þá verðum
við að hugsa öðruvísi en við
höfum gert til þessa. Fjár-
magnið er mjög dýrt og þess
vegna verðum við að huga
meira að arðseminni en við
höfum gert. Ef við höfum
arðsemina ekki í fyrirrúmi þá
verður sá rekstur ekki lengi
viðvarandi. Þetta á ekki bara
við um Samvinnuhreyfinguna,
heldur öll fyrirtæki. Ég held
að í framtíðinni þá muni
fyrirtækjum fækka og þau
sem eftir standa munu
stækka, dæmi: samruni Ala-
foss og Iðnaðardeildar
Sambandsins. Þessi þróun
verði einnig ofaná í sambandi
við mjólkursamlög, slátur-
hús og frystihús. Ég bara
spyr, hvaða vit er í því að
nýta ekki betur þá fjárfestingu
sem til er í dag?”
Að endingu, hver eru þín
lokaorð?
„Islendingar standa á
krossgötum í dag. Það hafa
átt sér stað miklar breytingar
á undanförnum árum og þær
verða örari í nánustu framtíð
og til að lifa af og standa
betur að rekstri og atvinnu-
uppbyggingu í þessu landi
okkar verðum við að vera
fljótir að aðalaga okkur að
breytingum og ná tökum á
efnahagsmálum þjóðarinnar”.
Ég kveð og þakka fyrir mig.
Myndir og texti: ajs
Kjólar
Kjólar
Nýkomið mikið úrval
af kjólum
Verð frá
kr. 2.800 - 5.600
Frá Falke
Jakkaföt
stakir jakkar og
buxur
Mikið af nýjum vörum
kemur í verslunina í
hverri viku
í matvörudeild
Tilboð
500 gr. 1000 gr. Snapp - kornflögur kr. 119.70 kr. 226,-
375 gr. 500 gr. Kelloggs - kornflögur kr. 118,- kr. 145,-
Maarud hringir kr. 55.50
Whitworths
ostakökurnar margeftirspurðu eru komnar
íkagttrðingam
Þú þarft ekki annaö!