Feykir


Feykir - 28.10.1987, Síða 6

Feykir - 28.10.1987, Síða 6
6 FEYKIR 35/1987 15. Hagyrðingaþáttur Heilir og sælir lesendur góðir. Þegar þessi þáttur kemur ykkur fyrir sjónir, er það von mín, til þeirra sem haft hafa samband við mig og látið í ljós óhamingju sína með 33. tölublaðið og eins hinna sem borið hafa harm sinn í hljóði að slíkt þurfi ekki að koma fyrir aftur á næstunni og allt komist í eðlilegt horf að nýju, eins og segir í vísu Sigfúsar Steindórs- sonar frá Steintúni í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði. En tildrög hennar voru þau að Sigfús var gestkomandi á bænum Hóli í Tungusveit á haustdegi og sá að þar var fólk ekki iðjulaust um það leyti er gesturinn hélt úr hlaði: Allt er að færast í eðlilegt horf Ingvar á Hóli er kátur. Rósmundur Guðbjörn ristir torf Ragnheiður sýður slátur. Þá kemur hér vísa sem mig minnir að sé eftir Rósberg G. Snædal og hentar vel að hafa hana yfir um þetta leyti: Hægt ég feta hálan veg heldur letjast fætur. Kuldahretum kvíði ég komnar veturnætur. Maður sem ekki vill birta sitt rétta nafn sendi þættinum þrjár vísur og merkir þær svo (7+1): Þó mér gangi margt á mót mitt skal angur bera. Undir vanga á ungri snót oft mig langar vera. Öruggt renni út á mið unaðs kennir sálin. Eg er enn að álpast við ásta- og kvennamálin. Sækja á mig systur tvær svo ég hníg að velli. Hafa báðar harðar k'ær hilagigt og elli. Heyrt hef ég, að hér áður fyrr hafi verið til ein og ein spennandi stúlka upp til sveita. Um eina slíka sem heima átti í Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði, orti Gissur Jónsson í Valadal þessa vísu: Atvinna Virðist höldum kvinnan kær koss við fjöldinn tefur. Laus á kvöldin ljúfust mær lyklavöldin gefur. Ekki eru allar stúlkur sem hljóta slíka athygli. Ágúst Sigfússon sem var óhemju snjall hagyrðingur og margir þeir sem eldri eru kannast við undir nafninu Villu Gústi, (vegna hörmulegrar villu sem hann lenti í á Eyvindstaða- heiði), kom eitt sinn sem oftar að Valadal og fór þá að segja þeim bræðrum frá komu sinni á ónefndan bæ þar sem hann hefði séð aldraða piparmey, sem hann hefði kennt mikið í brjósti um. Um hana orti Gústi þessa vísu. Hugarangur hjartað sker hart að ganga slysin. Grá á vanga orðin er og í fangi visin. Margar vísur fóru á milli þeirra Valadalsbræðra og Gústa. Hér kemur næst vísa sem Gissur gerði um Ágúst og mun sá síðarnefndi hafa brosað við er hann heyrði vísuna og sagt eitthvað á þá leið, að þetta væri mikill sannleikur. Lífið fljótt þér blómsveig bauð bragsnilld skjótt má kenna. Þú átt gnótt af andans auð ást og þrótt til kvenna. Gísli Ólafsson skáld frá Eiríksstöðum yrkir svo: Hafs frá hveli heims um fjöll hríðarélin ganga. Blómin felast önduð öll undir hélu vanga. Önnur haustvísa kemur hér eftir Gísla: Foldar vanga fæ ég séð frost að ganga verki. Blöðin hanga héluð með haustsins fangamerki. Þriðja vísan kemur hér eftir Gísla, lærði ég hana á unglingsárum og var hún þá oft kveðin á gleðskapar- stundum og er svo reyndar enn: Oft á fund með frjálslyndum fyrr ég skunda réði. En nú fæst undir atvikum aðeins stundargleði. Allir verða að lúta því lögmáli að fara þegar kallið kemur. Þorsteinn Valdimarsson kveður svo: Hver af öðrum til hvíldar rótt halla sér nú og gleyma. Vöku dagsins um væra nótt vinirnir gömlu heima. Þar sem veður hefur verið all risjótt að undanförnu er tilvalið að birta næst vísu sem gerð var um mann sem spáði oft fyrir veðrum. Höfundur er Sigurður Baldvinsson: Spámaður er hann það vil ég vona veðrinu gerð’ann þannig skil. Annaðhvort verður það áfram svona ellegar þá hann breytir til. Eg hef áður í þessum þáttum látið í ljós hrifningu mína á vísum sem taldar eru þær síðustu viðkomandi manna. Við endum þáttinn með einni slíkri og er það Ágúst Sigfússon er um getur svo snilldarlega: Ævi stundin styttast fer stirðnar mund af lúa. Hinsta blundinn mun því mér mál að undirbúa. Verið þið sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum 541 Blönduós sími 95-7154 Starfsfólk vantar til afgreiðslu í kaffiteríu, matvörudeild og kjötdeild. Um er að ræða heildagsstörf. Upplýsingar á skrifstofu vöruhússtjóra. Knattspyrna: Evjólfur kosínn leikmaður ársins Starfsleyfistillögur fyrir sorpeyðingu á Sauðárkróki í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 390/1985 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem valdið getur mengun, liggja frammi á bæjarskrifstofu til kynningar til 20. nóvember næstkomandi starfsleyfistillögur fyrir sorp- eyðingu á Sauðárkróki. Rétt til að gera athugasemdir við starfsleyfis- tillögurnar hafa eftirtaldir aðilar: 1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn tengdrar eða nálægrar starf- semi. 2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar. 3. Oþinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar. Hlutaðeigandi aðilar eru hvattir til að kynna sér vel starfsleyfistiIlögurnar og koma athuga- semdum á framfæri eins og reglugerð nr. 390/1985 gerir ráð fyrir. Reykjavík 15. október 1987 Hollustuvernd ríkisins Mengunarvarnir Leikmenn meistaraflokks Tindastóls í knattspyrnu komu saman sl. laugardag, fyrsta vetrardag, ásamt vel- unnurum og forráðamönnum félagsins og héldu uppskeru- hátíð sumársins. Þeir máttu gleðjast yfir miklu, en eins og flestum er kunnugt tryggði Tindastóll sér sæti í 2. deild í ár og spilar þar næsta sumar í annað skiptið í sögu félagsins. Á uppskeruhátíðinni kusu ileikmenn Tindastóls besta Jeikmanninn úr þeirra hópi og kom val þeirra ekki á óvart því markamaskinan Eyjólfur Sverrisson hlaut hnossið, en hann gerði 23 mörk í sumar og fór á kostum drengurinn. Efnilegasti leikmaður sumarsins var kjörinn hinn 18 ára gamli Reykvíkingur af skagfirskum ættum, Stefán Pétursson. Kom sú tilnefning heldur ekki á óvart því Stefán lék mjög vel í sumar og óx með hverjum leik. Þá var gömlu kempunni Rúnari Björnssyni veitt viðurkenning á hátíðinni, en Rúnar hefur náð að spila 150 leiki með meistaraflokki Tindastóls. Ymislegt fleira var á dagskrá kvöldsins á hátíðinni og má nefna annál sumarsins sem Fljótamaðurinn, blaða- maðurinn og knattspyrnu- kappinn Þórhallur Ásmunds- son þrumaði yfir gestum eins og honum einum er lagið, við góðar undirtektir viðstaddra. Að lokinni dagskrá stigu menn dans og skemmtu sér við undirleik Geira Valtýs og co. fram á nótt. Þótti þessi uppskeruhátíð takast vel og er ætlunin að halda hana framvegis á fyrsta vetrardag. Uppskeruhátíð yngri flokk- anna átti einnig að halda sl. laugardag en af því gat ekki orðið og verður hún einhverja næstu helgi. ES Frá Innheimtu ^ Sauðárkróksbæjar Fjórði og næstsíðasti gjalddagi eftirstöðva útsvars- og aðstöðu- gjalda 1987 til bæjarsjóðs Sauðárkróks er 1. nóvember næst- komandi. Þeir gjaldendur sem eru í vanskilum eru alvarlega minntir á að gera skil nú þegar, svo ekki þurfi að komatil lögtaks- aðgerða. Dráttarvextir reiknast 4. nóvember n.k. Innheimta Sauðárkróks

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.