Feykir


Feykir - 28.10.1987, Síða 8

Feykir - 28.10.1987, Síða 8
 ÆEYKIW 28. október 1987 35. tölublað, 7. árgangur Feykir kemur út á miðvikudögum Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum 1 AAI Sauðárkróki Sími FARSÍMI 5821 985 20076 Siglufjörður: Bændaskólinn á Hóluin settur Ra mniinn tekur við Nú um mánaðamótin tekur Þormóður rammi við eignum Isafoldar hf. á Siglufirði. En eins og kunnugt er var gengið frá kaupsamningi milli þessara aðila fyrir skömmu. Að sögn Róberts Guðfinnssonar framkvæmda- stjóra Þormóðs ramma er: tilgangur með þessum kaupum sá að nýta betur og stækka þær einingar sem fást við fiskvinnslu í bænum ásamt því að auka verðmæti þess afla sem að landi berst. Með þessum kaupum fær Þormóður rammi talsvert húsrými sem verður í framtíðinni nýtt undir saltfiskverkun, en| hana hyggst fyrirtækið auka verulega á næstunni með þessari bættu aðstöðu. Vinnsla og pökkun mun því um mánaðamótin leggjast niður í húsakynnum ísafoldar en undanfarið hefúr verið unninn þar fiskur af trillum og nokkrum dekkbátum sem gerðir eru út frá Siglufirði. Öllu starfsliði ísafoldar um 30 manns hefur verið boðin vinna hjá Þormóði rammaen ekki er enn ljóst hvað margt af því kemur til starfa hjá nýjum eigendum. I sumar og haust hefur verið verulegur skortur á fólki við fiskvinnslu á Siglufirði Bændaskólinn á Hólum var settur 23. okt. síðast- liðinn. Skólasetningin sem fram fór í Dómkirkjunni á Hólum hófst með helgistund sem séra Dalla Þórðardóttir prestur að Miklabæ sá um. Síðan flutti Jón Bjarnason skólastjóri setningarræðu. Þar kom fram meðal annars að í skólanum stunda nú 24nám í efri deild en nýnemar eru 14 talsins. Nokkrar breytingar hafa orðið á starfsliði. Jón Friðbjörnsson er nú hættur kennslu og flutti til Akureyrar ásamt konu sinni. Ingimar Ingimarsson og kona hans Kolbrún Ingólfsdóttir hafa flutt til Sauðárkróks. Þá hefur verið ráðinn til kennslu í hrossarækt Þórir Magnús Lárusson frá Þórukoti í Víðidal. Þær áherslubreytingar sem verða á næsta skólaári eru helstar að nýir áhersluþættir verða teknir inn í nám á fiskeldisbraut í samræmi við þróun þeirrar atvinnugreinar. í verklega þætti hrossaræktar- innar er stefnt að því að nemendur verði meira með hross sem hægt er að vinna meira úr en áður í gangsetn- ingu og reiðfærni. Auk þess verða nemendur við frum- tamningu hrossa búsins. Námskeiðahald hefur verið mikið að undanförnu við skólann og er nú í undir- búningi að halda endurmennt- unarnámskeið fyrir bændur í samráði við Stéttarsamband bænda. Það kom glöggt fram í ræðu skólastjóra að Hóla- skóli er í öruggri sókn og staðurinn allur á uppleið. Sögufélag Skagfirðinga 50 ára Síðastliðið laugardagskvöld, á fyrsta vetrardag, var haldið i Safnahúsinu á Sauðárkróki veglegt afmælishóf í tilefni 50 ára afmælis Sögufélags Skag- firðinga. Hafði stjórn félags- ins boðið félagsmönnum sínum til þessa samsætis. 200 manns voru á samkomunni og suðursalur Safnahússins þéttsetinn svo sem framast var unnt. Veislan hófst með því að formaður félagsins, Hjalti Pálsson, bauð gesti velkomna og flutti stutta tölu um upphaf Sögufélagsins og útgáfustarfsemi þess, síðan kallaði hann til séra Hjálmar Jónsson og fól honum að stjórna veislunni. Hjálmar fór á kostum og skapaði strax létta og skemmtilega stemmningu í salnum, mælti Odd\1tinn: Er allt að verða dýr(t)vitlaust á Króknum. Hluti veislugesta á afmæli Sögufélagsins. fram vísur og gamanyrði. Síðan hófst hin eiginlega dagskrá. Fyrst tróðu upp leikarar úr Leikfélagi Sauðár- króks og fluttu efni úr útgáfubókum Sögufélagsins. Lásu þeir upp hluta af þætti úr Skagfirðingabók um landa- bruggsmál Tryggva Guðlaugs- sonar í Lónkoti á bannárunum svonefndu. Var flutningur þeirra hinn áheyrilegasti og gerðu menn góðan róm að. Var Tryggvi sjálfur þarna viðstaddur og skemmti sér ekki síður en aðrir. Eftir þetta atriði var gert hlé og gestum boðið að ganga til hlaðborðs, sem búið hafði verið í norðursal hússins. Voru þar margar sællegar ijómatertur og annað bakkelsi, eins og hver gat í sig látið. Þegar menn höfðu nært sig nokkuð, var enn á ný gengið til dagskrár og kom nú fram ræðumaður kvöldsins, Siguijón Bjömsson pnófessor og spjallaði við gesti af sinni alkunnu snilld. Talaði hann m.a. um gamalgróna söguhneigð Skag- firðinga og hvernig þeir hefðu bundist samtökum um stofnun Sögufélags á árunum fyrir stríð. Hann flutti kveðju og las bréf frá Jóhannesi Geir listmálara, þar sem Jóhannes tilkynnti, að hann vildi færa Sögufélaginu í afmælisgjöf útgáfu- og höfundar- rétt að tveim olíumálverkum, sem hann gerði um Örlygs- staðabardaga. Einnig sendi hann innrömmuð tíu ljósrit af teikningum, er hann hafði gert um sama atburð. Voru þessar teikningar festar upp á vegg í salnum. Þegar Sigurjón hafði lokið máli sínu steig fram á sviðið hinn landskunni hagyrðingur Andrés Valberg og flutti mönnum bragamál. Að síðustu varlýst kjöri nýs heiðursfélaga. Var það Páll Sigurðsson frá Lundi, sem hlaut þá útnefningu fyrir langt starf í þágu félagsins við ritstörf og heimildasöfnun til Skagfirzkra æviskráa. Var nú tekið hlé, þar sem mönnum gafst færi á að rétta úr sér og sinna þörfum sínum, bæta í kaffibollann eða gera bókakaup, því Sögufélagið bauð félagsmönnum allar útgáfubækur sínar með 50% afslætti í tilefni afmælis- ins. Eftir hlé komu leikfélagar aftur og fluttu efni úr Skagfirðingabók og Djúp- dæla sögu við mikla kátínu. Friðrik Margeirsson flutti vísnamál og loks var orðið gefið laust. Var klukkan orðin eitt eftir miðnætti, þegar hófinu var slitið og hafði það þá staðið í fjóra og hálfan tíma. Var mál manna, að þetta hefði verið hin besta skemmtun og samkoman orðið Sögufélaginu til sóma. Þú ferð varla annað Verslunin Tindastóll Feykir spyr á Sauðárkróki: Hvernig líst þér á það að fá Stöð 2 hingað? Steinar Skarphéðinsson: „Mér líst bara vel á það. Þá fáum við að sjá meira af golfi og góðum þáttum”. Hrólfur Jóhannesson: „Illa, mér finnst nógu rnikið af rusli hjá RÚV, þó að það sé ekki verið að bæta því við”. Valbjörg Pálmadóttir: „Bara vel, því það er mikið af góðum þáttum hjá þeim”. Svanborg Guðjónsdóttir: „Ekki nógu vel, mér fínnst nóg að hafa Ríkissjónvarpið og þurfa ekki að velja á milli stöðva”.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.