Feykir


Feykir - 03.02.1988, Blaðsíða 3

Feykir - 03.02.1988, Blaðsíða 3
4/1988 FEYKIR 3 Sauðárkrókur: r Birgir Isleifur í heimsókn í síðustu viku kom góður gestur til Sauðárkróks. Það var menntamálaráðherra Birgir ísleifur Gunnarsson. Atti hann meðal annars viðræður við ráðamenn bæjarins og skólamenn um skólamál og uppbyggingu skólamannviikja í bæjarfélaginu. I lok heimsóknar sinnar svaraði Birgir góðfúslega nokkrum spumingum blaða- manns Feykis. Nú ert þú búinn að skoða skólamannvirki og kynna þér húsakost. Hvað miklum fjármunum veiður varið til uppbyggingar í Fjölbrautaskólaum? „Það er búið að samþykkja að veita 20 millj. í heimavist Fjölbrautarinnar. Það á að nægja til að klára efri hluta hennar. Við vonumst til að hægt verði að taka þennan part í notkun fyrir haustið”. Hvað með fjárveitingu til Bóknámshúss? „Á þessu ári er ekki gert ráð fyrir fjárveitingu til Bóknámshúss. Ég hef nú kynnt mér aðstæður hér og mér sýnist að það sé nauðsynlegt að Bóknámshús fylgi fast á eftir heimavistinni. Það hefur komið upp í þessum viðræðum sem ég hef haft við forráðamenn skóla- mála og bæjaryfirvöld að leitast eftir að gera sérstakan samning við menntamála- ráðuneytið og yfirvöld um byggingu Bóknámshússins og kostnaðarhlutdeild ríkisins og sveitarfélaganna og ég vona að þær viðræður geti farið í gang mjög fljótlega. Hinsvegar verður lögð höfuðáhersla á að ljúka byggingu heimavistarinnar þannig að ég get ekki lofað því að veitt verði fjármagn til Bóknámshúss á næsta ári”. Hvað með skólamál almennt hér í kjördæminu? „Ég hef í hyggju að heimsækja fræðsluskrifstofuna mjög fljótlega til þess að eiga viðræður við fræðslustjóra og heimsækja fleiri skóla hérum slóðir en það má segja að þetta sé mín fyrsta heimsókn í þetta kjördæmi”. Nú svo við víkjum að öðru. Þeirri kröfu hefur verið komið á framfæri að íbúar á Norðurlandi vestra fái svæðis- útvarp. Hvernig líst þér á þá hugmynd og munt þú beita þér fyrir því að þetta mál nái fram að ganga? „Mér líst vel á þessa hugmynd. Ríkisútvarpið hefur haft það á stefnuskrá að auka þjónustuna við landsbyggð- ina og fréttaflutning frá landsbyggðinni. Svæðisútvarp á Akureyri reið á vaðið og þar er komin allþokkaleg aðstaða bæði til útsendinga og til vinnuaðstöðu fyrir dagskrárfólk. Á Vestfjörðum hefur verið sérstakur frétta- ritari. Á Austfjörðum er kominn vísir að svæðisútvarpi en þar eru útsendingar að TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO: 98 Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1 108 Reykjavík Merkt Tónlistarkrossgátan Á skrifstofu F.á S. Frá vinstri Jón F. Hjartarson, Birgir ísleifur Gunnarsson, Björn Sigurbjörnsson og Snorri Björn Sigurðsson. vísu mjög takmarkaðar en fréttaflutningur er þar mjög til fyrirmyndar. Það sem menn kvarta undan hér er að fréttaflutningur héðan sé slakur og frekar neikvæður. Það sem ég sé fyrir mér er að hér verði komið fyrir fréttarit- ara sem hefði með þetta svæði að gera og sem gæti þróast smámsaman. En fjár- hagur ríkisútvarpsins er ekki mjög beisinn um þessar mundir og það berst í bökkum fjárhagslega. Ég mun þó ræða þetta við útvarpsstjóra þegar ég kem suður hvort hægt væri að lagfæra þjónustuna við þetta svæði”. Eitthvað að lokum? „Ég hef haft mjög gaman að þessari heimsókn og hafði mikið gagn af því að ræða við forsvarsmenn skólanna hér og bæjarfélagsins til að Finna hvar eldurinn brennur heitast á mönnum. Eitt atriði kom sérstaklega upp í viðræðum okkar en það er að menntamálaráðuneytið í sam- vinnu við bæjaryfirvöld hefur ákveðið að halda hér menningarhátíð eða M hátíð eins og það hefur verið kallað nú á sumri komanda. Þessar hátíðir hafa verið haldnar á Akureyri og á Isafirði og við ætlum að kanna hvort grundvöllur er fyrir að halda hana hér í sumar”. Launareikningur er kjarabót fyrir launþega Við bjóðum þeim fjölda einstaklinga sem leggja reglulega inn fé, tékka- reikning sem sameinar kosti veltureiknings og sparireiknings. Launareikningur er með 20% lág- marksávöxtun og í stað þess að reikna vexti af lægstu innstæðu á 10 daga tímabili, eru reiknaðir vextir af inn- stæðunni eins og hún er á hveijum degi. Handhafi tékkareiknings getur breytt honum í launareikning án þess að skipta um reikningsnúmer. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslunum BÚNAÐARBANKIÍSLANDS Útibúið á Sauðárkróki Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð TRAUSTUR BANKI

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.