Feykir - 03.02.1988, Blaðsíða 8
ÆEYKIW
3. febrúar 1988
4. tölublað, 8. árgangur
Feykir kemur út á miðvikudögum
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
TAXI
Sauðárkróki
Sími FARSÍMI
5821 985 20076
Steindir gluggar í
Reynistaðarkirkju
Fyrir tveim árum kom sú
hugmynd fram að láta gera
steinda glugga í Reynistaðar-
kirkju. Var fyrrverandi og
núverandi sóknarbömum henn-
ar gert viðvart til að kanna
hvort áhugi væri fyrir þessu
og jafnframt hvort einhverjir
vildu láta eitthvað af hendi
rakna í þessu skyni. Margir
hafa brugðist vel við og hafa
kirkjunni borist gjafir, áheit
og minningargjafir. Eru
gefendum færðar hjartanlegar
þakkir hér með.
I október s.l. var svo fyrsti
steindi glugginn settur í
kirkjuna. Er hann gerður af
hinum kunna listamanni
Leifi Breiðfjörð.
A þessu ári verða liðin 120
ár síðan Reynistaðarkirkja
var reist. Er fyrirhugað að
minnast afmælisins á sumri
komanda við messugjörð og
einnig er ætlunin að láta gera
tvo steinda glugga í viðbót.
Þeim sem vildu ljá þessu
máli lið er bent á að kirkjan
hefur spb. nr. 261062 í
Búnaðarbankanum á Sauðár-
króki. Athygli skal vakin á
að minningarkort Reynistaðar-
kirkju fást hjá frú Guðrúnu
Steinsdóttur á Reynistað og
frú Önnu Hjartardóttur
Víðigrund 6 Sauðárkróki.
I sóknarnefnd Reynistaðar-
kirkju eru: form. Hróðmar
Margeirsson Ögmundarstöðum,
ritari Ingibjörg Sigurðardóttir
Varmalandi, gjaldkeri Sólberg
Steindórsson Birkihlíð.
Skagafjörður:
Leíkskólí í
Fyrir um einu og hálfu ári
var stofnað foreldrafélag í
Hjaltadal. Helsta ástæðan
fyrir stofnun félagsins var
mikil þörf fyrir að koma upp
gæslu og leikaðstöðu fyrir
börn í sveitinni, en all margt
fólk vinnur ávallt að marg-
þættri starfsemi Bændaskól-
ans og voru dæmi þess að vel
menntað fólk einkum konur
gátu ekki sinnt þeirri vinnu
sem bauðst vegna þess að þær
voru bundnar heima yfir
börnum. Nú í vetur gengst
foreldrafélagið fyrir rekstri
leikskóla á Hólum sem í eru 8
börn á aldrinum tveggja til
sjö ára. Leikskólinn er
þannig rekinn að Bændaskólinn
leggur til endurgjaldslaust 40
fermetra húsnæði ásamt hita
og rafmagni. Hólahreppur
greiðir hluta af rekstrar-
kostnaði skólans en leik-
skólagjöld standa einnig
undir hluta af rekstrarkostnaði.
Auk þess veitti ríkið nokkurn
stofnstyrk til kaupa á
húsbúnaði, leikföngum og
ýmsum nauðsynlegum búnaði
sem tilheyrir starfsemi sem
þessari. Þeir Hjaltdælingar
voru svo lánsamir að fóstru-
menntuð kona Guðbjörg
Vésteinsdóttir var búsett í
sveitinni og hefur hún veitt
leikskólanum forstöðu, með
henni vinnur ein stúlka í
Hjaltadal
hlutastarfi Að sögn Guðbjargar
er þetta annar veturinn sem
leikskólinn er starfræktur og
hefur starfsemin gengið ágæt-
lega. Þó sé því ekki að neita
að full þörf sé fyrir rekstri
barnaheimilis í sveitinni sem
tæki börn allt niður í 6
mánaða gömul í pössun.
Aðstæður leyfi hinsvegar
ekki slíkt enn sem komið er.
Nokkuð er misjafnt hvað
bömin eru lengi í leikskólanum
á dag, en þau fara þó öll heim
í hádeginu þar sem ekki er
aðstaða til eldamennsku og
borðhalds í núverandi hús-
næði.
A-Hún:
Þorrablót
Um síðustu helgi var
þorrablót haldið á Blönduósi,
um næstu helgi verður blótað
á Skagaströnd og síðan
verður svokallað hreppablót
um miðjan mánuðinn. Mann-
fjöldi er jafnan á öllum
þessum blótum og mikil
vinna lögð í aðundirbúa þau.
M.a. semja menn oft annála
og setja atburði liðins árs á
svið á þann hátt sem hæfir á
þorrablótum.
Blönduós:
Hjálparsveit skáta kaupir snjóbíl
Hjálparsveit skáta á Blöndu-
ósi hefur nýlega fest kaup á
mjög öflugum snjóbíl. Bíllinn
er með húsi fyrir einn farþega
auk ökumanns og þannig
búinn tilbúinn til notkunar.
Oddvitínn:
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur.
Hins vegar ætla félagar í
hjálparsveitinni að smíða hús
fyrir 10 manns á bílinn og
munu þeir gera það að mestu
sjálfir á næstu 6-9 mánuðum.
Þá verður auðvelt að færa
sætin til þannig að pláss verði
fyrir tvennar sjúkrabörur.
Hjálparsveit skáta hefur
um árabil unnið öflugt starf
og lagt mikla áherslu á að
auka búnað sinn til björgunar-
og hjálparstarfa. Sveitin á nú
auk snjóbílsins öflugan bíl og
tvo snjósleða. Þá á hún mikið
af tækjum eins og t.d. búnað
til klifurs í klettum o.fl.
Peninga til þess að kaupa
tæki og búnað aflar sveitin
m.a. með sölu flugelda og
sölu grenis og jólatrjáa. Þá
eru félagarnir oft með
brauðsölu fyrir utan Félags-
heimilið á Blönduósi þegar
þar eru dansleikir. Þykir
mörgum gott að fá sér heitar
samlokur þá haldið er heim á
leið að loknum dansleik. Þá
hefur sveitin stundað fisksölu
o.fl.
Að sögn Jakobs Jónssonar
formanns Hjálparsveitarinnar
gat sveitin þegar greitt tvo
þriðju af kaupverði snjóbifreiðar-
innar. Þriðjungur kaupverðs
fékk sveitin að láni, en síðan
er eftir að kaupa efni í
yfirbygginguna og ýmsan
nauðsynlegan búnað í bílinn,
eins og t.d. fjarskiptatæki
o.fl.
Bíllinn er af gerðinni
LMC 1500. í honum er 6
strokka 120 ha AMC vél,
hann er sjálfskiptur og
gengur á 35-40 km hraða á
klst. Hann er 2,4 m á breidd
og 3,5 m á lengd. A honum
er snjótönn, 2,4 m á breidd
sem hægt er að skekkja á 6
vegu. Innflytjandi er Gísli
Jónsson og co í Reykjavík.
Þetta er annar bíllinn, sem
fluttur er til landsins af
þessari gerð.
Jakob Jónsson form. Hjálpar-
sveitarinnar vildi koma á
framfæri þakklæti til allra
sem stutt hafa sveitina til
þessarra kaupa, bæði með
vinnu og gjöfum. Þá vildi
hann þakka innflytjandanum
fyrir góða þjónustu og lét
þess getið að náðst hefðu
mjög hagstæðir samningar
um verð þessa bíls.
á Siglufírði
Hvernig líkar þér í skólanum?
Dagur Gunnarsson:
„Mjög vel. Kennararnir eru
ágætir”.
Már Örlygsson:
„Bara vel”.
Steindór Örvar Guðmunds
son:
„Svona sæmilega”.
Mikael Bjömsson:
„Það er allt í lagi að vera í
skólanum”.