Feykir


Feykir - 03.02.1988, Blaðsíða 6

Feykir - 03.02.1988, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 4/1988 Knattspyrna 2. deild: K.S. og TindastóO keppa Þann 21. maí n.k. ferfram fyrsta umferðin í Islandsmóti 2. deildar í knattspyrnu. Tvö lið af Norðurlandi vestra eru í 2. deild, KS og Tindastóll, og það eru einmitt þessi lið sem eigast við í fyrstu umferð. Leikurinn fer fram á Siglufirði og verður án efa mikill baráttuleikur því þegar þessi lið hafa keppt hefur ekkert verið gefið eftir. Fyrsti heimaleikur Tindastóls er gegn Víði 28. maí. Siglfirðingar hafa fengið Englending til að þjálfa liðið og heitir sá kappi Eddie May. Eddie er fyrrum atvinnu- maður í ensku knattspyrn- unni en hin síðustu ár hefur hann þjálfað á ýmsum stöðum. Eddie kemur til landsins í mars til að þjálfa liðið. Því er ekki að efa að Siglfirðingar koma sterkir til leiks í sumar. Bjarni Jóhannsson hefur verið endurráðinn þjálfari hjá Tindastóli, en eins og öllum ætti að vera kunnugt, komst Tindastóll upp úr 3. deild síðasta sumar og leikur í annað sinn í 2. deild. Arið 1984 varð Tindastóll í næst neðsta sæti og féll því aftur í 3. deild. Ekki er að efa að strákarnir hafa sett sér það markmið að gera betur nú og halda 2. deildarsætinu. Knattspyrna: Bjami frá í 8 vikur Bjarni Jóhannsson þjálfari Tindastóls í knattspyrnu varð fyrir því óhappi á Islandsmótinu innanhúss, sem fór fram í Laugardalshöll fyrir skömmu, að slíta liðbönd í innanverðu hnénu. Honum til happs sluppu krossbönd og liðþófí í hné frá meiðslum, en algengt er að þau slitni með. Bjarni verður frá æfingum og keppni sökum þess í 7-8 vikur. Feykir hafði samband við Bjarna á Landakotsspítala, þar sem hann liggur, ogsagði hann að skipt yrði um gifs á sér annað hvort í dag eða á morgun og hann myndi koma norður um næstu helgi. „Eg verð a.m.k. 6 vikur í því gifsi og eftir það tekur það þónokkurn tíma aðjafna sig og ná upp formi. Þetta kemur sér óneitanlega mjög illa fyrir mig sjálfan en ætti ekki að hafa áhrif á þjálfun liðsins, ég tek til við hana um leið og ég kem heim” sagði Bjarni. Aðspurður um hvort hann ætlaði sér að leika með liði Tindastóls í sumar sagði Bjarni að hann hefði ekki stefnt að því. ,,Ef svo yrði þá verður maður ekki leikhæfur fyrr en í júní, en ég á ekki von á að það komi til” sagði Bjarni að lokum. K.K. á Þann 1. janúar frumsýndi Hótel ísland eina glæsilegustu sýningu sem sett hefur verið upp hér á landi „Gullárin með KK”. Rakin er saga eins vinsæl- asta hljómsveitarstjóra allra tíma Kristjáns Kristjánssonar og hljómsveitar hans KK sextettsins í tali og tónum. Ein ástsælasta söngkona íslendinga Ellý Vilhjálms kemur nú fram í fyrsta sinn opinberlega í 26 ár og syngur flest af sínum vinsælustu lögum eins og „Vegir liggja til allra átta”, „Heyr mina Sýslunefndarsaga Skagfirðinga Fyrra bindi af tveim er komið út. Höfundur er Kristmundur Bjarnason, rithöfundur á Sjávarborg. Hér er um að ræða héraðssögu Skagfirðinga á starfstíma sýslunefndar frá 1874 til 1988. í bókinni eru um 100 Ijósmyndir, nær allar teknar á tímabilinu 1874 til 1940. Sögufélag Skagfirðinga býður félagsmönnum sínum bókina á hagstæðum kjörum, en auk þess fæst hún í bókaverslunum. Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu Hótel íslandi bæn”, „Brúðkaupið” og „Ég vil vera uppi í sveit” ásamt fleiri vinsælum söngvum. I sýningu þessari fer Ragnar Bjarnason einnig á kostum í lögum eins og „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig”, Just one of those night”, „Hún var með dimmblá augu dökka lokka” ásamt gömlum góðum Presley lögum. Stórhlutverk eru í höndum þeirra Bessa Bjarnasonar og Júlíusar Brjánssonar en þeir ásamt 50 leikurum, dönsurum og hljóðfæraleikurum túlka á frábæran hátt tímabil Gull- áranna sem var dans og músik frá morgni til kvölds. 14 manna stórhljómsveit undir stjórn Ólafs Gauks annast allan undirleik í sýningunni en rúsínan í pylsuendanum er sjálfur KK sextettinn sem ásamt því að spila stórt hlutverk í sýning- unni leikur fyrir dansi og eru söngvarar að sjálfsögðu Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarna- son. Höfundar Gulláranna eru þeir Gísli Rúnar Jónsson og Ólafur Gaukur. Leikstjóri er Sigríður Þorvaldsdóttir og höfundur dansa er Nanna Ólafsdóttir og búninga gerði Gerla. Ekkert hefur verið sparað til að gera söngleik þennan sem glæsilegastan og býður Hótel Island alla landsmenn velkomna. Miðasala og borða- pantanir eru alla virka daga í síma 68711 1 frá 9 - 19, allar nánari upplýsingar gefur Birgir Hrafnsson markaðs- stjóri í síma 621520. Flugleiðir: Helgarferðir vinsæll ferðamáti í vetur gerir innanlands- áætlun Flugleiða ráð fyrir nokkuð á annað hundrað flugferðum á viku frá Reykjavík til tíu staða á landinu. Frá þessum viðkomu- stöðum Flugleiða eru svo greiðar götur til yfir 30 annarra staða með samstarfs- flugfélögum og langferðabif- reiðum. I sambandi við þetta víðtæka samgöngunet hafa Flugleiðir í nokkur ár sett upp helgarferðir til Reykjavíkur og frá Reykjavík til margra staða á landinu. Helgarferð- irnar innifela flug báðar leiðir, gistingu í tvær nætur með morgunverði ásamt möguleikum á tveim gisti- nóttum til viðbótar. Fyrsti ferðadagur er fimmtudagur og síðasti ferðadagur mánu- dagur. Þessi ferðamáti á miklum vinsældum að fagna og sérstaklega hefur janúar- tilboð, sem er í gildi frá 7. janúar til 9. febrúar ár hvert, auðveldað ferðalög á þessum árstíma. Helgarferðir eru kjörinn ferðamáti til þess að lyfta sér upp í skammdeginu, heim- sækja vini og kunningja og njóta skemmtana og menn- ingarviðburða. Samstarfshótel Flugleiða í helgarferðum til Reykjavíkur eru: Hótel Borg, Hótel Esja, Holiday Inn, Hótel Lind, Hótel Loftleiðir, Hótel Óðinsvé, Hótel Saga.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.