Feykir


Feykir - 05.10.1988, Síða 3

Feykir - 05.10.1988, Síða 3
35/1988 FEYKIR 3 Hofsós: Kaupfélagið tekur við Sólbæ Fyrsti „pöbbinn”? Nýlega hætti Bjarni Ragnars- son rekstri söluskálans Sól- bæjar á Hofsósi og hefur kaupfélagið tekið við rekstr- inum. Verður skálinn fjar- lægður, bensínafgreiðslan færð aft kaupfélaginu og varningn- um komið fyrir í afmörkuðu rými inni í verslunarhúsi þess. Að sögn Gísla Einarssonar nýráðins útibússtjóra er meiningin að bensínafgreiðsla verði opin til ca. 21 á kvöldin alla daga og þjónusta við viðskiptavini aukin þannig að um nokkurs konar kvöldsölu verði að ræða. Algengustu dagvörur svo sem brauð og mjólk verða til staðar í kvöldsölunni fvrir utan búðartíma. Er þetta svipað fyrirkomulag og í einni verslun KEA á Akureyri. Gísli sagði að rými í versluninni hafi verið gott fyrir og veitingasalan þrengdi því ekkert þar að. Hann sagðist hafa ýmislegt á prjónunum s.s. að auka fjölbreytni í matvöru og koma á fót góðri pöntunar- þjónustu varðandi sérvöru, til að svara því að ákaflega erfitt sé að liggja með fjölbreytta sérvöru fyrir ekki stærri markað en Hofsós og sveitirnar í kring. Tveir ungir Sauðkrækingar eru nú komnir í startholurnar með að opna fyrsta „pöbbinn" á Króknum. hað eru þeir .lósep Svanur Jóhannesson og Kristján Örn Kristjánsson sem tekið hafa Sælkerahúsið, Aðalgötu 15 á leigu. Þar var áður til húsa Pizzu-og íshúsið. en Omar Hólm og frú hafa hætt rekstrinum. Gekk Baldur Ulfarsson eigandi Sæl- kerahússins frá samningi við þá Svan og Kristján um helgina. sem gildir til áramóta í fyrstu. Nýi veitingastaðurinn, sem opnaður verður á næstunni, hel'ur hlotið nafnið Nvi Sælkerinn. Að sögn Jóseps Svans er meiningin að bjóða upp á allt milli himins og jarðar í mat og drykk, og nokkuð sem heitir „óvæntar uppákomur”. Sagðist hann ekki liafa trú á öðru en þeir félagar þreyjuðu þorrann og góuna þar til sala bjórsins verður levfð í mars á næsta ári. Hver er maðurinn? Á árunum 1982 til 1986 birti Feykir óþekktar myndir úr Héraðsskjalasafni Skag- firðinga. Urðum við þess varir að ýmsir höfðu gaman af að spreyta sig á myndgát- um þessum og bárust safninu upplýsingar, sem leiddu til þess að um 30% myndanna var nafngreindur. Var það hreint ekki slæmur árangur og gefur ástæðu til áframhalds. Er bæði ljúft og skylt að þakka öllum sem glímt iiafa við nafnagátur þessar og gjört sér ómak að hafa samband við Safnahúsið og veita upplýsingar. Nú hefur ritstjóri Feykis veitt góðfúslegt leyfi sitt til að halda þessum myndbirtingum áfram og verður þá tekið til þar sem frá var horfið á sínum tíma. Munu myndir þessar væntanlega birtast einu sinni til tvisvar í mánuði.ef rými leyfir, og förum við enn á fjörur lesenda í þeirri von að þeir dugi okkur sem fyrr. Fyrir nokkru gáfu hjónin á Reynistað á annað hundrað myndir til Héraðsskjalasafnsins. Nokkur hluti þeirra var ómerktur og munum við birta í næstu blöðum úr því safni. Myndirnar að þessu Nr. 155 Nr. 156 <í sinni eru væntanlega hún- vetnskar eða skagfirskar, allar teknar af Arnóri Egilssyni ljósmyndara, sem kenndi sig við Hæli og raunar fleiri staði. Þeir sem kunna einhver skil á þessum myndum eru vinsamlegast beðnir að koma vitneskju sinni til Safnahúss- ins á Sauðárkróki, sími 95- 5424 H.P. Kynntu þér helgarpakka Flugleiða innan- lands hjá næstu söluskrifstofu félagsins, um- boðsmanni eða ferðaskrifstofu. FLUGLEIÐIR I Nr. 157 Nr. 158 Taktu nú vel eftir! Enn erum við með frábær helgartilboð Lambahamborgarahryggir kr. 558.- kg Nautagúllas kr. 660.- kg Nautasnitsel kr. 660,- kg Stórar Kjarna pizzur kr. 329.- stk. Kindahakk kr. 300.- kg ÓDÝR REYKTUR LAX " Salöt - Grænmeti - Ávextir^ Nýkominn hákarl MIKIÐ ÚRVAL AF ÖÐRUM MATVÖRUM ALLT ISALINN OG LEIKFIMINA CONVERSE körfuboltaskór Toppurinn í f%#P Verslunin TINDASTÓLL I wm —I Hólavegi 16 - Sími 5119

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.