Feykir - 05.10.1988, Blaðsíða 5
35/1988 FEYKIR 5
byrjaði að ferðast, en var þá
kominn á síðasta snúning,
orðinn 75 ára, þegarégfórað
fara í bændafarirnar.
Þá var komið að lokum
þessara rúmstokksumræðna.
Báðir voru þeirgamlingjarnir,
Óli 89 ára og Tryggvi 85 í
næsta mánuði, sammála um
að nægir peningar væru til í
þjóðfélaginu, og Óla fannst
það ansi einkennilegt að 3
Islendingar þar af einn
Skagfirðingur ættu meira en
hálfan milljarð, þegar aðrir
sæju ekki út úr skuldunum.
Það fór ekki svo að menn
færu alveg þurrbrjósta frá
Tryggva frekar en á bannár-
unum þegar hann bruggaði
sinn landa þrátt fyrir áhættu
sem því fylgdi og hann fékk
að kenna á, þegar hann varð
þrívegis uppvís að bruggun
landa eins og frægt erorðið.
Hann teygði sig inn í
fataskápinn og náði í fleyg af
hvíta hestinum. Ekki er
ólíklegt að gömlu bændun-
um hafi þá fundist þeir
standa undir réttarveggnum
en ekki við fataskápinn.
Altént sagði Óli: „Þetta er
allt í lagi, ég er á hesti,” og
hestaskálin var drukkin.
„Þetta var bara eins og strákarnir væru að versla meðeitthvert
glingur”.
Gott að komast
í veislu
Blm: En hefur þú einhverjar
lausnir á efnahagsvandanum?
Óli: Talvan ræður nú
sjálfsagt orðið mestu hérna í
þjóðfélaginu. Eg býst nú
varla við að ég kunni að mata
hana frekar en þingmennimir.
En mér hefur flogið í hug
gömlu kreppulánin sem
tíðkuðust í kreppunni. Það
þýddi að skuldirnar voru
strikaðar út með einu
pennastriki.
T: Jáhá, þeir eru komnir
með þau núna. Það varverið
að tala um það í fréttunum
núna klukkan 4. Stefán
Valgeirsson var að segja að
þeir væru búnir að setja sig
yfir kreppulánasjóðinn. Hann
fékk víst ekkert annað og var
bara ánægður með það. (Hér
átti Tryggvi örugglega við
nýjan sjóð sem stofnað var til
við myndun nýju stjórnar-
innar og ýmsir hafa viljað
kalla „bjargráðasjóðinn”, innsk.
-þá).
Óli: En spáðu í það ef
Steingrími tekst nú að fækka
ráðherrunum, þá fækkar
veislunum um leið, þeim
ófögnuði sem Tryggvi er að
vitna í. Annars fyndist manni
örugglega gott að komast í
veislu.
Hún er ekki heil
í roðinu
Blm: Þegar þú hringdir í
mig um daginn Tryggvi,
talaðir þú um matarskattinn
sem aðalmeinsemdina og
nefndir eitthvað fleira?
„Já, hann er meinið. Þeir
eiga að fella hann niður og
líka hætta við 25% virðis-
aukaskattinn sem þeir hafa
talað um að setja á um næstu
áramót. Svo eiga þeir að
hætta með svínin og draga
alveg niður í refnum og
minknum líka.”
Blm: En nú hefur Flosa
gengið svo vel að selja
svínakjötið væri ekki verið að
hegna honum með þessu?
T: Flosa? Ég veit ekkert
hvað hann hefur verið að
gera. Ja, allavega ætti að
setja kvóta á það. Það hefur
verið framleitt svo mikið af
svínakjöti og alifuglakjöti að
það er engin hemja. Það á að
draga úr þessari neyslu svo
að fjallalambið nái sér á strik
aftur. Svo vil ég endilega láta
skattleggja gjaldeyri sem fer
út úr landinu, þ.e.a.s.
ferðalögin til útlanda.
Blm: Hvernig lýst ykkur
svo á nýju stjórnina? Haldiði
t.d. að huldumennirnir skili
sér?
T: Ég held að hún ráði
aldrei við þann vanda sem
við þeim blasir. En það geta
sjálfsagt verið huldumenn
bæði í Alþýðubandalaginu
og Borgaraflokknum. Það er
yfirlýst að hún Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir er ekki
alveg heil í roðinu, sé heldur
á móti Albert. Ég er hræddur
um að lítið sé treystandi á
sumt af þessu fólki. Það séu
fleiri en hún sem geta sagt;
stopp ég ræð mér sjálfur. Það
kæmi mér ekki á óvart þó
kommarnir hlypu útundan
sér. Og svo hugsa ég nú að
vinátta Steingríms og Jóns
Baldvins sé bara á yfirborðinu.
Og svo er það hestaskálin.
Óli: Það er nú ábyggilega
kapp í þeim að rétta þetta af.
Ég hef trú á þessari stjórn.
Reynslan er búin að vera svo
rík fyrir þá núna undanfarið.
Ég hef trú á að hún sitji út
tímabilið. En þetta verður
erfitt. Það er ekki bara einn
laus endi, heldur er þetta allt
meira og minna trosnað, og
það verður ekkert íhlaupa-
verk að tjasla þessu saman.
Á réttri leið á
síðasta snúning
En í sambandi við það sem
Tryggvi var að tala áðan um
skattinn á ferðalögin. Ætli
þetta sé ekki bara öfund í
honum af því hann er orðinn
svo gamall. Ef ég væri ungur í
dag vildi ég gjarnan ferðast.
Ég var á réttri leið þegar ég
Rynkeby
GBAPe
•tynkeby
ANANAS
Rynkeby - ávaxtasafi
Hollur - nærandi - bragðgóður
Tilboðsverð!
1 líter appelsínusafi kr. 69-
1 líter ananassafi kr. 63-
1 líter grapesafi kr. 77-
íkdgfírðingabúd
Þú þarft ekki annaö!