Feykir


Feykir - 31.05.1989, Side 1

Feykir - 31.05.1989, Side 1
31. maí 1989, 20. tölublað, 9. árgangur Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra @ rafsja hf jdcttajL Sérverslanir með raftæki Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Frumvarp til Alþingis: Varaflugvöllurinn: Höfundar skýrslunnar mæta Áshildarholt og á bæjarráðsfund á morgun Sjávarborg inn í lögsögu Sauðárkróks Fundur bæjarráðs Sauðár- króks á morgun (fímmtudag) verður trúlega með nokkru öðru sniði en vant er, þar sem á fundinn mæta flugmálastjóri ásamt nokkrum höfundum varaflugvaHarskýrshnnar síðustu, til skrafs og skoðanaskipta, en bæjarstjórn Sauðárkróks hefur eins og kunnugt er gagnrýnt nokkuð vinnubrögð við gerð skýrslunnar. Samgöngumálaráðherra Steingrímur Sigfússon ætlar sem sagt að standa við þau fyrirheit sem hann gaf á fundi með bæjarstjóm Sauðár- króks í vor, þegar hann lofaði að beita sér fyrir því að höfundar skýrslunnar kæmu norður til viðræðna við heimamenn. Fastlega má búast við snörpum rökræðum á fund- inum og trúlega koma bæjarráðsmenn vel undir- búnir til hans, m.a. er vitað að bæjarstjóri hefur beitt sér fyrir verkfræðilegri úttekt á magntölum o.fl. sem skýrslan hafði að geyma. Þá má einnig nefna að fyrirliggjandi eru gögn um kostnað vegna byggingar Sauðárkróksflugvallar á sín- um tíma, sem framreiknaður er um 94 milljónir. Að því gefnu hafa menn gefið sér að lenging vallarins í 2700 metra muni ekki hleypa heildar- kostnaðinum yfir 200 mill- jónir. I nýjustu skýrslu er hann hins vegar talinn verða um 700 milljónir og þá miðað við sömu gerð Egilsstaða- flugvallar. Sauðkrækingar vilja hins vegar meina að aðstæður á þessum tveim stöðum séu alls ekki sam- bærilegar. Eins og kunnugt er var Sauðárkrókur í tveim fyrri skýrslum talinn vænlegastur til staðsetningar varaflug- vallar fyrir millilandaflug hér á landi. Á síðustu dögum Alþingis nú í vor var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögsögu- málum Sauðárkróks og Skarðs- hrepps. Felur það í sér að mörk lögsagnarumdæmis sveitar- félaganna breytist þannig að jarðirnar Sjávarborg og Áshildarholt í Skarðshreppi skuli vera innan lögsögu Sauðárkrókskaupstaðar. Flutningsmenn fmmvarpsins eru alþingismennirnir Páll Pétursson, Pálmi Jónsson og Jón Sæmundur Sigurjóns- son. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að Sauðárkrókur greiði Skarðshreppi bætur vegna rýrnandi tekna og skertra möguleika til atvinnu- rekstrar. Hafi ekki tekist samkomulag innan sex mán- aða frá gildistöku laganna skal skipa gerðardóm til ákvörðunar bóta. Tilnefni þá aðilar sinn manninn hvor og Hæstiréttur oddamann sem verði formaður dómsins. Lögin öðlist gildi 1. janúar 1991. I greinargerð með frum- varpinu segir að það sé flutt að beiðni Sauðárkrókskaup- staðar. Undanfarin ár hafí farið fram viðræður milli sveitarfélaganna um breyt- ingu á lögsögumörkum, sem enn hafí ekki leitt til niðurstöðu. Þrír nýir prestar í Húnaþingi Sauðárkrókur: Bærinn kaupir af kaupfélaginu í Gamla bænum Þrír nýir prestar munu ráðast til starfa í Húnaþingi í sumar. Þegar hefur prestur verið kallaður til starfa i eitt prestakallanna, Prestbakka við Hrútafjörð. Það er séra Ágúst Sigurðsson, er láta mun af störfum sem prestur Islendinga í Kaupmannahöfn 15. júlí nk. Breiðabólstaður í Vestur- Hópi virðist eftirsótt presta- kall, því þangað sóttu þrír: Séra Bjarni Th. Rögnvalds- son, er þjónað hefur á Prestbakkka undanfarið, Krist- ján Björnsson guðfræðingur og blaðamaður og séra Hörður Þ. Ásbjörnsson. Séra Róbert Jack hefur þjónað Breiðabólstað um langa tíð, með aðsetri á Tjörn, en séra Róbert er nú að láta af störfum fyrir aldurs sakir eftir langa og dygga þjónustu á Vatnsnesinu og nágrenni. Stína Gísladóttir, sem þjónað hefur á Siglufirði síðasta árið í leyfi séra yigfúsar Þórs og leysti séra Árna á Blöndusósi af áður, er einn umsækjanda um Ból- staðahlíðarprestakall. Prest- laust hefur verið í Bólstaðahlíð síðustu árin, alveg síðan séra Baldur Sigurðsson fór þaðan og gerðist prestur á Hólmavík. Trúlega fagna Húnvetningar komu Stínu, en hún átti vinsældum að fagna þann tíma sem hún þjónaði í leyfí séra Árna. Samningar hafa tekist um kaup Sauðárkróksbæjar á nokkrum húseignum og lóðum Kaupfélags Skagfirðinga í norðurbænum. En þessi hús verða að hopa vegna nýs skipulags að Gamla bænum sem gerir ráð fyrir byggingu íbúðarhúsnæðis á lóðunum. Kaupverð er rúmlega 32 milljónir sem greiðist með jöfnum greiðslum á 6 - 10 árum á Iánskjörum sambæri- legum verðtryggðum útlán- um Búnaðarbanka. Forráða- menn beggja aðila hafa lýst yfir ánægju sinni með samninginn og telja hann báðum aðilum til hagsbóta. Um er að ræða húseignina Freyjugötu 9, þar sem bíla- og vélaverkstæðið er til húsa. Verð 8 milljónir og afhendist 1. maí 1994. Vörugeymsla neðan Freyjugötu, verð 8,4 milljónir, afhendist l.maí 1994. Vörugeymsla neðan Aðalgötu, afbendist 1. maí 1992. Komi til þess að kaupandi þurfi á eigninni að halda fyrir þann tíma vegna byggingarframkvæmda, skal hún afhent með sex mánaða fyrirvara. Verð 8 milljónir. Loks eru það lóðir að Freyjugötu 28, Skagfiiðinga- braut 5b og lóð kolageymslu við Aðalgötu er komi til afhendingar strax við undir- skrift samnings. Verð 8 milljónir. Seljandi hefur eignirnar leigulaust til af- hendingardags, en greiðir reksturskostnað, annan en fasteignagjöld. Það var Matthildur Hjálmarsdóttir Bergsstöðum V-Hún. sem hlaut hæstu einkunn frá Bændaskólanum á Hólum að þessu sinni. Hér sést hún 'veita viðtöku bókaverðlaunum úr hendi Hjartar Þórarinssonar formanns Búnaðarfélags íslands. Nánar um skólaslitin á bls. 3

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.