Feykir


Feykir - 31.05.1989, Page 2

Feykir - 31.05.1989, Page 2
2 FEYKIR 20/1989 Staðsetning varaflugvallar ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkrókur ■ SÍMI: 95-5757 95- 6703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús Ólafsson ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Haukur Hafstað sími 95-5959 ■ ÁSKRIFTAR- VERÐ: 80 krónur hvert tölublað; í lausasölu 80 krónur ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. Auglýsing í Feyki borgar sig Þá er komið að því, að höfundar skýrslunnar frægu um staðsetningu varaflugvallar komi norður til viðræðna við bæjaryfirvöld á Sauðárkróki, eins og samgönguráðherra lofaði á fundi í Miðgarði í vor. Alls hafa verið gerðar þrjár skýrslur um staðsetningu varaflugvallar fyrir millilandaflug hér á landi. Eins og margir þekkja er þessi nýjasta frábrugðin hinum fyrri að því leyti, að þar er Sauðárkrókur ekki talinn vænlegastur fyrir völlinn, heldur Egilsstaðir. Aðaldalur kemur svo næstur í röðinni, ogefum herflugvöll yrði að ræða, er sá völlur þar efstur á blaði. Sauðkrækingar hafa gagnrýnt margt sem fram kemur í þessari síðustu skýrslu og vinnubrögð við gerð hennar, t.d. varðandi veðurfarsþáttinn og útreikninga á kostnaði við lengingu vallarins, en þar er stuðst við gerð Egilsstaðaflugvallar. Og lái þeim hver sem er, því vitanlega er fáránlegt af höfundum skýrslunnar að bera þessa tvo staði saman, þar sem aðstæður eru svo gjörólíkar. Þá má einnig segja, að bæjarstjórn Sauðárkróks hafi gert mistök. Hún hefði átt að láta liggja fyrir nefndinni, er vann skýrsluna, gögn um gerð Sauðárkróksflugvallar á sínum tíma, með framreiknuðum kostnaði, en ekki láta framkvæma þessa útreikninga eftir á eins og gert var. Þessar sérstöku aðstæður við Sauðárkróks- flugvöll, eða Alexandersflugvöll eins og hann heitir nú, byggjast á því, að efnið er alveg við völlinn, sandur úr framburði Héraðsvatna sem á sínum tíma var dælt inn á vallarstæðið, með litlum tilkostnaði. Einnig er tiltölulega stutt í annað efni í völlinn. Framreiknaður kostnaður við gerð vallarins á sínum tíma er um 94 milljónir, og á grundvelli þess er talið alveg af ogfrá.aðheildarkostnaður við gerð 2700 metra flugbrautar fari yfir tvö hundruð milljónir. I skýrslunni er gert ráð fyrir, að þessi braut kostaði 700 milljónir og þar miðað við gerð Egilsstaðaflugvallar. Reiknings- skekkjan er því ansi stór. Samt sem áður mun kostnaðurinn við gerð vallanna trúlega ekki ráða endanlegri staðestingu varaflugvallarins. Ætla má, að það verði fyrst og fremst öryggi farþegaflugsins sem ræður ferðinni. Þá hlýtur einnig að verða tekið mið að því, hvernig eigi að hýsa farþega úr stórum farþegaþotum. Segjum svo, að veðurútlit sé þannig að gera megi ráð fyrir, að þotan verði að hafa talsverða viðdvöl á vellinum. Vitað er, að hótelrými er hvorki til staðar fyrir austan né norðan, því yrðu farþegarnir ekki öfundsverðir að sitja í tíu tíma í áætlunarbíl frá Egilstöðum til Reykjavíkur og yfir marga snjóþunga fjallvegi að fara á þessari leið, en þaðan er rúmlega helmingi lengra en leiðin Sauðárkrókur-Reykjavík. Hvammstangi: Grunnskólanum slitið Sl. fimmtudag var Grunn- skóla Hvammstanga slitið í 79. sinn. I ræðu sinni gat Flemming Jessen skólastjóri þess að þetta skólaár hafi ekki gengið áfallalaust fyrir sig og stórviðri og verkföll sett mark sitt á skólastarfið, eins og viðar á landinu. Auk einkunnabóka og viðurkenninga fyrir námsár- angur voru veittar viður- kenningar fyrir afrek á íþróttasviðinu. Guðjónsbikar- inn fyrir bestan árangur í minningarhlaupi Guðjóns Páls Arnarsonar hlaut Guð- mundur Valur Guðmunds- son og Guðmundur hlaut einnig bikar fyrir að vera skákmeistari skólans. Þá hlaut skólinn sjálfur tvo bikara, annan fyrir sigur í víðavangshlaupi grunnskóla í V-Hún og hinn, sem sparisjóðurinn gaf, fyrir sigur í skákkeppni við Laugabakkaskóla. LRÁ Borgarverk með lægsta tilboð í klæðningar Borgarverk hf. frá Borgarnesi var með lægsta tilboð í klæðningar á Norðurlandi Skagfiröingar Húnvetningar Styrkjum norðlenska byggð Verslið á heimaslóð Feykir vestra, en tilboð voru opnuð í fyrradag. Leggja á bundið slitlag á alls 29 km á "ýbyggðum vegum í kjördæm- inu í sumar og einnig leggja yfir alls sex kílómetra af gömlu slitlagi. Tilboð Borgarverks hljóða upp á 29,9 milljónir. Klæðning hf. frá Reykjavík kom næst með 31,8 og Hagvirki þar á eftir með 31,9 milljónir. Kostnaðaráætlun vegagerðar- innar var 36,8 milljónir. Eftir er að yfirfara tilboðin. Þess má geta að lægstbjóðandi, Bt)rgarverk, hefur unnið talsvert að klæðingaverkefn- um l'vrir vegagerðina. Hver er maðurinn? Ábending kom frá Héraðs- við kærlega veittar upplýs- skjalasafninu á Blönduósi ingar. um myndir nr. 169. og 170. Að þessu sinni eru allar Nr. 169 er trúlega af Jóni myndirnar frá fyrsta áratug Pálmasyni á Þingeyrum, en þessarar aldar, teknar af óvissara er með mynd nr. Daníel Daviðssyni ljósmyndara 170. Er verið að leita nánari á Sauðárkróki. Og við leitum staðfestingar, en allar ábend- enn lausna frá lesendum. ingar eru vel þegnar. Þökkum Síminn er 95-5424 í Safna- húsinu á Sauðárkróki. Nr. 173 Nr. 174 Landsmót UMFÍ ’93 á Laugarvatni Á stjórnarfundi í UMFÍ nýlega var afráðið að næsta Landsmót UMFÍ fari fram á Laugarvatni sumarið 1993 og Héraðssambandinu Skarphéðni falið að sjá um framkvæmd mótsins. HSK hafði sent stjórn UMFÍ bréf þar sem þessari hugmynd var komið á framfæri, en svo virtist sem mótshald 1993 væri komið í óefni þegar Austfirðingar hættu við og Skagfirðingar afþökkuðu. Stjórn UMFÍ fagnaði þessari hugmynd og sam- þykkti eftirfarandi ályktun: „Stjórn UMFÍ fagnar um- sókn HSK um landsmót 1993. Sömuleiðis fagnar stjórn UMFI þeirri hugmynd að Laugarvatn verði móts- staður og telur að með því yrði nauðsynlegri uppbygg- ingu á Laugarvatni flýtt í þágu íþróttakennaraskólans og íþróttamiðstöðvar íslands”. Landsmót UMFí var haldið á Laugarvatni árið 1965 af HSK í mikilli hitabylgju og glampandi sól. Mótið er ógleymanlegt þeim um það bil 25.000 áhorfendum sem það sóttu og tókst mjög vel.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.