Feykir


Feykir - 31.05.1989, Side 3

Feykir - 31.05.1989, Side 3
20/1989 FEYKIR 3 Bændaskólanum á Hólum slitið Bændaskólanum á Hólum var slitið við hátíðlega athöfn í Hóladómkirkju sl. laugardag. I skólanum voru 49 nemendur í vetur og luku 47 þeirra prófum. Tveir urðu að fresta prófum vegna verkfallsins. Sautján búfræðingar út- skrifuðust frá skólanum að þessu sinni, fimm af almennri búfræðibraut og 12 af sporðbraut eins og náms- braut fiskeldisnema er kölluð. Hæstu burtfarareinkunn frá skólanum hlaut Matthildur Hjálmarsdóttir Bergsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu, nem- andi á almennri búfræði- braut, 9,6 og er það með hæstu einkunnum sem gefin hefur verið við skólann. Hlaut Matthildur verðlaun frá Búnaðarfélagi íslands fyrir bestan námsárangur og einnig sópaði hún að sér verðlaunum sem veitt voru fyrir árangur í einstökum greinum. Aðra hæstu einkunn fékk Ólafur Guðmundsson 9.0, en hann stundaði nám á sporðbraut. Hlaut hann verðlaun frá Veiðimálastofnun fyrir bestan árangur í fiskiræktarnámi. í máli Jóns Bjarnasonar skólastjóra kom fram að í skólastarfi í vetur var lögð aukin áhersla á umhverfis- fræðslu og einnig tölvunám og hrossarækt. I sumar verður áfram unnið að endurbótum á húsnæði skól- ans og lagfæringum á næsta umhverfi. Sveinbjörn Eyjólfs- Útskriftarnemar ásamt Jóni Bjarnasyni skólastjóra. son fulltrúi í landbúnaðr- ráðuneytinu flutti skólanum kveðjur frá landbúnaðarráð- herra og Hjörtur E. Þórarins- son á Tjörn sömuleiðis frá Búnaðarfélagi íslands. Blönduós... í lok starfsvikunnar var haldin grillveisla, sú fyrsta í bænum í sumar. Starfsvika í Grunnskólanum Mikið var um að vera hjá nemendum 5. og 6. bekkjar Gagnfræðaskólans á Sauðár- króki í síðustu viku. Eftir að 6. bekkur kom heim úr fjögurra daga skólaferðalagi og nemendur úr 5. bekk luku vorprófum voru haldnir íþrótta- og útivistardagar. Flestir kennarar skólans komu við sögu sem leiðbein- endur, mælingamenn og verkstjórar, en skipulag framkvæmda var á herðum þriggja íþróttakennara skól- ans. Það sem m.a. var boðið upp á var kúluvarp, bolta- leikir, ratleikir, flaggaleikur, langstökk og einnig var farið í siglingu á kappróðrabátum sjómannadagsráðs. Alla dag- ana var nemendum boðið að fara ókeypis í sund og var það nýtt óspart. A þriðjudaginn komu gestir frá Olafsfirði, nem- endur úr 5. bekk og tóku þeir þátt í ýmsum leikjum. Síðasta daginn var farið í gönguferð, hjólieiðaferð, reið- túr og nokkrir nemendur fóru í golf. Þegar heim að skólanum var komið var boðið til grillveislu þar sem nemendur sáu um að matreiða. Allt það sem boðið var upp á var gefið af Kaupfélagi Skagfirðinga, pylsur, drykkur o.fl. og Sauðárkróks- bakarí gaf pylsubrauð. Skólasq'óri Gagnfiæðaskólans Björn Sigurbjömsson vill koma á framfæri bestu þökkum til þeirra er gáfu veitingar og einnig færa nemendum og kennurum bestu þakkir fyrir þann áhuga sem ríkti þessa daga. Gleði og ánægja geislaði í fari þeirra er nærri komu, sem sýndi að vel tókst með þessa nýbreytni í skólastarfinu. Á fundi bæjarráðs var rekstraryfirlit fyrstu fjóra mánuði ársins skoðað. Ákveðið var að athuga frekar um sparnaðarleiðir, m.a. sam- þykkt að stefna á að kennsla í handavinnu hefjist næsta haust í húsnæði bæjarins. Var bæjarstjóra falið að vinna að framgangi málsins og segja upp húsnæði því í Kvennaskóianum, sem leigt hefur verið til þessa. Lionessur hafa fengið Sigurð Skúlason, skógarvörð til að athuga heppilegt svæði fyrir skógrækt. Álitlegasta svæðið að hans dómi var hægra megin við afleggjara að brúnni út í Hrútey. Samþykkt var að verða við ósk Lionessuklúbbsins Liljur að þær fái þetta svæði og var bæjarstjóra falið að gangafrá samkomulagi við þær um svæðið, að höfðu samráði við arkitekt og tæknifræðing bæjarins. I byggingarnefnd urðu talsverðar umræður um lóða- umsókn að Árbraut 23. Þar kom fram að Ámi Ragnars- son hefur verið ráðinn til að annast skipulagsmál bæjar- ins, þar á meðal endurskoð- un aðalskipulags. Var því tekið undir bókun bæjar- stjórnar þess efnis að vísa erindinu til endurskoðunar aðalskipulags. Á fundi hafnarnefndar lýsti Kári Snorrason for- maður nefndarinnar yfir ánægju sinni með að nú skuli vera í hafnaráætlun gerð brimvarnargarðar á árunum 1990-1992. Ef þetta gengi upp virtist unnt að keyra út í garðinn 1991, að því til- skyldu að eftirstöðvamar yrðu greiddar 1992,, ef um semdist við verktaka. Þá var rætt lítilsháttar um sjóvömina vestan Blöndu sem ekki er beint á verksviði hafnarnefndar. Leist mönn- um vel á ef unnt væri að ljúka þeim. Auglýsing um greiðslu fasteignagjalda í vanskilum árið 1989 og eldri til Sauðárkrókskaupstaðar Með vísan til 1. gr. laga nr. 49 frá 1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks, er hér með skorað á þá gjaldendur á Sauðárkróki, sem enn eiga ógreidd fasteignagjöld árið 1989 og eldri aðgreiðagjöldin ásamtáföllnum dráttarvöxtum og kostnaði, nú þegar. Verði gjöldin ekki greidd án tafar og í síðasta lagi 30 dögum eftir birtingu þessarar auglýsingar, verður beðið um nauðungar- uppboð á viðkomandi fasteignum til fullnustu á gjöldunum. Sauðárkróki 31. maí 1989 Innheimta Sauðárkróksbæjar

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.