Feykir - 31.05.1989, Page 4
4 FEYKIR 20/1989
Gústi á Geitaskarði
hyggur á ræktun
skoskra ánamaðka
Sjúkrahúsinu
gefin baðrúm
SI. miðvikudag var afhent í
Sjúkrahúsinu á Hvammstanga
sérhannað sjúkrabað að verð-
mæti um 600 þúsund króna.
Það var Kvenfélagasamband
Vestur Hún ásamt sjö
kvenfélögum i heilsugæslu-
umdæmi Hvammstanga sem
gaf.
Sjúkrarúmið er með lyftu-
búnaði og getur „baðarinn”
stillt á þá hæð sem hentar
honum. Þá átti sjúkrahúsið
fyrir burðargrind, sem er
þannig úr garði gerð að hægt
er að láta hana síga ofan í
baðið með sjúklingunum. Á
myndinni sést hvar Matthías
Halldórsson prófar tækin,
sem sjúklingur.
LRA
Ágúst Sigurðsson bóndi á
Geitaskarði í Langadal er í
þann veginn að byrja tilraunir
með nýstárlega búgrein, ána-
maðkarækt. Hugmyndin kvikn-
aði hjá honum þegar út kom
fyrir nokkrum árum á vegum
Stéttarsambands Islands bæk-
lingur þar sem fitjað var upp á
ýmsum aukabúgreinum sem
bændur gætu nýtt sér til að
svara samdrætti í hefðbundn-
um búgreinum. Ymsar hug-
myndir sem þar komu fram
þóttu af mörgum fráleitar,
m.a. ánamaðkaræktin, en
Gústi á Geitaskarði var á öðru
máli.
Á síðasta vori gerði Ágúst
sér ferð til Danmerkur til að
kynna séránamaðkaræktþar
í landi. M.a. hjá ánamaðka-
ræktanda á Sjálandi, Egon
Larsen að nafni, sem talinn er
hafa náð hvað lengst í
ræktuninni í Danmörku.
Danir rækta maðkana í
beðum, 60 cm djúpum, sem í
er blanda af hálmi og
húsdýraáburði, gildir einu
frá hvaða húsdýrum. Beðin
eru lagskipt, skítur og
hálmur til skiptis í 10 - 12 cm
lögum. I nýjasta hefti
búnaðarblaðsins Freys er
viðtal við bóndann á Geita-
skarði, sem segist ætla að
reyna fyrir sér í ánamaðka-
ræktinni:
,,Eg er búinn að kaupa
kassa sem ég ætla að nota í
þessu augnamiði. Menn
mega ekki gleyma því að hér
á landi eru aðstæður allt
aðrar en á meginlandinu. Þar
eru kannski 100 metra löng
beð úti, en hér yrðum við að
hafa þau inni og tryggja að
ekki frysi. Maðkurinn þolir
lítið frost í stuttan tíma.
Mín hugmynd er að rækta
ánamaðk til sölu sem agn. Eg
ætla að fá nokkur hundruð
skoska maðka, ánamaðka
sem eru mjög algengir hér,
a.m.k. hjá veiðimönnum, og
búa þeim æskilegt umhverfi
eftir danskri forskrift og sjá
hvað verður.
Danir rækta ánamaðk í
kössum, svipuðum litlum
fiskikössum, en ég ætla að
vera með þá í ódýrum
kössum úr einangrunarplasti
sem notaðir eru undir
ferskan fisk. Ég hef þegar
keypt 10 kassa og ætla aðláta
það duga til að byrja með. I
kassana set ég sauðatað,
hrossatað, kúamykju og úr
sér sprottið hey, en það er
ekkert ósvipað hálmi. Ég
ætla að lagskipta þessu og
geyma inni í hlýju, við
kjörhita maðkanna 14 - 19
stig”.
Ágúst segir eftir á að
hyggja að trúlega sé Skotland
betri staður en Danmörk til
að kynna sér ánamaðkarækt.
Þess má og geta að
ánamaðkarækt er stunduð
mjög víða. T.d er þetta
talsverð atvinnugrein í Suð-
austur-Asíu. Þar er framleitt
svo nefnt ánamaðkamjöl til
manneldis, mjög próteinrík
fæða, en Ágúst á Geitaskarði
vill taka það fram að hann
stefni ekki að þeirri fram-
leiðslu.
Hvammstangi:
Fréttir frá Sambandi skagfirskra kvenna
46. aðalfundur Sambands
skagfirskra kvenna var hald-
inn í barnaskólanum að
Hólum í Hjaltadal laugar-
daginn 29. apríl 1989. Um 40
konur mættu á fundinn í
fegursta veðri. Formaður
SSK Sólveig Arnórsdóttir
Utvík setti fundinn og bauð
sérstaklega velkomnar Stefaníu
Maríu Pétursdóttur formann
K.I. og Pálu Pálsdóttur frá
Hofsósi,
Fjöldamörg námskeið hafa
verið haldin á vegum sam-
bandsins á sl. ári. svo sem
leikfiminámskeið sem tvær
konur frá Hofsósi sóttu hjá
Eddu Baldursdóttur og \orii
síðan með leikfimitíma i
Holsós sem voru mjöe
vinsælir. Þá var haldið
garðyrkjunámskeið, námskeið
í postulínsmálun, prjónahönn-
un, gerbakstri og fleiru.
Haustvaka var haldin á
Sauðárkróki í nóvember, var
hún létt og skemmtileg undir
góðri stjóm Lovísu Símonar-
dóttur.
Okkar árvissa vinnuvaka
var =vo haldin á Löngumýri
nú í apríl og tókst hún nteð
ágætum og var vel sótt.
söfnuðust 140 þúsund krónur
seni skiptust á milli Sambýlisins
á Sauðárkróki og Egilsár-
heimilisins. 11. júní mun svo
öldrunurnelhdin vera með
skemmtik\'öId i llöfðaborg
llol'sósi og sjá kvenfélögin
austan witua um kalfiveit-
ingar á þeirri skemmtun.
Sambandið mun nú eins
og undanfarin ár gefa
bókaverðlaun til þeirra nem-
enda sem þykja skara framúr
í hannyrðum og eða heimilis-
fræðum í 9. bekk grunnskól-
ans á Hofsósi, í Varmahlíð
og á Sauðárkróki.
Sú nýjung var tekin upp á
aðalfundinum að í stað þess
að lesa upp skýrslur félag-
anna þá talaði einn fulltrúi
I rá hverju félagi í 5-7 mínútur
um sjálfvalið efni. Mæltist
þetta fyrirkomulag vel fyrir.
Konunum var tíðrætt um
stóöu kvenfélaganna í dagog
hvernig mætti laða ungar
konur til starfa i kxenfélög-
untitn. Þá \ar l'arið í
Hóladómkirkju og hlýtt á
helgistund hjá séra Sigurði
Guðmundssyni biskupi og
minntist hann m.a. Sigurbjargar
Halldórsdóttur frá Brekku-
koti sem lést nýlega.
Kjósa þurfti eina konu til
að sitja þing KÍ í Vestmanna-
eyjum 8.-11. júní og hlaut
Sólveig Arnórsdóttir kosn-
ingu sem fulltrúi sambands-
ins. einnig voru kosnar tvær
konur á þing SNK sem
haldið verður i Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði 3. og4. júní.
Þangað fara Ingibjörg Haf-
stað í Vík og Steinunn Erla
Friðþjófsdóttir Sauðárkróki.
Þá þurfti að kjósa nýjan
formann og varaformann
þar sem Sólveig Arnórsdóttir
og Ingibjörg Jóhannesdóttir
gáfu ekki kost á sér til setu í
stjórn áfram. Pálína Skarp-
héðinsdóttir Gili var kosin
formaður meðmiklum meiri-
hluta og séra Dalla Þórðar-
dóttir varaformaður einnig
með miklum meirihluta.
Ingibjörg Jóhannesdóttir
var búin að vera í stjórn í níu
ár og Sólveig í sex ár. Vil ég
færa þeint miklar þakkir fyrir
samstarfið frá okkur sam-
stjórnarkonum þeirra og býð
um leið nýjan formann og
varaformann velkomnar til
starfa.
Elínborg Hilmarsdóttir ritári.