Feykir - 31.05.1989, Page 6
6 FEYKIR 20/1989
Hagyrðingaþáttur 52
Heilir og sælir lesendur
góðir. Við byrjum þáttinn að
þessu sinni með fallegri vísu
eftir Jón Pétursson frá
Nautabúi.
Sólin vangar völl og skörð
vefja tangann bárueykur.
Blómin anga, brosir jörð,
blítt í fangið vindur leikur.
Ég hef áður hér í þættinum
birt vísur eftir Éyjólf R.
Eyjólfsson á Hvammstanga.
Nokkur undanfarin sumur
hefur hann dvalið ásamt
konu sinni um vikutíma í
sumarhúsi á Laugarvatni.
Þegar Eyjólfur hélt af stað
heimleiðis að lokinni dvöl
þar síðastliðið sumar, orti
hann næstu tvær vísur.
Kviknar líf í hamrahöll,
heyrast ungar skríkja,
þegar að vori fannafjöll
fyrir sólu víkja.
Keppni í annarri deild íslands-
mótsins hófst um síðust helgi og
þá áttust m.a. við Stjaman og
Tindastóll. Þrátt fyrir að vera
sterkari aðilinn mestan hluta
leiksins í Garðabænum sl.
laugardag, tókst Tindastóli ekki
að stöðva sigurgöngu Stjörnu-
manna, sem sigruðu í sínum
fyrsta leik í annarri deild.
Strax á fyrstu mínútu fengu
Tindastólsmenn gullið tækifæri
og sitt besta í leiknum, þegar
Guðbrandur fékk sendingu inn
fyrir vörnina og skaut yfir í góðu
færi. Tindamir voru síðan öllu
Er sunnan þeyrinn, sól og
vor
signa fjöll og dalinn,
glittir í lyngi á gömlum spor
gróin í lautu falin.
Fyrir nokkru lét ég í ljós
áhuga minn á að gera
Vilhjálmi Benediktssyni frá
Brandaskarði betri skil hér í
þættinum. Er nú best að láta
verða af því. Við burtför sína
úr Langadal árið 1921 orti
Vilhjálmur.
Veit ég ekki veginn minn
og vil þar fátt um tala,
en hér ég geng í hinsta sinn
um háar brúnir dala.
Bestu æviárin mín
undi ég þar í garði,
því vill heilla hugann sýn
heim að Geitaskarði.
Eins og mörgum öðrum
hagyrðingum, varð Vilhjálmi
sterkari aðilinn lengst af fyrri
hálfleiks, en duttu aðeins niður
síðustu mínúturnar fyrir hlé.
Garðbæingar komu grimmir
til seinni hálfleiks, en engu að
síður náði Tindastóll forustunni
eftir tiu mínútna leik. Upp úr
aukaspyrnu, sem Árni Ólason
tók, komst einn Stjörnumanna í
bobba og stíft pressaður setti
hann boltann í eigið mark. Nú
hefði verið rík ástæða fyrir
Tindastólsmenn að tvíeflast og
fylgja meðbyrnum eftir, en svo
var ekki og deyfð einkenndi leik
liðsins næstu mínúturnar.
ýmislegt að yrkisefni. Eitt
sinn, er rætt var um
sveitarstjómarmenn, orti Vil-
hjálmur.
Margar kempur Island á
um sem mætti syngja.
Heldur snjalla hér má sjá
hreppsnefnd Vindhælinga.
Oflof velja engum skal,
allir sjá er kynnast,
hvergi meira mannaval
mun í heimi finnast.
Vilhjálmur átti góðan
reiðhest, sem hét Skuggi.
Eins og oft er með fjörhesta,
var hann erfiður í fóðrun og
því oft grannholda. Eittsinn,
er Vilhjálmur var á ferð á
Skugga, víkur sér að honum
Karl Laxdal og segir: Hann
er þunnur hjá þér núna sá
brúni.” Þá orti Vilhjálmur.
Þó að lífið þokkasmátt
þætti flesta daga,
Engu að síður var greinileg
taugaveiklun í herbúðum Garð-
bæinga og virtust þeir í þann veg
að „brotna” þegar vörn Tinda-
stóls brást á 70. mínútu. Einn
varnarmanna var að „dúlla” á
teignum með mann í bakinu, í
stað þess að losa sig við boltann
lét hann Stjörnumann hirða
hann af sér og Sveinbjörn
Hákonarson jafnaði með góðu
skoti. Þetta reyndist vendi-
punktur leiksins og fimm
mínútum síðar náði Árni
Sveinsson að skora sigurmarkið
í leiknum. Þóf og barátta
einkenndi síðan lokamínúturnar
án þess að neitt markvert
gerðist.
Stjaman er með gott lið og
Tindar þurfa ekkert að skamm-
ast sín, þó svo leikur liðsins
seinni hlutann væri slakur. Ekki
er sérstök ástæða til að hrósa
einstökum leikmönnum Tinda-
stóls. Ólafur Sveinsson dæmdi
leikinn ágætlega.
Hvöt og Tindastóll eigast við í
Bikarkeppninni á Blönduósi í
kvöld (miðvikudag). Næsti leik-
ur Tindastóls í deildinni verður
nk. laugardag þegar Einherjar
frá Vopnafirði koma í heimsókn.
Kormákur tapaði fyrir
Reyni frá Árskógsströnd í
leik liðanna á Hvammstanga
í 3ju deildinni sl. laugardag.
Hvasst var er leikurinn fór
fram og skoruðu heimamenn
tvö ntörk í fyrri hálfleik, fyrst
Bjarki Gunnarsson og síðan
við höfum stundum vinur átt
vor og græna haga.
Eftir farinn æviveg
ærið gróðursnauðan,
höldum báðir hann og ég
horaðir í dauðann.
Á efri árum yrkir Vilhjálmur
svo.
Þegar elliþrautin flá
þjakar yndis högum,
leik ég mér að liljum frá
liðnum bernskudögum.
Bróðir Vilhjálms, Valdimar
Benediktsson, er lést ungur,
var einnig snjall hagyrðingur.
Hér koma nokkrar fallegar
vísur eftir hann.
Hægur blær um hauður fer,
húmið færist yfir,
friði kærum faðmað er
flest sem grær og lifir.
Þylur gjörvallt þakkar bæn,
þrútnar af lífi moldin.
Nú er aftur gróðurgræn
gamla Isafoldin.
Hátign mest í heimi sést,
hrifin flest er öldin,
þegar í vestri sólin sest
sumars bestu kvöldin.
Klökknar af blíðu og gleði
geð,
glóey skrýðir hjalla.
Svanir líða sunnan með
sæluhlíðum fjalla.
Blíður andar blær um kinn,
bráðum fer að nátta.
Slippur -
Sl. sunnudag komu í heimsókn
á Hlíðarenda kylfingar úr
Slippstöðinni á Akureyri til
keppni við Golfklúbb Sauðár-
króks. Þessi keppni er orðin
árlegur viðburður, kallast
Slippur-Krókur og gefur Slipp-
stöðin verðlaun til hennar.
Keppendur voru 27, þar af
17 heimamenn og var
árangur 10 fyrstu úr hvorri
sveit látinn gilda. Króksaramir
sigruðu að þessu sinni, enda
fleiri til að velja úr, með 573
Grétar Eggertsson. í síðari
hálfleik snerist síðan dæmið
við, Reynismenn náðu að
nýta vindinn betur og skora
þrjú mörk. Heitt var í
kolunum í seinni hálfleikn-
um og var Albert Jónssyni úr
Kormáki vikið af leikvelli.
Knattspymuliðin af Norður-
landi vestra voru ekki á
Kvíði ég að koma inn
í kofann til að hátta.
Það má öllum vera ljóst, að
sá er þannig yrkir, hefur átt
létt með að orða hugsun sína í
fjórum línum.
Þá er næst vísa eftir skáldið
Gísla Olafsson. Mun hún
vera ort um þann kunna
mann séra Lárus Arnórsson
á Miklabæ í Blönduhlíð.
Kunnur af hreinleik klerkur-
inn,
kænn í flestum myndum.
Hann vill Akrahreppinn sinn
hreinsa af öllum syndum.
Mörgum finnst oft, að þeir
sem teljast til ráðamanna,
séu ekki alltaf heppnir með
framkvæmdir. Allsheijargoðinn
Sveinbjöm Beinteinsson kveður
svo.
Flestu ráða fúlir menn,
fagrar dyggðir kafna,
sterkur gróður gisnar enn,
gorkúlurnar dafna.
Það er best að láta
Sveinbjörn eiga síðustu vís-
una að þessu sinni, og
þarfnast hún ekki skýringa.
Þegar hækkar himinsól,
hýrnar landið frjóa,
mun þá undir Arnarhól
auðnin ljóta gróa.
Verið þið sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
Krókur
högg á móti 626. Örn Sölvi
Halldórsson GS náði bestum
árangri, sló 80 högg án
forgjafar. Sjálfur forstjórinn
í Slippnum Sigurður Ringsted
kom fast á hæla hans með 82
högg og Magnús Rögnvalds-
son GS varð þriðji á 85
höggum. Með forgjöf sigraði
Hjörtur Geirmundsson GS
með 68 högg. Örn Sölvi varð
annar á 69 og Brynjólfur
Tryggvason Slippnum þriðji
með 71.
sigurbrautinni um helgina
því liðin tvö í fjórðu deildinni
töpuðu einnig. Hvöt tapaði
óvænt fyrir TBA á Akureyri
0:2 og Neisti lá í Mývatns-
sveitinni fyrir HSÞb 0:3.
Hvöt hefur orðið fyrir
blóðtöku undanfarið og í
Ncista eru enn ókomnir
fjórir sterkir leikmenn.
Útboð
Styrking og malarslitlögn í
Húnavatnssýslu 1989
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
ofangreint verk.
Magn 19.000 m3
Verki skal lokið 29. ágúst 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík
(aðalgjaldkera) frá og með 29. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14.00 þann 12. júní 1989.
Vegamálastjóri
VEGAGERÐIN
Fyrsti leikur Tindastóls í annarri deildinni:
Garðbæingar höfðu betur
Golfmótið
Tap í þriðju og fjórðu tíka