Feykir - 20.12.1989, Qupperneq 8
8 FEYKIR 46/1989
Stuttar
fréttir
„Ný reynsla að halda jól á íslandi”
spjallað við Prósý og Tryggva á Hvammstanga
Jennifer Ingibjörg, Prósý, Ólafur Pálmi og Tryggvi.
• Eitt tilboð barst í Rússland,
Kirkjutorg 3, sem auglýst var
til sölu á dögunum. Það erfrá
Björgvin Guðmundssyni raf-
virkja. Hann býður 400
þúsund í húsið, hyggst
endurbyggja það og innrétta
þar íbúðir. Tilboð Björgvins
átti að koma til umfjöllunar á
bæjarstjórnarfundi í gær.
• Lag Eiríks Hilmissonar, sem
ber hiðfrumlega nafn Lagog
ljóð, er eitt 10 laga sem valin
hafa verið til úrslita í
keppninni um Landslagið.
Þetta er jafnframt eina lagið
frá lagahöfundum á lands-
byggðinni sem náði svona
langt í keppninni, en alls
bárust 320 lög. ,,Þetta er
alveg dæmigert lag fyrir
„gömlu dansa tröllið” Eirík.
Lagið er rólegt, enskur vals
og að sjálfsögðu er ég mjög
ánægður með að hafa komist
í úrslitin”, sagði Eiríkur
Hilmisson í samtali við
Feyki. Textinn við lagið er
ef'tir Hilmi Jóhannesson
föður Eiríks.
• Tvö systkini frá Sauðárkróki
senda frá sér bækur um þessi
jól. Það eru þau Nanna og
Eiríkur börn Rögnvalds
Gíslasonar og Sigríðar Jóns-
dóttur. Eiríkur hefurskrifað
orðabók um rímorð, Rím-
orðabók, en bók Nönnu
heitir Ævi mín og sagan sem
ekki mátti segja, saga
forsetasonarins og nasistans
Björns Sv. Björnssonar.
Báðar bákurnar eru gefnar út
af Iðunni og eru fyrstu bækur
höfunda sem koma á almennan
markað. Eiríkur hefur áður
fengist við að skrifa kennslu-
bækur.
• Pálmi Friðriksson hefur
keypt meirihlutann í Steypu-
stöð Skagafjarðar af kaup-
félaginu. Pálmi á nú 79% í
fyrirtækinu í stað 27% áður.
Byggingarfélagið Hlynur á
20% og einstaklingar rúmlega
1%. Pálmi ætlar að sameina
vélaleigu sína rekstri steypu-
stöðvarinnar. Steypusala hefur
dregist mjög saman í Skaga-
firði á síðustu þrem árum og
Pálmi segist sjá tvö erfið ár
framundan. Samt sé hann
bjartsýnn á að hægt verði að
halda rekstri steypustöðvar-
innar áfram.
• Brotist var inn í útibú
Kaupfélags Skagfirðinga á
Hofsósi aðfaranótt laugar-
dags og stolið talsverðu af
peningum. Þjófnaðurinn upp-
lýstist daginn eftir. Við
yfirheyrslur játuðu tveir
menn verknaðinn og komust
fjármunirnir til skila.
Enn einu sinni eru jólin í
nánd, hin mikla trúar-
hátíð kristinna manna.
Þá reikar hugurinn
gjarnan til baka og
minningar genginna ára
koma í hugann. Við hér
á Fróni þekkjum jólin
sem hina mildu hátíð
ljóssins mitt í skamm-
deginu. í litlu vinalegu
húsi í útjaðri Hvamms-
tanga búa hjón sem eiga
jólaminningar frá ólíkum
heimshlutum. Hann er
Islendingur, hún frá
Filippseyjum og hennar
upprunalega nafn er
Próserpina Tamayo. Nú
heitir hún Anna María
Jónsdóttir en er í
daglegu tali kölluð Prósý.
Það var á aðventu fyrir sjö
árum að Tryggvi hélt austur
til Filippseyja til fundar við
Prósý. Þau höfðu þekkst í
gegnum sendibréf í allnokk-
urn tíma. Þegar þau eru
spurð um eftirminnilegustu
jólin, þá eru þau sammála
um þeirra fyrstu jól saman á
Filippseyjum, og að þau hafi
bæði fengið stóra jólagjöf
það árið. „Það var bara ekki
til nógu stór kassi svo ég fékk
hann eins og hann er”, segir
Prósý og hlær.
Jólahald á
Filippseyjum
„Mér fannst mjög gott að
upplifa jól þarna austur frá.
Kannski minna fyrir haft um
jólin, en undirbúningurinn
lengri, gjafirnar heldur minni
og jólahaldið stutt. Ég fann
jólastemmningu en þó á
annan hátt en hér. Maturinn
var framandi að ýmsu leyti
og svo vantaði laufabrauðið”,
sagði Tryggvi.
„Það er snemma byrjað að
huga að jólunum á Filipps-
eyjum. Strax í september fara
jólalögin að heyrast. Jólatréð
er sett upp og skreytt í byrjun
desember og ég held þeim sið
að nokkru leyti. Jólabakstur
þekkist ekki, því bakarar
bjóða fjölda margar tegundir
af girnilegum kökum sem
kosta sára lítið. Jólaveinninn
hjá okkur er stór og feitur
með ístru. Góður karl og
hann er hvítur, útlendingur
sennilega frá Ameríku eða
Englandi.
Það er búin til stór
jólastjarna úr pappír, ljós
sett inn í og stjarnan látin út í
glugga. Þetta er í okkar huga
Betlehemsstjarnan. Fyrstu jólin
sem foreldrar mínir bjuggu í
Bandaríkjunum, fengu þau
verðlaun frá sveitarstjórn-
inni fyrir jólalegasta húsið.
Þau höfðu gert jólastjörnu og
sett í gluggann.
Osturinn svipaður
Hvammstangaosti
Á aðfangadag borða allir
létta einfalda máltíð um
miðjan daginn og síðan sofna
börnin. Þau eru svo vakin
skömmu fyrir miðnætti, þá
hefjast jólin. Skifst er á
gjöfum og borðaður jóla-
matur. Það er reykt svínakjöt,
pottréttur úr einskonar rís-
spaghetti, beikoni, rækjum,
gulrótum og káli. Þessi réttur
heitir Pansil og er algengur
veisluréttur á Filippseyjum.
Með er borin sojasósa og
sítrónuávöxtur, Kalamansi.
Ostur svipaður Hvamms-
tangaosti er borðaður með
brauði, hrísgrjónaköku með
maramellu. Sérstakur jóla-
réttur er hrísgrjón og kokos
vafin inn í baunablöð og
soðið, raspaður kokos og
púðursykur yfir.
Jólamessa er ekki fastur
liður, en ef hún er, þá er hún á
jóladag.
Það var ný reynsla að
halda jól á Islandi með snjó,
en mér líkar það mjög vel. Á
Islandi eru árstíðaskipti
augljós ogþað finnst mérlíka
ágætt. Á Filippseyingum er alltaf
sumar og það getur verið
svolítið Ieiðigjarnt”, sagði
Prosý.
Blandað jólahald
„Jólasiðirnir hafa breyst á
heimilinu síðan hún kom og
þá til hins betra. Hún er ekki
stressuð fyrir jólin, hugsar
meira um sjálfa hátíðina”,
segir Tryggvi.
„Við höfum jólasiði frá
báðum, t.d. jólatréð skreytt
snemma, jólamaturinn er
blanda frá báðum löndum.
Við borðum íslenskt jóla-
hangikjöt með hrísgrjónum
og pottréttinn góða á
aðfangadagskvöld. Jólin eru
kannski ekki eins ólík í
heimalöndum okkar og ætla
mætti. Ilmur af eplum,
appelsínum og hangikjöti
minnir mig alltaf á jólin”,
sagði Prósý.
„Við héldum jólin vestur í
Bandaríkjunum hjá hennar
fólki fyrir tveim árum. Þar
virðast margvíslegir jólasiðir
blandast saman.
Ólíkur uppruni
Bæði löndin eru kristin,
svo menningin byggir á sama
grunni að stórum hluta.
Samband okkar hjónanna er
jafnvel enn ánægjulegra
vegna ólíks uppruna. Sjón-
deildarhringurinn er stærri.
Við höfum aldrei orðið fyrir
neinskonar óþægindum vegna
þessa”, bætti Tryggvi við.
„Það er gott að búa á
íslandi. Hér er svo gott fólk
og svo á ég svo góðan
mann”, sagði Prósý að
lokum.
Héraðsnefitd Skagafiarðar
óskar öttum Skagfirðingum
gleðttegra jóla
og farsældar á nýju ári