Feykir


Feykir - 20.12.1989, Blaðsíða 16

Feykir - 20.12.1989, Blaðsíða 16
16 FEYKIR 46/1989 Kveðja frá séra Finnboga í Hvammi Séra Finnbogi Kristjánsson óskaði eftir því á síðasta sumri að fá þennan litla sálm birtan í Feyki. Honum var lofuð birting hans í jólablaðinu, en séra Finnboga entust ekki lífdagar til að sjá hann á prenti. Þessvegna má segja að sálmurinn sé kveðja frá gamla prestinum frá Hvammi. Blessuð sé minning séra Finnboga. Guð þín máttug rnildi meinin læknar hörð, hæstum hlífiskildi haltu yfir jörð. Skíni lífs frá landi ljúfust náðarsól, andi guð þinn andi yfir jarðarból. Körfuboltaliðið stendur sig vel Tindastóll hefur nú að nýju hífað sig upp töfluna þrátt fyrir tap í Njarðvík á sunnudag. Aður höfðu þeir unnið tvo leiki í röð, gegn Haukum og Þór. Þórsarar héngu lengi vel í Tindastóli þegar þeir komu á Krókinn fyrir viku. Stólarnir höfðu fjögur stig í leikhléi, en fljótlega í seinni hálfleiknum náðu þeir að stinga af og þegar skammt var til leiksloka var staðan orðið 103:70. Þórsarar náðu siðan aðeins að klóra í bakkann undir lokin og úrslitin urðu 108:80. Njarðvíkingamir reyndust Tindastólsmönnum ofjarlar í ljónagryfjunni suður frá. Jafnt var í hálfleik, en í síðari hálfleiknum héldu Suðurnesja- mönnum engin bönd og þeir sigruðu 96:80. Bo og Valur hafa sem fyrr verið aðalkanónur liðsins og Sturla verið manna grimmastur í vöminni. Ungu strákaranir hafa líka staðið fyrir sínu og vaxa nú með hverjum leik. Þó að staða Tindastóls í Húmor í unglingunum Feykir gerði sig seka um mistök varðandi myndbirtingu af skemmtun Hallbjamar Hjartar- sonar á forsíðu síðasta blaðs. Algjörlega láðist að geta þess hverjir stóðu fyrir þessari skemmtun, en það voru hinir eldhressu piltar í unglingaflokki Tindastóls. Söngur og glens Hallbjarnar var í tengslum við leik liðsins gegn Val í Islands- mótinu og hafa piltarnireinmitt staðið fyrir ýmsum uppákomum til að laða áhorfendur að heimaleikjum sínum í mótinu. Þá hefur unglingaflokkurinn staðið að útgáfu leikskrár fyrir hvern heimaleik. Bera þœr ótvírætt með sér að þar fara húmoristar með mikla sköpunar- gáfu. Sögufélag Skagfirðinga Saga sýslunefndar I. og II. bindi er atvinnu- og framkvæmdasaga Skagafjarðar Þær eru góðar saman Saga sýslunefndar og Saga Sauðárkróks Sögufélag Skagfirðinga Safnahúsinu Sauðárkróki, sími 95-35424 Frá Innheimtu Sauðárkróksbæjar Hér með er skorað á þá gjaldendur sem eiga ógreitt útsvar utan staðgreiðslu 1989 svo og aðstöðugjald, fasteignagjöld hafnargjald og önnur gjöld til Bæjarsjóðs Sauðárkróks að gera skil nú þegar og í allra síðasta lagi 29. des. nk. Afgreiðslan verður opin föstudaginn 29. des. frá kl. 9.00 til kl. 15.00. Verið skuldlaus við Bæjarsjóð um áramót Gleðileg jól Innheimta Sauðárkróksbæjar deildinni sé ekki eins góð og menn gerðu sér vonir um í haust, er ekki hægt að segja annað en liðið hafi staðið fyrir sínu, þegar þess er gætt hve sterkur riðillinn er. Njarðvík og KR standa nú á þröskuldi þess að tryggja sér sæti i úrslita- keppninni, en Tindastóll er í þriðja sæti. Keppnin hefst aftur að fullu eftir áramót. Tónlistarkvöld Rökkurkórsins Simm kom til kennslustarfa hjá Tónlistarskóla Skaga- fjarðar í haust. Blómlegt leiklistariíf Blómleg leikstarfsemi hefur verið í Húnaþingi það sem af er vetri. Leikrit hafa verið sett á svið bæði á Blönduósi og Skagaströnd og haldið hefur verið leiklistarnámskeið. Leikklúbbur Skagastrandar frumsýndi „Láttu ekki deigann síga Guðmundur”, í byrjun desember og hefur síðan sýnt verkið á Hvammstanga. Næsta sýning verksins verður á Skagaströnd 28. des. Leikfélag Blönduóss frum- sýndi Sveitasinfoníu Ragnars Arnalds á laugardaginn var. Leikstjóri var Þórhallur Sigurðsson. Næsta sýning verksins verður annan dag jóla. MÓ. Kökkurkórinn stendur fyrir tónlistarkvöldi í Miðgarði á öðru kvöldi jóla klukkan 21. Dagskráin er fjölbrey tt í sniðuni, auk þess scm kórinn syngur nokkur lög, ntunu ungir Skagfirðingar koma fram og syngja, og undirleikari kórsins Kichard John Simm og kona hans Jackueline flytja tónverk fyrir píanó og klarinett. ,,Við ætlum að skapa þarna þægilega jólastemmn- ingu með kertaljósum og kaffi á borðum. Við erum mjög spennt að fylgjast með hvernig ungu tónlistarfólki héðan úr firðinum hefur gengið í sínu námi, en um fimm ungmenni koma fram á skemmtuninni. Síðan er meiningin að dansa við sveiflu Geirmundar fram eftir nóttu”, sagði Ragnheiður Kolbeins formaður Rökkur- kósins. Kórinn hóf æfingar í nóvemberbyrjun undir stjóm Sveins Arnasonar á Víðimel. Undirleikarinn Richard Jóhn ''/'V Snjómokstur VEGAGERÐIN um jól og áramót 1989-1990 Reykjavík - Akureyri og Hofsós - Siglufjörður Desember: 20., 22., 23., 26., 27., 29. og 30. Janúar: 2., 3. og 5. Laugarbakki - Hvammstangi - Blönduós - Skagaströnd og Varmahlíð - Sauðárkrókur - Hofsós Desember: 20., 21., 22., 23., 26., 27., 29. og 30. Janúar: 2., 3., 4. og 5. Varmahlíð - Steinsstaðaskóli Desember: 26. og 29. Janúar: 2. Siglufjarðarvegur - Hólar Desember: 22., 23., 26. og 29. Janúar: 2., 3. og 5. Upplýsingabækling um snjómokstur má fá á bensínstöðvum og hótelum. Vegagerð rikisins, Sauðárkróki

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.