Feykir - 07.02.1990, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 5/1990
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMENN:
Magnús Ólafsson A-Hún., Hólmfríður
Bjamadóttir V-Hún. ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sólmundur Friðriksson ■ ÁSKRIFTARVERÐ:
90 krónur hvert tölublað; í lausasölu
100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■
SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST
sf.. Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Skagstrendingar
fara út að borða
„Á þessum tíma eru það
aðallega tarnir í kringum
útgerðina, en annars hefur
þetta verið nokkuð líflegt
miðað við árstíma”, segir
Sturla Bragason veitingamaður
frá Blönduósi sem tók við
rekstri Hótels Dagsbrúnar á
Skagaströnd unt áramótin.
„Það er ekki að sjá annað
en Skagstrendingar geri
þónokkuð af því að fara út og
borða og maður er að vona
að þannig verði þetta áfram.
Það hafa verið hér hópar í
mat tvær síðustu helgar, og
pantanir eru þegar farnar að
berast fyrir næstu helgi. Að
sjálfsögðu vonast maður svo
til að geta laðað að
utanbæjarfólk. Við stílum
upp á fljóta en vandaða
afgreiðslu, getum afgreitt
stórsteikur með mjög skömm-
um fyrirvara með því að
undirbúa daginn vel, erum
alltaf með hráefnið tilbúið”,
sagði Sturla.
Sturla sagðist ekkert hafa
orðið var við draugagang í
húsinu, né neinn gesta sinna.
Getgátur væru uppi um að
þau næturhljóð sem heyrðust
á síðasta sumri stöfuðu frá
lyftingu í loftklæðningu, sem
lægi ófest í málmgrind. Til
stæði að tylla þessari klæðn-
ingu.
Landsmót UMFÍ:
Ekki á Króknum
á þessari öld
í framhaldi af fundi stjórnar
Ungmennafélags íslands á
dögunum, lítur út fyrir að
landsmót U.M.F.Í. verði ekki
haldið á Sauðárkróki á
þessari öld. U.M.S.S. og
bæjaryfirvöld Sauðárkróks sóttu
um að landsmót Ungmenna-
félaganna yrði haldið þar árið
1999.
Á stjórnarfundinum var
ákveðið að landsmótið 1996
yrði haldið af U.M.S.B. í
Borgarnesi, en tvær umsóknir
bárust. frá Borgfirðingunum
og frá U.l.A. Stjórnin greindi
frá eindregnum vilja sínunr
að landsmótið 1999 yrði
haldið á Egilsstöðum.
(Unnið af Guðrúnu Jónsdóttur
og Sigríði Gunnarsdóttur 8.
bekk Varmahlíðarskóla í
starfskynningu)
Gömlu flugstöðinni komið
fyrir í nýjum heimkynnum
Gamla „flugstöðin” á Alex-
andersflugvelli hefur öðlast
nýtt hlutverk. Nefnilega það
að verða afdrep skíðafólks í
skíðaparadís Sauðárkrókshúa
í landi Heiðar á Gönguskörðum.
Hvað hann verður þar lengi er
reyndar óvisst þar sem sífellt
er í athugun hvar framtíðar-
skíðasvæði Sauðkrækinga verður.
Sl. föstudag vom félagar í
skíðadeild Tindastóls ásamt
starfsmönnum Sauðárkróks-
bæjar og stórvirkum vinnu-
vélum að koma skúrnum
fyrir. Ætlunin er síðan að
ganga vel frá honum á næsta
sunrri, setja t.d. í hann
rafmagnskyndingu.
Veður var hið besta efra á
föstudag og talsverð umferð,
enda nýbúið að moka
Skúrnum komið fyrir norðan skíðalyftu.
Laxárdalsheiði. Var þetta komust í kaupstað, eftir
fyrsti dagurinn í talsvert válynd veður dagana á
langan tíma senr Skagamenn undan.
Raðsmíðaskipið:
„Bagalegt”
segir Bjarki
Þessar tvær stelpur úr 8. bekk Varmahlíðarskóla eru þessa
vikuna í starfskynningu á ritstjórn blaðsins. Þær Guðrún
Jónsdóttir og Sigríður Gunnarsdóttir skrifuðu frétt á 2. síðu
blaðsins og væntanlega sjáum við meira frá þeim í næsta blaði.
Samningar tókust við
hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarfræðingar við Heilsu-
gæslustöðina á Sauðárkróki
samþykktu sl. fimmtudag
tilboð sem þeim barst viku
áður frá sjúkrahússstjórninni
og fulltrúa heilbrigðisráðu-
neytisins. Ekkert verður því
af uppsögnuni þeirra og hefur
vfirvofandi ófremdarástandi
því samfara verið afstýrt.
Samningurinn felur í sér
sömu laun og hjúkrunar-
fræðingarnir höfðu áður.
Oánægja þeirra var tilkomin
vegna þess að við breytta
verkskiptingu ríkis og sveitar-
félaga um síðustu áramót,
urðu þeir sjálfkrafa starfs-
menn ríkisins, sem þýddi að
þeir misstu þær aukagreiðslur
sem jöfnuðust á við vakta-
álag hjúkmnaifræðinga sjúkra-
hússins.
Hjúkrunarfæðingarnir sem
sögðu upp 1. október sl. og
áttu samkvæmt því að leggja
niður störf um áramót,
féllust á að fresta því til
síðustu mánaðamóta. Ef
samkomulag hefði ekki náðst,
hefði heimahjúkrun, ung-
barnaeftirlit og skólahjúkrun
lagst niður í héraðinu.
„Jú, vitaskuld er þetta mjög
bagalegt fyrir okkur og alveg
Ijóst að við getum ekki beðið
endalaust eftir þessu. Það er
töluvert aðkallandi að gera
einhverjar ráðstafanir með
bátinn scm við ætluðum að
láta á móti raðsmíðaskipinu”.
Annars sagði Bjarki Tryggva-
son framkvæmdastjóri Mel-
eyrar á Hvammstanga að það
þýddi ekkert annað en láta
hverjum degi nægja sínar
þjáningar og vona það besta,
allt væri þetta opið enn.
Eins og kunnugt er
samþykkti Byggðasjóður á
dögunum að lána Meleyri
140 milljónir að því tilskildu
að Landsbandinn eða ríkis-
ábyrgðasjóður lánuðu jafn-
mikið á móti. Meleyri ætlar
síðan sjálft að fjámagna þær
70 milljónir sem vantar upp á
kaupverð skipsins, sem er
350 milljónir. Hvorki stjómir
Landsbankans né ríkisábyigða-
sjóðs hafa fundað um málið
enn sem komið er.
Fasteign til sölu
Óskum eftir tilboöum í húseignina að
Skagfiröingabraut 7 Sauðárkróki.
Upplýsingar í síma 35304 (Gunnar).
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem
er eða að hafna öllum.