Feykir


Feykir - 07.02.1990, Síða 7

Feykir - 07.02.1990, Síða 7
5/1990 FEYKIR 7 Atvinna í Sviss Stúlka 18 ára eða eldri óskasttil starfa á sveitaheimili í Sviss. Þarf að vera vön hestum. Nánari upplýsingar í síma 95-36745 eða 95-35198. Orðtak hefur starfsemi á næstunni Hofsósbúar! Skoðanakönnun um nafn á hinum nýja hreppi fer fram í félagsheimilinu Höfðaborg, sunnudaginn 11. febrúarnk. Sveitarstjórnin Orðtak fjarvinnslustofa að hefja starfsemi á Hvamms- tanga. Áhugahópur um fjar- vinnslu hefur unnið markvisst að því verkefni að koma á fjarvinnslustofu hér í V.-Hún. Að sögn Steingríms Steinþórs- sonar forsvarsmanns hópsins er ákveðið að stofna hluta- félag og er söfnun hlutafjár að fara af stað þessa dagana. Er það von hópsins að sem flestir sjái sér fært að kaupa hlutabréf. Hlutafjárútboð er að sjálfsögðu ekki einskorðað við V-Hún. Lægsta bréf verður á kr. 10.000 en slíkt bréf veitir eiganda sínum möguleika á stuttu ókeypis námskeiði. Fjárhagsleg áhætta er hinsvegar hverfandi. Valið hefur verið nafn á væntanlegt fyrirtæki og er það Orðtak fjarvinnslustofa. Aætluð heildaríjárfesting mun vera um tvær milljónir króna og á að fara fram í fjórum áföngum. I fyrsta áfanga er öflug tölva með prentara og símamótaldi. Búið er að senda útboðsgögn til fimm fyrirtækja varðandi kaup á þessum búnaði. Er vonast eftir svörum fyrir 10. febrúar n.k. Allar líkur eru á að húsnæði sé fengið þó ekki sé búið að skrifa undir leigu- samning. Er það skrifstofa á efstu hæð á Höfðabraut 6 Hvammstanga, þar sem Alþýðubankinn var áður til húsa. Aætlaður kostnaður við fyrsta áfanga er kr. 500 þúsund. Fyrirhugað er að hefja starfsemi fyrir 1. mars n.k. Takmarkið er að byggja fyrirtækið upp rólega en markvisst án lántöku. Þaðer því mikilvægt að hlutafjár- söfnun gangi vel. Ókeypis smáauglýsingar Til sölu Til sölu Daihatsu Rocky EX árgerð 1986, diesel turbo. Ekinn 69.000 km. Skipti möguleg á ódýrari. Upplýs- ingarísíma36634eftirkl. 18á daginn. Bíll til sölu MMC Galant 2000 DLSI árgerð 1989. Beinskipturmeð aflstýri og rafmagni í rúðum og hliðarspeglum. Vetrar- og sumardekk fylgja með. Nánari upplýsingar í síma 95-35953. Bókaormar Óska eftir bókinni Ódáðar- hrauni 3. bindi, eftir Ólaf Jónsson á Akureyri. Útgáfuár 1945. Upplýsingar í síma 96- 23467. Bíll til sölu Subaru Justy J-10, fjórhjóla- drifinn. Ekinn 45 þúsund, litur rauður. Sami eigandi frá upphafi. Verðhugmynd kr. 430 þúsund. Upplýsingar í síma 36737. Ein með öllu Commodore 64 tölva með skjá, diskdrifi og mús til sölu. Hundrað leikir og ritvinnslu- forrit fylgja. Upplýsingar í síma 35728. Jeppi til sölu Dodge Ramcharcher '85, grásanserður, á ”33 dekkjum, driflokur, veltistýri, rafmagn í rúðum. Upplýsingar i síma 92-12953. Vélsleði Til sölu Kawasaki Intruder vélsleði árgerð 1981. Lítur vel út. Upplýsingar í síma 36625. Frá Innheimtu Sauðárkróksbæjar Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda 1990 var 15. janúar. Annar gjalddagi er 15. febrúar nk. Fyrsti gjalddagi fyrirframgreiðslu aðstöðugjalda var 1. febrúar. Vinsamlega greiðið gjaldfallin gjöld nú þegar. Dráttarvextir reiknast mánaðarlega. Innheimta Sauðárkróksbæjar Nýjar METBÆKUR: Nú eru komnar METBÆKUR fyrir börn og unglinga, með mynd af bangsanum PADDINGTON á kápu, í tveimur litum, RAUÐAR og BLÁAR.' Þeir eigendur METBÓKA, sem óska geta skipt yfir í þessar bækur. METBÓK er 18 mánaða sparibók. Hver innborgun er aðeins bundin í 18 mánuði. Eftir það er hún ávallt laus til útborgunar, en heldur engu að síður óskertum vaxtakjörum. EKKERT ÚTTEKTARGJALD. Heildarávöxtun Metbókar 1989 var 26.36% Verðtryggð kjör nú eru 5% umfram verðbólgu. BÚNAÐARBANKl ÍSLANDS TRAUSTUR BANKI Útibúið á Sauðárkróki Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.