Feykir - 07.03.1990, Side 2
2 FEYKIR 9/1990
Enn um sameiningarmál
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aöalqötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMENN:
Magnús Ólafsson A-Hún., Hólmfríður
Bjamadóttir V-Hún. ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sólmundur Friðriksson ■ ÁSKRIFTARVERÐ:
90 krónur hvert tölublað; í lausasölu
100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■
SETNING, UMBROTOG PRENTUN:SÁST
sf.. Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
AUGLÝSIÐ í FEYKI
Sameiningarmál sveitarfélaga liafa verið
mikið í deiglunni síðustu árin og er
skemmst að minnast sameiningu þriggja
hreppa í austanverðum Skagafirði sem
koma mun til framkvæmda við hrepps-
nefndarkosningar í vor. Þá er stutt síðan
Fljótahrepparnir tveir runnu í eina sæng.
En menn spyrja sig gjarnan, er nóg að
gert? Mætti ekki ganga lengra í
sameiningarmálunum? Hefði t.d. ekki verið
eðlilegra að færa bæði Hóla- og
Viðvíkurhrepp inn í nýja hreppinn kringum
Hofsós, jafnvel Fljótahreppinn líka?
Þannig gæti framtíðarskipulagið austan
Vatna orðið. Vestan þeirra virðist mjög
eðlilegt að með tímanum sameinist
Akrahreppur, Lýtingsstaðahreppur, Seylu-
hreppur og Staðarhreppur. Og hrepparnir
við Krókinn og út á Skaganum sameinist
kaupstaðnum.
Það er síður en svo að allir séu sáttir við
þessar sameiningarhugmyndir. Hér er um
viðkvæm mál að ræða. sem margir mega
ekki heyra á minnst og finnst aldagömlu
sjálfstæði síns samfélags ógnað. Hinsvegar
virðist það liggja í augum uppi að sívaxandi
erfiðleikar í landbúnaði og varnarstaða
byggðar í sveitunum. gerir það að verkum
að styrking samfélaganna með samruna er
nauðsynleg. Þeir sem búa í sveitum eru
margir hverjir búnir að gera sér grein fyrir
því að þeir geta ekki nýtt verðlausar
fasteignir á jörðunum öðru vísi en vinna
með búinu. Má t.d. benda á að sveitafólki
sem þiggur atvinnu á þéttbýlisstöðunum
s.s. Sauðárkróki, Blönduósi og Hvamms-
tanga, hefur fjölgað ár frá ári.
Samt sem áður eimir enn af gamla
rígnum milli sveitanna og kaupstaðanna.
Margur sveitamaðurinn virðist ekki vera
yfir sig hrifinn að allt fari í kaupstaðinn og
þá er sjaldnast hugsað til þeirra fjármuna
sem bæjarfélagið kostar til að halda uppi
atvinnulífi. En fólkið í sveitunum á líka til
svar sem dugað gæti eitthvað móti þessari
þróun. Sem dæmi má nefna að sameinaðir
gætu hrepparnir fram í Skagafirði myndað
sterkari þjónustukjarna í Varmahlíð. Þá er
enginn vafi á því að sameiningin austan
Vatna á eftir að styrkja Hofsós.
Togara-
fréttir
Skagflrðingur landaði á mánu-
dagsmorgun 105 tonnum. Von
er á Hegranesi á fimmtu-
dagsmorgun með allmikinn
afla. Eru því líkur á að nægt
hráefni verði í frystihúsunum
þessa viku.
I gærdag var von á dælu-
pakkningum þeim sem stöðvað
höfðu Skafta frá veiðum i 4-5
daga, en þær týndust í fragt
fyrir helgina. Drangey gerði
þokkalega sölu í Þýskalandi
á dögunum, seldi um 150
tonn fyrir 117 milljónir.
Nuddið fyrir-
byggjandi aðgerð
v
Eiríkur Sverrisson nuddar af
ákafa.
Okkar góðu tilboð
um átta jalnar og
uaxtalausar gretðslur
tr^gjast 20. ntars
HATUkV
Sæmundargötu 7
„Það virðist ríkja sá útbreiddi
misskilningur hér á landi að
engin þörf sé fyrir fólk að láta
nudda sig, nema það sé
hreinlega að drepast. Sann-
leikurinn er hinsvegar sá að
nudd er fyrirbyggjandi aðgerð,
til að auka blóðstreymið og
koma þannig í veg fyrir ýmsa
kvilla”, segir nuddarinn Eiríkur
Sverrisson.
Eiríkur kom heim um
síðustu áramót eftir ársnám
við virtan nuddskóla í
Colorado, sem útskrifaði
hann sem nuddfræðing.
Eirikur opnaði nýverið nudd-
stofu á Aðalgötu 20b, á sama
stað og Líkamsrækt Eddu er
til húsa. Þar býður hann upp
á margvíslegar tegundir
nudds.
„Það virðist taka talsverðan
tíma fyrir fólk að átta sig á
þessari þjónustu. Aðsóknin
hefur verið fremur dræm til
að byrjað með og það kom
mér reyndar ekkert á óvart.
Eg á samt von á því að jretta
komi til með að aukast
smásaman.
Annars virðist það vera
þannig með Islendinga, að
þeir eru ekki eins mikið fyrir
líkamlega snertingu ogaðrar
þjóðir. Fólk hér, tjáir sig t.d.
lítið með snertingu. Eg var
var við það í náminu að
Ameríkanarnir virtust leita
rneira eftir sjálfri snerting-
unni”, sagði Eiríkur í samtali
við Feyki.
Úrvalsdeildin:
Stólarnir sliguðust
undan pressunni
Ekki tókst Tindastólsmönnum
að klckkja á meistarakandi-
dötum Njarðvíkinga í Urvals-
deildinni sl. þriðjudagskvöld.
Þrátt fyrir frábæran leik
heimamanna í Síkinu í
fyrri hálfleiknum, tókst þeim
ekki að fylgja því eftir og hinir
leikreyndu Suðurnesjamenn
sigldu fram úr í lokin.
Stólarnir voru hreint frá-
bærir í fyrri hálfleiknum.
Sóknirnar gengu fínt með
svertingjann Lee eins og klett
inni í „boxinu” og í vörninni
malaði kvörnin stöðugt,
þannig að á fjögurra mínútna
kafla um miðjan hálfleikinn
skorðu gestirnir varla stig.
Uppskeran í leikhléinu var
því ríkuleg, 15 stiga munur
Tindastólsmanna, 53:38.
I byrjun seinni hálfleiks
tóku svo Njarðvíkingarnir
upp á þeim óskunda að skella
á pressu, en sú leikaðferð
virtist verka eins og skæð-
asta farsótt á Tindastólsliðið.
Ekki bætti úr skák að Sverrir
Sverrisson fékk snemma
þrjár villur í leiknum og var
lítið með eftir það. Ekki var
að sökum að spyrja að
sunnanmenn smásöxuðu á
forskot norðanmanna og
lauk leiknum með öruggum
sigri þeirra fyrrnefndu, 98:88.
Lee fór á kostum í fyrri
hluta leiksins þar sem hann
var virkilega notaður. Þá
var Sturla mjög drjúgur
eins og hann hefur reyndar
verið í mörgum síðustu
leikjum. Lee skoraði 30 stig,
Sturla 22, Sverrir 7, Pétur
Vopni 7, Björn 4 og
Haraldur 4.
Tindastóll á tvo leiki eftir í
Úrvalsdeildinni, gegn KR í
Síkinu á sunnudaginn og
síðan á móti Haukum í
Hafnarfirði fimmtudaginn
15. mars.
Lee
farínn
Það er skarð fyrir skildi hjá
Tindastólsmönnuni að svert-
inginn James Lee er farinn af
landi brott og verður ekki með
í tveim síðustu leikjum liðsins í
mótinu.
Hann fingurbrotnaði í
stjörnuleiknum á dögunum
og í leiknum gegn Njarðvík
brotnaði síðan annar fingur.
Lee var farinn að falla mjög
vel inn í leik liðsins. Hann
hefur fullan hug á að leika
með Tindastólsliðinu næsta
vetur.