Feykir


Feykir - 07.03.1990, Side 3

Feykir - 07.03.1990, Side 3
9/1990 FEYKIR 3 Óli Arnar Brynjarsson og Guðbjartur Haraldsson vinna að frágangi skólablaðsins Molduxa, sem kom út nú fyrir opnu dagana. Opnir dagar í Fjölbrautaskólanum Bæjarfulltrúar Sauðárkróks ræða um flutning opinberra stofnana út á land: Vilja að Siglfirðingar endur- heimti SR-skrifstofurnar Bæjarstjóm Sauðárkróks hefur lýst yfir stuðningi við óskir bæjarstjórnar Siglufjarðar, þess efnis að aðalskrifstofur Síldarverksmiðja ríkisins verði fluttar á ný til Siglufjarðar. Það var Siglfirðingurinn í bæjarstjórninni Björn Sigur- björnsson sem var upphafs- maðurinn að þessu innan bæjarstjórnar Sauðárkróks. I bókuninni segirennfremur að bæjarstjórn Sauðárkróks telji að ríkisvaldið eigi að vinna mun markvissara að flutningi ýmissa þjónustu- stofnana sinna út á land. Nokkar umræður spunnust um þetta mál á bæjarstjómar- fundi sl. þriðjudag. Bæjar- fulltrúar töldu mjög óeðlilegt að skrifstofur síldarverksmiðj- anna skyldu fara frá Siglufirði á Laugardaginn 24. febrúarsl. var stofnað í V-Hún. fyrirtækið Orðtak fjaninnslustofa hf. Stofn- fundur var haldinn í Vertshúsinu á Hvammstanga. Stofnendur eru 41, einstaklingar og fyrirtæki. Hlutafé ákveðið kr. 1200 þúsund. Þegar liggja fyrir hiutafjárlof- orð að upphæð i milljón og 40 þúsund kr. Svo enn eru til sölu hlutabréf. A fundinn mættu 25 manns, samþi'kktur var stofnskrársamn- ingur svo og samþykktir félagsins. I stjórn voru kosin sr. Kristján Björnsson Brún Víðidal, Björn Einarsson Bessastöðum, Egill Gunnlaugsson, Páll Sigurðs- son og Bjarney Valdimarsdóttir. öll búsett á Hvammstanga. Til vara voru kosnir Gunnar Konráðsson og Lárus Ástvalds- son Hvammstanga. Endurskoð- endur Ingólfur Guðnason og Haukur Friðriksson Hvamms- tanga. Laugardaginn 17. febrúar voru opnuð tilboð i búnað, en engar ákvarðanir hafa verið teknar um kaup. Var því máli vísað til stjórnar. Fundarmenn voru sammála um að uppbygging fyrirtækisins skildi miðuð við eigið fé og var samþykkt tillaga þess efnis að stjórn fyrirtækisins hefði ekki heimild til iántöku nema að undangengnum hluthafafundi. Undirbúningur að stofnun þessa fyrirtækis var á vegum Átaks- verkefnis V.-Hún. og er þetta fyrsta fyrirtækið sem stofnað er í tengslum við það. Þess má að lokum geta að nú eru réttir átta mánuðir frá því leitarráðstefnan sínum tíma og ekkert sjálfsagðara en þeir fengju stuðning nágranna sinna til að endurheimta þær í bæinn. Ekki veitti af að rétta Siglfirðingum hjálparhönd, þar sem trúlega mundi þeim reynast erfitt að fá þjónustu- stofnanir til sín, vegna legu staðarins á jaðri kjördæmisins. Eins og menn þekkja hafa Siglfirðingar og Sauðkræk- ingar eldað grátt silfur í staðsetningarmálum. Síðast var það gjaldheimtan er olli síðan „naílaumræðunni” sem fræg er orðin. Á fundi bæjarstjórnar veltu menn því einnig fyrir sér hvort ekki væri rétt, á grundvelli þeirrar vitneskju að áhugi væri hjá ýmsum opinberum stofnunum fyrir var haldin á Hvammstanga, en hún var undanfari Átaksverk- efnisins. staðsetningu þeirra á Sauðár- króki, að bæjarstjómin þrýsti á um slíkt. Flestir sem til máls tóku töldu að það væri ekki heilladrjúgt að sinni, gæti m.a.s. haft þveröfug áhrif. Réttara væri að vinna málin á öðrum vettvangi. Pollamir í úrslit Sjöundi flokkur Tindastóls tryggði sér um helgina keppnisrétt í úrslitum íslands- mótsins sem fram fara á næstunni. Liðið sigraði á fjölliðamóti í Breiðholtsskóla í Reykjavík. Keppnin var í b-riðli Islandsmótsins. Tindastóll vann báða leikisína: Keflvík- inga með 40:30 og ÍR-inga 42:40. Það var Halldór Halldórsson sem var lang atkvæðamestur Tindastóls- manna, skoraði hvorki meira né minna en 38 stig í leikjunum. Ómar Sigmars- son gerði 15, Atli Þorbjörns- son 10, Davíð Harðarson 9, Guðjón Gunnarsson 8 og Hilmar Hilmarsson 2. Þjálf- ari drengjanna er Guðmundur Jensson. Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynlífsfræðingur og Magnús Skarphéðinsson hvalavinur verða meðal gesta á Opnum dögum sem hefjast í Fjölbrautaskól- anum í dag, miðvikudag. Eins og fyrr eru Opnu dagarnir haldnir í þeim tilgangi að brjóta upp hefðbundið starf í skólanum og virkja frumkvæði og hugarflug nemenda. Mjög fjölbreytt dagskrá er alveg fram á laugardagskvöld, en þá verður endi bundinn á Opnu dagana með árshátíð skólans. Nemendur munu gefa út dagblað alla dagana og starfrækja útvarpsstöð frá morgni til kvölds. Efnt verður til Ieiklistarnámskeiðs, undir handleiðslu Jóns Orms Ormssonar. Jón Egill Braga- son danskennari kennir eróbik. Þá verður snyrtinám- skeið og tilraunaeldhús í mötuneyti heimavistarinnar í kvöldmatartímanum. Gesta- kokkar verða öll kvöldin. m.a. Hörður G. Ólafsson og frú. Eru getgátur uppi um að þar verði á ferðinni „júróvisjon pottþéttur pott- réttur”. Þá verða haldin tónlistarkvöld, bókmennta- kvöld, o.m.fl. Dagskrá daganna verður kynnt rækilega bæði í dagblaðinu, útvarpinu og dreifibréfi. Skorað er á bæjarbúa og nágranna að taka þátt í þeim liðum Opnu daganna sem heimilir eru öllum. H. SAMVINNUBÓKIN Hjónin í Ytra-ValIholti treysta Samvinnubókinni fyrir peningunum sínum eins og margir fleiri. Raunávöxtun Samvinnubókar árið 1989 var 5.01% Nafnvextir Samvinnubókar eru nú 16% Ársávöxtun er því 16.64% SAMVINNUBÓKIN Hagstæð ávöxtun í heimabyggð Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga Hvammstangi: Orðtak stofnað

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.