Feykir


Feykir - 07.03.1990, Page 6

Feykir - 07.03.1990, Page 6
6 FEYKIR 9/1990 Nokkur orð um Sýslunefndarsögu flytti þangað cllefu árum síðar. I. Fyrir jólin síðustu barst mér í hendur bókin Sýslunefndarsaga Skagfirðinga, síðari hluti, eftir Kristmund Bjarnason. Fyrri hlutinn mun hafa komið út fyrir rúmlega tveimur árum. í heild er þetta mikið rit, um 600 blaðsiður auk sýslunefndar- mannatals, manna- og staðar- nafnaskrár og heimildaskrár ýmsar. Fjöldi mynda er í bókunum báðum. Mikill fengur er að sögu þessari og má hiklaust telja hana hluta af héraðssögu þeirri, sem Skagfirðingar hafa skapað sér síðustu 114 árin. Nú er það ekki ætlun mín að fjalla um sögulegt gildi heildar- verksins — ekki heldur um einstaka þætti þess. En við fljótan vfirlestur siðara bindis hnaut ég um nokkur atriði. sem ég hripaði niður og telja verður ónákvæm, jafnvel flausturslega unnin. Skal nú að þeim vikið. 1. Á blaðsíðu 13 segir: „Þá var aftur leitað í „Templarahúsið”, og þar munu sýslufundir hafa verið haldnir l'ram um 1950, eða lengur". — Væntanlega mun þá átt við að þar hafi fundahald verið eitthvað fram á sjötta áratuginn. Árið 1963sat égminn fyrsta sýslufund og þá í Templarahúsinu, og líklega hafa þeir verið haldnir þar í eitt til tvö ár í viðbót. 2. Á blaðsíðu 16 segir: „Aðalmenn í sýsluráð voru kosnir. Konráð Gíslason Varma- hlíð og Jónas Flaraldsson Völlum”. — Þetta var árið 1975. Hæpið er að skrá heimilisfang mitt i Varmahlíð þá. þótt ég 3. Á bls. 52 neðst og bls. 53segir: .. Árið 1953 lagði sýslunefnd fram til Skógræktarfélags Skag- firðinga, 1250 kr. til skógræktar- girðingar við Bólu í Blönduhlíð í Silfrastaðalandi o.s.frv." - Bóluá skiptir löndurn Bólu og Silfra- staða. Skógarreiturinn er því ekki í Bólunlandi, ekki i landi Silfrastaða. Auk þess hafa Silfrastaðir frá fornu fari tilheyrt Norðurárdal. en ekki Blöndu- í Bólulandi, ekki í landi Blönduhlíðar og Norðurárdals. 4. Á bls. 81 segir: „í janúar 1950 barst sýslunefnd bréf frá Víðivallahjónum, Helgu Sigtryggs- dóttur og Gísla Sigurðssyni”. — Þetta er auðvitað rétt. Gísli lést árið 1948 og hefði e.t.v. mátt geta þess hér, þótt dánarár hans komi fram í ritinu siðar. 5. Á bls. 119segir: „Þess má geta hér, að sýslumannhjónin, Sigurður Sigurðsson og Stefanía Arnórs- dóttir, buðu sýslunefndarmönnum jafnan í matarveislu I heima- húsum, meðan ásýslufundistóð, eða í lok hans. Varsú risna mjög rómuð og ríkti mikil gleði í þeim hófum.” — Eg hygg nú að nákvæmlega það sama hefði mátt segja um þau sýslumanns- hjón sem á eftir komu, Jóhann Salberg Guðmundsson og Helgu Jónsdóttur, og Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiði Orms- dóttur — þótt þess sé ekki getið hér. 6. Á bls 177 segir: „Hún flutti veislukost suður, hangikjöt, smjör, kæfu o.s.frv.”. Og síðar: „Henni til aðstoðar viðflutninga og annað voru Jón Jónsson frá Höskuldsstöðum og Árni Jóns- son í Miðhúsum”. — Þetta fær varla staðist. Árni Jónsson bjó í Miðhúsum 1876 - 1878. Síðan hefur enginn Árni Jónsson átt þar heima. Hér mun því væntanlega vera átt við Árna Jón Gíslason frá Miðhúsum, síðar bifreiðarstjóra á Sauðár- króki. (Sagt er frá Alþingishá- tíðinni á Þingvöllum og þátt Lilju á Víðvöllum.) 7. Á bls. 139 segir: „Sýslunefnd og oddvitar mæltust til þess að stjórn Búnaðarsambands Skag- firðinga tæki að sér að fylgja raforkumálinu eftir, fyrir hönd héraðsbúa og varð hún, að vel athuguðu máli, við þeim tilmælum. Stjórnina skipuðu: Kristján Karlsson Hólum, Jón Jónsson Hofi, Jón Konráðsson Bæ og Sigurður Sigurðsson sýslumaður”. — Að jafnaði sitja þrír, fimm eða sjö menn í stjórnum félaga, hér eru nefndir fjórir stjórnarmenn. Sá fimmti var Jón Sigurðsson á Reynistað. 8. Á bls. 172 neðst og bls. 173 segir: „Mótið setti Árni Hafstað, en sr. Tryggvi H. Kvaran messaði og „söng Karlakór Seyluhrepps” á undan og ávallt á milli ræðuhalda o.s.frv.”. — Karlakór Seyluhrepps hefur aldrei verið til og mun hér um að ræða karlakórinn „Heimi”. II. Margir sýslunefndarmenn hafa gcgnt hinum ýmsu störfum, sem til falla í hverju sveitar- og sýslufélagi og þeirra er yfirleitt getið. Mér sýnist þó að nokkurs ósamræmis gæti, hvað þetta varðar. A, er sagður skólastjóri en B, kennari, þó báðir hafi verið skólastjórar í áraraðir. Starfs- timabil sumra er nákvæmlega tíundað, annarra ekki o.s.frv. I allt eru tindar til einar tuttugu og fjórar tegundir titla, sem þessir menn eru látnir bera, allt niður í það að vera talinn kaupmaður í tvö ár. Örfá atriði, tekin af handahófi, vil ég nefna. 1. Hermann Jónsson á Ysta- Mói, var t.d. kaupfélagsstjóri í Haganesvík árin 1922 - 1937. Hann var einnig póstafgreiðslu- maður s.st. 1924-1947. Þessa er ekki getið. 2. Bjarni Gíslason er sagður bóndi. — Hann er einnig kennari frá árinu 1956 til þessa dags og meiri hluta tímans skólastjóri. 3. Eiður Sigurjónsson er sagður bóndi. — Hann var einnig kennari árin 1919 -1954. 4. Gísli Gottskálksson ersagður kennari, verkstjóri og bóndi. — En meiri hluta kennsluferilsins, 1926- 1960varhannskólastjóri. 5. Stelan Gestsson er sagður bóndi. — Hann er einnig kennari árin 1954 -1973 og frá árinu 1985. 6. Valberg Hannesson, sagður kennari og bóndi. — Hann hefur verið skólastjóri frá árinu 1959. 7. Þorsteinn Hjálmarsson var oddviti Hofsóshrepps, árin 1955 - 1974. Þess er ekki getið. 8. Jón Guðmundur Gunnlaugs- son er sagður bóndi á Hofi 1981 -1988. — Hið rétta erað hann bjó á Hofi árin 1951 -1988. 9. Guðmundur Vilhelmsson er sagðurfæddur árið 1914. — Efsvo væri, þá ber Guðmundur aldurinn vel. Samkvæmt íbúa- skrá Skagafjarðarsýslu er hann fæddur árið 1943. Sýslumaður réði jafnan ritara fyrir hvern fund, og voru þeir ætíð seni einn úr hópnum. Vel hefði mátt greina þá. Eins þeirra er að vísu getið og þá í sambandi við vísna- og Ijóðagerð. Mér er tjáð, að lengst af þessari öld hafi Konur í Skagafirði! Vinnuvaka Sambands skag- firskra kvenna verður að Löngumýri dagana 16.-18. mars. Maetum allar á staðinn og vinnum fyrir minjasafnið i Glaumbæ. Kaffisala og basar nánar auglýst síðar. Vinnuvökunefnd þrír menn gegnt þessu starfi. Guðmundur Davíðsson á Hraun- um, Stefán Vagnsson og Rögn- valdur Gíslason. III. Upphaf Sýslunefndarsögu — fyrri hluti — hefst á tillögu þeirri, sem flutt var og samþykkt á sýslufundi árið 1975, og varð þess valdandi að sagan var skráð. Nafn fyrsta flutnings- manns hverrar tillögu er jafnan fyrst og síðan nöfn meðflutnings- manna, þeirra er fyrsti flutnings- maður fær til að flytja málið með sér. Hér er brugðið frá venju, sem alls staðar er viðhöfð. Hér eru nöfn flutningsmanna tekin úr sýslufundargjörð og raðað i stafrófsröð. Ekki sýnist mér að viðlíka vinnubrögð séu viðhöfð annars staðar í ritinu. Og ekki veit ég ástæðu þess, að slíkt er gert hér. Mér er raunarþvert um geð að geta þess, sem þó er rétt, að undirritaður var fyrsti flutnings- maður þessarar tillögu, eins og greinir í sýslufundargerð, og mælti fyrir henni í sýslunefnd. (En hefði vel getað unnt vini mínum, Birni frá Sveinsstöðum þess.) Hér skal numið staðar með upptínsluna. Allt eru þetta raunar smávægilegar athuga- semdir og agnúar, og mætti þó e.t.v. fleiri finna ef vandlega væri lesið. En það er lítils um vert á móts við hitt, sem vel er um verkið og veltur þó á miklu að reynt sé að sneiða hjá villum og veilum í frásögn t þvíliku riti, sem litlar líkur eru til að aftur verði útgefið í bráð. Að bókunum báðum er mikill fengur, eiga þar myndirnarsinn þátt og eigi lítinn. Til sölu Hillusamstæða, símabekkur og barnarúm sem er 1.50 m á lengd ertil sölu. Upplýsingar í síma 35740 eftir kl. 19. Bílskúr óskast Óska eftir að taka á leigu bíl- skúr. Upplýsingar í sima 35759. Húsnæði óskast! Óska eftir að taka á leigu 4-5 herbergja íbúð á Sauðárkróki frá 15. júlí nk. Upplýsingar í síma 35542. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu Önnu Hjartardóttur frá Geirmundarstöðum Guð blessi ykkur öll Gennlaugur Valtýsson Jóhtnna Haraldsdóttir Hjörtur Gunnlaugsson Haraldur Gunnlaugsson Va'týr Gunnlaugsson Geirmundur Valtýsson Mínerva Björnsdóttir Hjörtur S. Geirmundsson Valbjörn H. Geirmundsson Siemens innbygg- ingartæki í eldhús Hjá okkur fáið þið öll tœki á sama stað: Eldavól- ar, uppþvottavólar, kæliskápa, frystiskápa, ör- bylgjuofna, kaffivóiar, hrærivólar, brauðristar og þannig mætti lengi telja. SIEMENS er trygging ykkar fyrir góðum tækjum og samræmdu útliti. íslenskir leiðarvísar fylgja með. @ rafsjá hf Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Sími 95-5481 Konráð Gíslason. Ókeypis smáauglýsingar

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.