Feykir - 13.06.1990, Síða 1
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Könnun á verslun í heimabyggð:
Sauðárkrókur einn fimm
„hreinna markaðssvæða”
Sauðárkrókur er einn fimm
bæjarfélaga í landinu, sem
skera sig úr sem „hreinir
svæðisbundnir markaðir. í
könnun sem Verðlagsstofnun
gerði nýlega kernur fram að
íbúar þessara bæjarfélaga
keyptu yfir 90% allrar vöru og
þjónustu innan svæðisins.
Könnunin náði til 34 flokka
vöru og þjónustu.
Sauðárkrókur er þarna í
félagskap, Reykjavíkur. Akur-
eyrar, Húsavíkur og Nes-
kaupsstaðar. Akureyri er
með hæsta hlutfallið 96%. þá
Húsavik með 93%. Revkja-
\ ík 92%, Sauðárkrókur 91%
og Neskaupsstaður 90%.
A Norðurlandi vestra
beinast innkaup utan sveitar-
félags einkum til Akureyrar
og Reykjavíkur. Sauðkræk-
ingar og Blönduósingar
versla meira í Reykjavík en á
Akureyri. Siglfirðingar beina
innkaupum sínum hinsvegar
meira til Akureyrar en
Reykjavíkur. Blönduósingar
versla samkvæmt könnuninni
83% í heimabvggð, en
Siglfirðingar 80%.
Eins og lesendur blaðsins
liafa sjálfsagt veitt eftirtekt
hefur það sífellt hamrað á,
verslið í heimabyggð, eins og
reyndar Víkurblaðiðá Húsa-
vík, ef ekki Dagur einnig.
Ekki er fjarri lægi að ætla að
áróður þessi hafi borið
tilætlaðan árangur.
„Kvennaveldið”
fallið í
í kosningunum í Lýtingsstaða-
hreppi gerðist það nú að
„kvennaveldið”, sem upp kom
í hreppsnefndinni eftirsíðustu
kosningar, féll. Konur verða
nú tvær í hreppsnefnd í stað
þriggja áður. Þá verða
talsverðar breytingar, þar
sem þrír nýir hreppsnefndar-
menn koma inn í Itana, í stað
Borgars Símonarsonar í Goð-
dölum, Guðmundar Helga-
sonar í Arnesi og Svanhildar
Pétursdóttur á Giljum.
Talning atkvæða hófst í
Steinsstaðaskóla um klukk-
Lýtó
an ellefu og var lokið um
þrjúleytið aðfaranótt sunnu-
dags. Á kjörskrá í Lýdó voru
191, 134 kusu eða 70,2%.
I hreppsnefnd voru kjömin
Elín Sigurðardóttir oddviti
Sölvanesi 98, Rósa Björns-
dóttir Hvíteyrum 63. Guðsteinn
Guðjónsson Tunguhálsi I 59,
Valgarð Guðmundsson Tungu-
hlíð 37 og Indriði Stefánsson
Álfgeirsvöllum 36. Fyrsti
varamaður í hreppsnefnd
verður síðan Eyjólfur Páls-
son á Starrastöðum, en hann
hlaut 32 atkvæði.
Þeir sögðust lítið hafa breyst, sumir bara fitnað aðeins, 41 árs gagnfræðingar frá
Gagnfræðaskóla Sauðárkróks, sem hittust á Króknum um helgina. Nánará síðu 4 I blaðinu.
Ljósm. St. Ped.
Mesta kjörsókn á landinu
í Skarðshreppi
meirihlutinn hélt naumlega velli
Það var mjótt á mununum í
Skarðshreppnum að þessu
sinni. L-listann skorti einungis
tvö atkvæði til að fella
nieirihluta H-listans í hrepps-
nefndinni. Til samanburðar
má geta að 14 atkvæðum
munaði á þessum framboðum
í síðustu kosningum. Það er
greinilegt að fólki er ekki
sama hvor fylkinganna hefur
yfirtökin í hreppsnefndinni,
þar sent einungis einn af 76
sem voru á kjörskrá lét sig
vanta. Sá hefur aldrei neytt
kosningaréttar síns, sökum
sjúkleika.
,,Eg er mjög ánægður með
úrslitin”, sagði Ulfar Sveins-
son efsti maður H-listans.
Við þeirri spurningu blaða-
manns hvort naumur sigur
þeirra þýddi það að íleiri í
hreppnum væru að verða
fylgjandi aukinni samvinnu
við Sauðárkrók sagðí Úlfar:
„Þrjú atkvæði er ekkert svo
lítið. T.d. munaði nú minna í
prósentum talið að meiri-
hlutinn á Króknum félli. Eg
verð nú að segja að mér finnst
þetta einkennileg fréttamennska
hjá þér þessi áhugi á
kosningum í Skarðshreppi
umfram aðra hreppa í
héraðinu. Eg vil ekkert segja
á þessari stundu við seinni
spurningunni. Við verðum
bara að sjá til hvort það komi
frani í tillöguflutningi minni-
hlutans”, sagði Úlfar.
„Við erum ntjög ánægð
með útkomuna og viljum
sérstaklega þakka stuðning
ungs lölks, nýrra kjósenda
sem greinilega hafa lagst á
sveif með okkur”, sagði
Sigrún Aadnegaard hrepp-
stjóri á Bergsstöðum annar
maðurá L-lista. Sigrún kvað
ekki beint hægt að túlka
hlutina á þann veg að
fylgjendum aukinnar sam-
vinnu við Krókinn hefði
fjölgað svona mikið.
Á kjörskrá í Skarðshreppi
voru 76, atkvæði greiddu 75.
eða 98,7%-. H-listi hlaut 39
atkv. og 3 menn; Úlfar
Sveinsson Ingveldarstöðum.
Jón Eiríksson Fagranesi og
Sigurð Guðjónsson Sjávar-
borg. L.-listi 36 og tvo menn;
Andrés Helgason Tungu og
Sigrúnu Aadnegaard Bergs-
stöðum.
Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
JHQ [ bilaverkstddi 9!)5W
ISAUOAWKiíOíU mmrn 0I7#-J102
SÆMUNDARGOTU
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysth og kæliþjónusta
Bíla- og skiparafmagn
l/'J-p • >"M sími: 95-35519
"|\TCH9l!l \y\J\ Bílasími; 985-31419