Feykir


Feykir - 13.06.1990, Side 3

Feykir - 13.06.1990, Side 3
22/1990 FEYKIR 3 Messað úti á miðjum Skagafirði Það væsti ekki um farþegana úti á dekki í blíðunni. Sigurður Agnarsson bátsmaður flutti hugvekju. Þar sem Sauðárkrókskirkja er ómessufær vegna lagfæringa var gripið til þeirrar nýbreytni á sjómannadaginn að messa um borð í einum togaranum út á miðjum firði. Það voru um 400 manns sem sóttu messu um borð í Skagfirðingi í hlíðskaparveðri, hlankalogni þannig að hafflöturinn var spegilsléttur. Þrátt fyrir mannfjöldann var nóg rúm á skipinu. Eftir stutta prédikun prófastsins séra Hjálmars, lásu Björn Jónasson skipstjóri á Drangey og Kristján Helgason skip- stjóri á Skagfirðingi upp úr ritningunni. Þá flutti Sigurður Agnarsson bátsmaður hug- vekju og vék þar að lífi og starfi sjómannsins, tengsla hans við kristna trú, m.a. að fyrstu lærisveinar Jesú hefðu verið sjómenn. Kristján Helga- son skipstjóri vék einnig að því í þakkarorðum til viðstaddra í messulok hversu kirkjan væri sjómönnunum mikið, og benti á að ljósið í kirkjuturninum væri eirín helsti ratvísir skipstjórnenda þegar siglt væri í höfn. Farandorgelið og Rögn- valdur Valbergsson var með í för, en að þessu sinni voru það sjómannskonur sem sáu um sönginn. Séra Hjálmar vék að líkingum í sínum texta, að talað væri um kirkjuskipið, sem meginhluta kirkjubyggingar. Frelsarinn hefði á sínum tíma skotið út báti til að ná betur til mannfjöldans. Kvað séra Hjálmar allt þetta eiga vel við í dag. Rækjuvinnslan Dögun: Missti báta úr viðskiptum fyrirvaralaust Hættur vegna leysinga í Fljótum: Lambærnar vaktaðar allan sólarhringinn „Þetta er alveg að koma. Jörðin kemur iðgræn undan snjónum og það er ekki að sjá neitt kal. Eg er að byrja að láta kindurnar út þessa dagana, en þetta eru gífur- legar hættur alls staðar. Það þarf að vakta lambærnar allan sólarhringinn”, sagði Númi Jónsson bóndi á Reykjarhóli í Austur-Fljótum. „Annars er ég vel settur hérna á Reykjarhóli miðað við suma aðra. Það er t.d. allt á kafi í Stíflunni enn. Eg var að korna þaðan áðan, ætlaði að fara þangað með gelda gelminga, en það þýðir ekkert”, bætti Númi við. Hann segir stórfenni til fjalla enn, í gilskorningum og enn sé snjór á túnum. ,,Eg get ekki séð að menn sleppi á fjall hér fyrr en upp úr 20. Menn fara sjálfsagt að huga að áburðardreifingu bráðlega, þó að þeir verði ekki lausir við féð. Maður hefur stundum þurft að gera það og ég fer að bera á kúahaga kannski strax í dag, rendurnar sem komnar eru upp úr snjónum. Já, það er nóg að gera þessa dagana, og það þýðir víst ekkert annað en harka þetta áfram, þó að snjórinn endist svona lengi hjá okkur annað árið í röð. Við förum að verða vanir þessu hérna”. Númi sagði greinilegt að Fljótamenn hæfu ekki slátt fyrr en í lok júlí eins og í fyrra. Eitt af verkum Fljóta- bænda þessa dagana er að gera við girðingar sem eru að koma upp úr snjónum, illa farnar eftir óvenju þéttan og þungan snjó. „Það hefur verið fremur lítið að gera hjá okkur undanfarið. í síðstu viku var t.d. aðeins unnið í þrjá daga. Það sem gerir þetta, er að við voruni svo óheppnir að missa tvo háta úr viðskiptum nánast fyrir- varalaust”, sagði Omar Þór Gunnarsson nýráðinn fram- kvæmdastjóri í rækjuverksmiðj- unni Dögun í samtali við Feyki fyrir helgina. Eigandi Erlings tók upp á því að kaupa sér rækjuverk- smiðju á Suðurnesjum, sem vinnur nú afla skipsins. „Þeir yfirbuðu síðan Rauðseyna í Þormóði ramma á Siglufirði. Svo í dag er Hilmir sá eini sem veiðir fyrir okkur, en von bráðar fer svo Haförn að landa hjá okkur, en Dögun á hlut í þeim bát. Síðan verðum við að reyna að fá fleiri báta í viðskipti, þó að það sé erfitt þegar vertíðin er byrjuð”. sagði Omar. Omar kvað gott ef tækist að halda átta tímunum þessa dagana. I vetur var nægt hráefni í Dögun, þegar veiðar á innfjarðarrækjunni stóðu yfir og talsvert mikil vinna. SAMVINNUÐÓKIN Raunávöxtun Samvinnubókar árið 1989 var 5.01% Nafnvextir Samvinnubókar eru nú 11.5% Ársávöxtun er því 11.83% Hagstæð ávöxtun í heimabyggð Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.