Feykir - 13.06.1990, Qupperneq 4
4 FEYKIR 22/1990
Staðarskáli
30 ára
Skólalúðrasveit Hvammstanga lék nokkur lög við Staðarskála í tilcfni afmælisins.
póstleiðinni milli Akureyrar
og Reykjavíkur. Var þar
fastur skiptistaður fyrir póst
fram til 1930. Árið 1929 var
ÍL
sett upp fyrsta bensíndælan
af danska olíufélaginu D.D.A.P.
Skammstöfunin var færð
upp á íslensku „danskir
djöflar pína alþýðuna”. Mun
það hafa verið gert af
sjálfstæðissinnum. Seinna varð
félagið Hið íslenska steinolíu-
félag. nú Olíufélagið hf.
Þróun bílaumferðar og sam-
gangna jókst og bensínskúr
þótti gífurleg framför. Árið
1960 var byggt 120 nr húsog
hófst þá sala á smáréttum s.s.
hamborgurum og frönskum,
þótti slikt nýlunda við
þjóðveginn.
Staðarskáli var kontinn á
landakortið . Húsið varsíðan
stækkað í núverandi mynd
1971. Hann hefur þróast úr
sjoppu í notalegan veitinga-
stað sent þjónar vegfarendum
allt árið auk þess að hýsa
samkomuhald sveitanna bæði
í gleði og sorg. Þorrablót og
erfisdrykkjur. Þeir bræður
Eiríkur og Magnús Gíslasynir
ásamt Báru Guðmundsdóttur
konu Magnúsarreka Staðar-
skála. Þegar Magnús var
spurður hvenær hann hefði
byrjað í ferðamannaþjónust-
unni svaraði hann kankvís
„Eg hef verið í þessu frá
fæðingu”. Hið sama ntá segja
um aðra heimilismenn á Stað
nenta Báru, hún segist hafa
byrjað með tilkomu skálans.
H.
Staðarskáli í Hrútafirði er 30
ára um þessar mundir, nánar
tiltekið 9. júní. Er ýmislegt
gert til hátíðabrigða eins og
venja er á slíkum tímamótum.
Steingrímur Sigurðsson list-
málari opnaði málverkasýn-
ingu þar 2. júní sem mun
standa til 19. júní.
Á sýningunni eru 69 verk
frá ýmsum tímum. Myndefni
sumra þeirra er sótt í
Húnaþing. Sýningin er fjöl-
breytt og sýnir margslungið
tilfinningalíf listamannsins,
setur hún notalegan blæ á
staðinn.
Ymsir listamenn af tónlistar-
sviðinu kornu frant í Staðar-
skála um hvítasunnuhelgina,
s.s. Lúðrasveit Blönduóss,
Ingimar Eydal. Guðjón Páls-
son, Elínborg Sigurgeirsdóttir
og Sigurður Daníelsson.
Áning ferðamanna á sér
langa sögu á Stað í
Hrútafirði. Fyrir rúmri öld
ákváðu yfirvöldaðskipta þar
Staðarskáli nýbyggður.
41 árs gagnfræðingar hittast á Króknum:
„Enginn hafði breyst neitt
að ráði, bara sumir fitnað”
Um helgina kom saman á
Sauðárkróki fyrsti árgangur-
inn sem útskrifaðist sent
gagnfræðingar frá Gagnfræða-
skóla Sauðárkróks, er farið
liafði i gcgnum allan skólann.
Það var fyrir 41 ári í
skólastjóratíð séra Helga
Konráðssonar. I fyrra stóð til
að minnast þcssara timamóta,
en af því gat þá ekki orðið.
Þeir voru 31 gagnfræðing-
arnir sem séra Helgi útskrif-
aði vorið 1949. Fjórir þeirra
eru nú látnir og sjö áttu ekki
heimangengt á bekkjarmótið.
Þeir voru því 20 bekkjar-
félagarnir sem komu saman
á Króknum á laugardaginn.
Fæstir eru búsettir þar í
dag, einungis fjórir. Margir
komu því um langan veg,
enginn samt eins og Valgarður
Jónsson sem kom frá
Bandaríkjunum. Þota með
hann innanborðs lenti á
Keflavíkurflugvelli klukkan
sjö um morguninn. Þar beið
Friðrik bróðir hans áfólksbíl
og skutlaðist með hann
norður.
Mótið hófst með athöfn
við Gagnfræðaskólann um
tvö leytið. Þar voru gróður-
settar átta trjáplöntur. Að
því búnu hélt hópurinn til
Hóla, þar sem dómkirkjan
var skoðuð og gengið um
staðinn. Þá var aftur haldið á
Krókinn og virt fyrir sér í
huganum breytingar síðustu
40 ára, m.a. bækistöðvar
hitaveitunnar heimsóttar.
Skoðunarferðinni um bæinn
lauk síðan með því að haldið
var í gamla skólann við
Sæmundargötuna. „Þar þráttaði
hópurinn um það hvar hver
hafði nú setið. Allir fundu þó
sætin sín og þarna sátum við
eins og við gerðum í gamla
daga. Enginn hafði breyst
neitt að ráði, bara sumir
Halló Skagfiróingar - Húnveíninöar
Nú fara sumargestirnir, vinir og
vandamenn aö streyma til okkar.
Væri ekki gott að eiga góðan svefnsófa
í gestaherbergið?
Nýkomnir tveggja manna sófar í
ýmsum gerðum
Húsgagnaverslun Sauöárkróks
Öldustíg 7 - Sauöárkróki
Sími 95-35363
Trjáplöntur gróðursettar við skólann.
fitnað aðeins”, sagði Simmi
Pöllu einn 20 menninganna.
Um kvöldið borðaði svo
hópurinn saman ogskemmti
sér fram eftir nóttu. „Þetta
var alveg dýrleg skemmtun
og heppnaðist ákaflega vel.
Veðurguðirnir léku líka við
okkur, enda var ég búinn að
leggja inn beiðni hjá Jóni
Baldvin og Stebbi Díllu hjá
Steingrími”, sagði Simmi.