Feykir


Feykir - 13.06.1990, Síða 5

Feykir - 13.06.1990, Síða 5
22/1990 FEYKIR 5 Drangeyjarfjöru. Mynd- SBÞ/Landið þitt. Frá Ferðafélagi Skagfirðinga Ferðafélag Skagfirðinga hefur nú starfað á þriðja áratug og viðfangsefni þess komin í nokkuð fastarskorður. Verkefni þess eru einkunt á tveimur sviðum. í fyrsta lagi stendur félagið fyrir ferðum um byggðir og óbyggðir með kunnugum leiðsögumönnum .svo bæði félags- menn og aðrir geti kynnst landi sínu sem best, og í öðru lagi hefur það staðið fyrir byggingu gistiskála og í góðri samvinnu við Vegagerð ríkisins unnið að endurbótum á öræfaleiðum. Félagið stendur á hverju ári fyrir hópferðum. eins og fyrr greinir, og á sumar þeirra er koniin hefð. Dæmi um það eru þrettándaferðir í Trölla, en flestar eru þó ferðirnar á ýmsa áhugaverða staði og svæði, sem ætla má að fólki þyki akkur í að kynnast. Næsta ferð ferðafélagsins er laugardaginn 16. júní, og verður þá í samstarfi við systurfélagið á Akureyri efnt til ferðar út í Málmey. Verður farið frá Sauðárkrókshöfn kl. 10 að morgni og áætlað að korna aftur um kl. 16.00. — Farkosturinn verður skip Drangeyjarjarlsins, Nýi Víkingur. Þátttökutilkynn- ingar verða að liafa borist í siðasta lagi á hádegi á föstudag, 15. júní. Síðustu helgi í júlimánuði verður svo efnt til nýbreytni í starfsemi félagsins, en þá verður l'ólki gefinn kostur á ókeypis ferð i Ingólfsskála, sem félagið reisti norðan Hofsjökuls fyrir nokkrum árurn. Þar er ætlunin að verði kvöldvaka á laugar- Úrslit í 4. deild Hvöt sigraði Neista og Kormákur Þrym í fyrstu leikjum Norðvesturlandsriðils 4. deildar Islandsmótsins í knattspyrnu, sem fram fóru sl. þriðjudagskvöld. Báðir leikirnir enduðu 3:1 og gagnstætt því sem gerst hefur í HM til þessa, tókst liðunum sem fyrr skoruðu ekki að halda fengnum hlut. dagskvöldið og ferðin að öðru leyti notuð til að kynna fólki starfsemi lelagsins. I byrjun október verður svo farin árleg haustferð í Ingólfsskála til frágangs fyrir veturinn, en siðasta skipulega ferð félagsins á árinu verður aðventuferð í Ingólfsskála, sem er að vísu háð veðri og færð, en undanfarin ár hafa nokkrir félagar efnt til slíkrar ferðar á fjallabílum og þykja hafa tekist vel. Ekki er hægt að ljúka við þessa frásögn án þess að geta þess að nú í vor var undirritaður samningur milli Ferðafélagsins annarsvegar og landeigenda í Austurdal og Akrahreppi hins- vegar um byggingu fjallaskála í Austurdal, þar sem heitir Hildarsel. Er það skammt utan skógarsvæðisins í Fögruhlíð. Sarnið hefur verið við Tré- smiðjuna Yr á Sauðárkróki um að byggja skálann í einingum og er áformað að reisa hann i byrjun september. Gengið var frá grunni skálans sl. haust og Ieyfi veður og færi ætti að vera hægt að Ijúka skálasmíðinni fyrir haustið. A þessurn slóðum er náttúrufegurð mikil en næsta fáir hafa lagt þar leið sina um nema gangnamenn. Akvegur er ekki um þessar slóðir og á leiðinni eru óbrúaðar, straum- þungar og grýttarár.sem ófærar eru öllum venjulegum farar- tækjum nenia við sérstakar aðstæður. A Abæjará er hins- vegar göngubrú, og uppi eru áætlanir rneðal aðstandenda skálabyggingarinnar að gera aðra slíka yfir Tinná. Verður þá mögulegt að fara gangandi um þessar slóðir og verður án efa vinsæl leið af göngugörpum að ferðast úr Laugarfelli norður með Jökulsá austari niður dalinn. Getur þessi skáli ásamt með Sesseljubæ við Grána skipt leiðinni í hæfilega áfanga. Ferðalclag Skagfirðinga er öllum opið og allir velkomnir í ferðir þess. Félagsmenn njóta aðildar sinnar í lægra gistigjaldi! skálum og fargjalds i ferðum félagsins, auk þess sem hin vandaða árbók Ferðalelags íslands fylgir í árgjaldinu, en það rit, sem komið hefur út samfleytt í rúm 60ár,ereinhver ítarlegasta og vandaðasta Islands- lýsing sem völ er á. I stjórn Ferðafélags Skagfirð- inga eru nú: Ingvar B. Sighvats formaður, Friðrik A. Jónsson gjaldkeri, Ingimundur Sverris- son ritari og Ebba Kristjánsdóttir og Finnbogi Stefánsson með- stjórnendur. GÞG Nýr oddviti Erlendur Eysteinnson á Stóru- Giljá var kosinn oddviti Torfalækjarhrepps á fyrsta fundi hreppsnefndar. Erlendur tekur við oddvitastarfinu af Torfa Jónssvni á Torfalæk sem hafði gegnt því til fjölda ára. I kosningunum í Sveinstaðar- hreppi nú brá svo við að sjálfstæðismenn fengu lánaðan framsóknarmann í efsta sætið, Björn Magnússon á Hólabaki. Er Björn oddvita- efni, en Þórir Magnússon á Syðri-Brekku hefur gefið embættið laust. Eru þá upptaldir nýir oddvitar í A- Hún. Feykir hefur lítið frétt af nýjum oddvitum í Skagafirði og Vestur-Hún., og ágætt ef fréttum þeim efnis væri komið til blaðsins. Þó er vitað að hinn frái frétta- haukur þeirra Fljótamanna, Orn Þórarinsson í Ökrum, mun taka við oddvitastarfi af Valberg Hannessyni, sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi setu í hrepps- nefnd. „Gamla fólkið” á vinabæjarmót Fríður flokkur Sauðkrækinga var viðstaddur vinabæjarniót í Esbo í Finnlandi um síðustu helgi, með bæjastjórann Snorra Björn og frú í broddi fylkingar. Auk þeirra var einn fulltrúi frá hverju framboði á mótinu ásamt maka. Það voru fulltrúar úr fráfarandi bæjar- stjórn sem fóru, og því haft á orði að ,,gamla fólkið” væri að fara á vinabæjarmót. Mótið stóð yfir í þrjá daga. Þetta var eitt af aðalmótun- um sem haldin eru þriðja hvert ár til skiptis í vinabæjunum. Á milli eru síðan haldin svokölluð fag- mót, en þá hittast fulltrúar ýmsra fyrirtækja og stofnana í vinabæjunum. Bæjarfulltrúarnirsem fóru til Esbo voru Aðalheiður Arnórsdóttir, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Björn Sigur- björnsson, Hörður Ingimars- son og Magnús Sigurjónsson. Skagfirðingar - Sauðárkróksbúar Allir muna okkar frábæra snyrtivöruúrval FEhlDI Nýr ilmur FENDI fyrir herra llmurinn ómótstæöilegi 0 Einnig nýr ilmur fyrir dömur RED DOOR frá Kylfingar TROPHEE golfilmurinn vinsæli Einnig mikið úrval af tískuskarti Barnavörur í úrvali SAUÐÁRKRÓKS APÓTEK AÐALGÖTU 19 - SÍMAR 35336, 36784

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.