Feykir


Feykir - 18.07.1990, Side 3

Feykir - 18.07.1990, Side 3
27/1990 FEYKIR 3 Varðskipið Týr lá við bryggju á Sauðárkróki á sunnudag. Um kvöldið hélt skipið með flokk vísindamanna út í Kolbeinsey til djúpsjávarmælinga á stærð evjarinnar. Með í för var samgönguráðherra Steingrímur Sigfússon. Það var vel við hæfi að lagt væri úr höfn á Króknum, þar sem Stefán Guðmundsson þingmaðurinn í Suðurgötunni beitti sér hvað harðast fyrir verndun þessa mikilvæga grunnlínupunkts íslenskrar landhelgi. Á síðasta ári var byggður þyrlupallur í Kolbeinsey eins og eflaust marga rekur minni til. Næg vinna í frystihúsunum Næg vinna er í frystihúsunum við Skagafjörð þessa dagana, enda moknskerí hjá togurun- um fyrir vestan land. Hegranes landaði 190 tonnum á mánudag og von er á bæði Drangey og Skafta í vikunni með fullfermi. Einar Svansson framkvæmda- stjóri Skagfirðings var hress og sagði að ekki væri yfir neinu að kvarta meðan fiskeríið væri svona gott og næg vinna í húsunum. Hann kvað kvótamálin líta bara nokkuð vel út. Að minnsta kosti væri ekkert að óttast á næstunni og líklega yrði þetta allt í besta lagi þegar kæmi lengra fram á árið. I síðustu viku komu í heimsókn í Fiskiðjuna, Guðjón B. Olafsson forstjóri Sambands- ins, Sigurður Markússon nýkjörinn stjórnarformaður og Benedikt Sveinsson fram- kvæmdastjóri sjávarafurða- deildar. Leist þcim hið besta á aðstæður allar og matvæli þau sem framleidd eru í Fiskiðjunni. Framkvæmdir við stækkun Sauðárkrókskirkju standa nú sem hæst. Kirkjan verður lengd í vestur er nemur kórnum. Áætíað er að hún verði tekin í notkun að nýju 12. nóvember í haust. Stuðmenn í Miðgarði: Tónleikar urðu að dansleik Tónleikarnir sem Stuðmenn hugðust standa fyrir í Mið- garði sl. laugardagskvöld breyttust í dansleik. Fyrir vikið varð hljómsveitin að greiða bæði skemmtanaskatt og virðisaukaskatt af sam- komunni, eftir mikið þref við skattheimtumenn. Stuðmenn sætta sig engan veginn við meðferð mála og hyggjast leita réttar síns. Lengi hefur staðið styr milli Stuðmanna og „Skatt- manns” hvort þeim beri að greiða skatta af sínum samkomum, sem þeir kalla tónleika, en margir vilja meina að séu í raun ósköp venjulegir dansleikir. Sagt er að Stuðmenn hafi ætlað að láta sverfa til stáls í Skagafirði. Sé það rétt er hægt að efast stórlega um sögukunnáttu þeirra, því fornar sögur segja frá því að Skagfírðingar hafi ekki tekið slíku sverðaglammi með sínu orðlagða jafnaðar- geði, heldur brytjað gest- komandi herskara niður. Til að framfylgja lögum fyrirskipaði sýslumaður Skag- firðinga að stólum skyldi raðað í sal og veitingasala yrði lokuð nema í hlé tónleikanna. Strax og Stuð- menn byrjuða að spila voru stólar fjarlægðir úr salnum og rýmt fyrir dansgestum, en veitingar voru aðeins seldar í tveim hléum sem hljómsveit- in gerði á leik sínum. Hefur því trúlega verið drukkið meira óblandað en venjan er á dansleikjum. Þrátt fyrir það fór hann hið besta fram og tæplega 400 gestir skemmtu sér hið besta, enda Stuðmenn hin besta danshljómsveit. Vegna sumar- leyfa starfsfólks kemur Feykir næst út 15. ágúst Húseign til sölu Til sölu efri hæð í tvíbýli við Hólaveg. íbúðin er 4 herbergi, 126 fm. Upplýsingar á daginn í síma 36670 og á kvöldin í síma 35571, Hilmar. 71* 7 • KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA AUGLÝSIR: Felagsmannatilboð 20. juli - 4. agust 20% afsláttur á og 15% afsláttur garðhúsgögnum og garðáhöldum (sláttuvélum o.þ.h.) Samkort jafngildir staðgreiðslu. á reiðhjólum gegn staðgreiðslu. VERIÐ VELKOMIN

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.