Feykir - 18.07.1990, Blaðsíða 5
27/1990 FEYKIR 5
eykir í boði Austfirðinga á Vatnajökli og Jökulsárlóni
Dýrindis matarpakki frá Hótel
og Geysi og fleiri náttúru-
perlur. Komið var á Horna-
fjörð um hálftólf leytið og þá
lagt af stað upp aðjöklinum
með rútubíl frá Austurleið.
Alveg var það með ólíkindum
sem rútunni var boðið, í
þungri fær í vegaslóða upp að
jökulrótunum, enda leysingar
langt í frá afstaðnar. Enda
þótti ekki mikið þó hópurinn
þyrfti á einum stað að ganga
smáspöl.
Stundarinnar notið
Uppi við jökulrótina biðu
menn frá Jöklaferðum með
snjósleða handa hópnum og
það kom í hlut lians að vígja
nokkra flunkunýja vélsleða
sem fyrirtækið var nýbúiðað
fá frá Svíþjóð.
Eftir tíu mínútna keyrslu á
sleðunum var komið upp að
skálanum. Þar beið gimilegur
hádegismatarpakki frá Hótel
Höfn. Lét hópurinn fara vel
um sig í stund í baðandi
sólskininu uppi á jöklinum,
en að sögn Tryggva er oft
veðursæld mikil á jöklinum.
Tíminn leið ótrúlega hratt
þarna uppi. enda var maður
ekkert að hugsa um hann,
heldur naut stundarinnar til
hins ítrasta. Það er liður í
ferðinni að þátttakendur fái
að fara einir síns liðs á sleða
frá skálanum og upp á
svokallaða Miðfellsegg. en
þaðan, um 1000 metra vfir
sjávarmáli, er útsýn mjög
góð.
Jökulsárlón,
Grænlandsígildi
Það var orðið áliðið dags
Höfn snæddur úti á skafli.
þegar við komum ofan af
jöklinum, og hafði dagskráin
raskast nokkuð. Þó þótti
ekki hægt annað en aka um
Suðursveitina og að Jökulsár-
lóni eins og ráð var fyrirgert.
Við Lónið tók á móti okkur
Fjölnir Torfason bóndi á
Hala. fæðingarstað Þórbergs.
Það er bílbáturinn þeirra
fyrir austan sem notaður er
til fólksHutninga á Lóninu.
Jökulsárlón er f'urðulegt
náttúrufyrirbæri. en jökullinn
skríður fram í þaðogbrotnar
stöðugt í hina fjölbreytileg-
ustu jaka. Er engu líkara en
maður sé kominn til Græn-
lands, enda segja þcir hjá
innanlandsfluginu, að ferð-
irnar í Jökulsárlón keppi
mjög við leiguflugið til
Grænlands.
Sjávarfalla gætir í Lóninu,
sem er mjög djúpt strax við
bakkana, lleiri tugir metra
undir sjávarmáli þar sem það
er dýpst. Fjölnir sagði okkur
að kvöldið áður hafi Lónið
verið autt, sjávarföllin hafi
borið jakana upp að jökul-
brúninni. Siglingin á Jökuls-
árlóninu var enn eitt æfintýrið í
ferðinni.
Ýmsir möguleikar
Tryggvi var spurður hvað
ferð ájökulinn mundi kosta
hinn almenna ferðamann.
Sagði hann ýmsa möguleika
þar í, allt eftir því hvort fólk
væri á eigin bíl og þar fram
eftir götunum. Sem dæmi
nefndi hann að ef ferðamaður
kæmi á sínum eigin bíl GePpa
eða fjórhjóladrifnum) uppað
jöklinum, mundi ferð á
snjósleða upp ájökulinn með
hádegismat, kosta um 4000
krónur fyrir manninn.
Soffía Káradóttirblaðamaður
með 12 þúsund ára gamlan
ískristal úr Vatnajökli. Kristall-
inn var á floti í Jökulsárlóni.
Tölvueigendur!
Nú stendur til að kaupa módem fyrir PC samhæfðar og
Amiga tölvur. Módem sem geta sent og tekið á móti bréfum
'rá telefaxtækjum.
Amiga og Atari eigendur!
Viljum við sameinast um kaup á hörðum diskum og
þráðlausum músum?
Sameinumst og græðum pening
Munið umboðssölu með notaðar tölvur
Greiðsluskilmálar - Aðstoð - Ráðgjöf
Hafið samband
Ml ll ll ■>!
Skaglir6ingabraut 6 - Simi 95-36676 - 550 Sauðárkrókur
—K