Feykir


Feykir - 18.07.1990, Qupperneq 6

Feykir - 18.07.1990, Qupperneq 6
6 FEYKIR 27/1990 Glæsilegt Landsmót í Mosfellsbæ Það var líf og fjör í Mosfellsbæ fyrir og um helgina þar sem fram fór 20. Landsmót UMFÍ. Um 3000 keppendur frá 19 héraðssam- böndum og félögum voru þar saman komnir og öttu keppni í mörgum íþróttagreinum, en þeim greinum fer sífellt fjölgandi sem keppt er í á Landsmótum. Þrátt fyrir að ijöldi gesta á mótinu væri ekki eins mikill og við var húist, er ekki hægt að segja annað en það hafi heppnast mjög vel, og framkvæmdin verið gestgjöf- unum UMSK og bæjarbúum í Mosfellsbæ til mikils sóma. Að sjálfsögðu voru fjöl- mennir fiokkar íþróttafólks Húnvetninga og Skagfirðinga mættir á Landsmóti. Þegar talað var við forráðamenn héraðssambandanna þriggja USAH, USVH og UMSS, var ekki annað að lieyra en þeir væru nokkuð ánægðir með árangur sinna manna. Hann væri meira að segja betri hjá Skagfirðingum og Austur-Húnvetningum en á mörgum undanförnum lands- mótum. í liði USAH sköruðu þau nokkuð fram úr, hlauparinn Daníel Smári Guðmundsson og hinn bráðefnilegi sprett- hlaupari og stökkvari Sunna Gestsdóttir. Hjá UMSS voru þeir í fylkingarbrjósti bræð- urnir Gísli og Helgi Sigurðs- synir, og karlaliðið í frjálsum komst vel frá mótinu. Það var sundfólkið efnilega Kristjana Jessen og Elvar Daníelsson sem stóðu upp úr af íþróttafólki USVH. Aðeins kempan Örn Gunnarsson lét eitthvað að sér kveða í f'rjáls- íþróttakeppninni. Skagfirðing- ar báru sigur úr bítum í stigakeppni hestaíþrótta, en því miður var greinin einungis sýningargrein á mótinu. Ekki er rúm hér til að gera útslitum á landsmótinu tæm- andi skil, og verða myndirog textar hér á síðunni að duga til viðbótar. Þess má þó geta að knattspyrnulið Skagfirð- inga og Austur-Húnvetninga máttu verma neðstu sætin í keppninni. Körfuboltalið Skag- firðinga stóð sig betur. Þó það væri skipað unglinga- flokki Tindastóls styrktu Val Ingimundarsyni náði það þriðja sætinu, á eftir Njarð- víkingum og Kefivíkingum. Sveit USAH í 4x100 metra hlaupi tekur við verðlaunum sínum fyrir 5. sæti. María Ingimundardóttir, Sigurbjörg Kristjánsdóttir og Jóna Finndís Jónsdóttir. Sunna Gestsdóttir var farin í sturtu. Búningur USAH fólksins á mótinu vakti óskipta athygli, en hann varsaumaður hjá Saumastofunni Evu á Blönduósi. Um 120 keppendur frá USAH voru á mótinuoger það mikil fjölgun frá síðasta Landsmóti á Húsavík, þangað fóru 35. Skagfirðingar átti tvo af þrem fyrstu í stangarstökki; Gísli Sigurðsson varð annar og Geir Gunnarsson frá Brckkukoti þriðji. Þeir eru hér í verðlaunaafhendingu með sigurvegarann Kristján Gissurarson UMSE á milli sín. Gísli gerði sér lítið fyrir og sigraði í 110 metra grindarhlaupi eftir hörkukeppni við lljört Gíslason. Þær eru ekkert súrar stelpurnar í hoðhlaupssvcit UMSS, þótt þær þyrftu að láta sér lynda 7. sætið í 4x100. Ólöf Sigfúsdóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir, Sigurlaug Gunnarsdóttirog Sigurlina Guðjónsdóttir. Friðgeir Halldórsson USAH tekur vel á í langstökkskeppn- inni. Inga Birna Tryggvadóttir formaður Hvatar er hreinn snillingur í að haka pönnu- kökur og hreppti annað sætið í keppninni. Sigríður Jónsdóttir USAH varð í þriðja sæti, og segja gárungarnir að enginn sé svikinn af meðlætinu með kaffinu í Húnaþingi. Hin hráðefnilega 14 ára Sunna Gestsdóttir USAH dregur hvergi af sér í langstökki. Hún var í fremstu röð í spretthlaupi og stökkum á mótinu. ! *v* ^ r 1 v? \ i ■n Guðmundur Ragnarsson USAH virðist vel yfir ránni í hástökkinu. Danicl Smári Guðniundsson fagnar hér sigri í 1500 metra hlaupinu á verðlaunapalli. Hann varð einnig 3. í 800 metrunum og framarlega í 5000. Örn Gunnarsson USVH stóð sig vel í langstökkinu, en eitthvað mistókst þetta stökk hjá honum. Tungu Berglindar Bjarnadóttur UMSS virðist hætt í kúlu- varpskeppninni.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.