Feykir


Feykir - 18.07.1990, Side 8

Feykir - 18.07.1990, Side 8
18. júlí 1990, 27. tölublað 10. árgangur Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum BÍLASÝNING Á NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM LAUGARDAGINN 21. JÚLÍ FRÁ KL. 13.00-17.00 Hvetjum fólktil að koma meðbílasínaástaðinn Reynið viðskiptin - Heitt á könnunni BÍLASALAN BORGARFLÖT 5 SÍMI 95-35405 - SAUÐÁRKRÓKI Bátar við bryggju á Hvammstanga. Mikil vinna hjá Meleyri Bátar frá Hvammstanga hafa aflað vel á djúprækju undan- farið. í lok fyrri viku kom Hersir með 45 tonn, þar af helming af stórri rækju á .Japansmarkað. Hitt fer til vinnslu hjá Meleyri. Rifsnes II SH 44 frá Rifi kom á mánudagsmorgun með ta-p 12 tonn af ísrakju og 9 tonn af fiski. Bjarmi komsömuleiðis á niánudag með fimm tonn af ra-kju og lítilsháttar af fiski. Bjarmi veiðir í ís eins og Rifsnesið. Öllum Hski sem kemur að landi á Hvamms- tanga er umsvifalaust ekið suður. Rifsnesið mun leggja upp á Hvammstanga i sumar. Mikil vinna hefur verið hjá landverkafólki undanfarið. Byrjað cr í rækjunni langllesta daga kl. 4 á nóttunni og unnið til fimm síðdegis. Flestir laugardagar eru unnir og er farið að gæta þreytu hjá fólki. því þessi nætur- og helgarvinnutörn hefur staðið síðan í byrjun maí og líkur á að hún vari fram eftir sumri. Mikið umhverfis- og fegrunar- átak hefur verið í gangi hjá Meleyri og sláturhúsinu Ferskum afurðum. Ýrnis konar drasl sem safnast hafði á lóð fyrirtækjanna hefur nú verið fjarlægt og öll hús máluð I stíl, hvít með bláum þökum. Hafnarsvæðið er sömuleiðis snyrtilegt, þó stingi i augu draslhaugur syðst á uppfyllingunni. Mynd- aðist hann í veturþegarófært var á geymslusvæði ofan þorpsins. Nú þcgar snjórinn er löngu horfinn vonast þorpsbúar til að haugurinn hvcrft sömuleiðis. H Ekki einn einasti sótt um lausar kennarastöður Mjög þunglega horfir með ráðningar í lausar kennara- stöður í grunnskóla kjördæm- isins fyrir veturinn. Ein fyrirspurn harst um eina stöðu, en sá hefur nú ráðið sig annars staðar. Að meðaltali eru þrjár til fjórar stöður lausar í stærstu skólunum. Guðmundur Ingi Leifsson fræðslustjóri segir þetta mun verra ástand en á sama tíma í fyrra. „Þetta var þokkalegt í fyrra og hitteðfyrra og maður var að vonast eftir að þetta færi að lagast”, sagði Guð- mundur. Aðspurður hvort breytingar á húsaleigustyrkjum til minnkunar gæti þarna verið skýringin að einhverju leyti, sagði hann: „Nei, það er ekki einu sinni spurt um það. Enda er ekki farið að gæta neinna lækkana húsa- leigustyrkja ennþá. Hér á Blönduósi eru t.d. boðin ágætis húsnæðishlunnindi, en það virðist samt ekki duga. Nýir markaðir hjá Loðskinni Sútunarverksmiðjan Loðskinn hefur unnið nýja markaði á þessu ári. Tyrkirog Ungverjar hafa keypt talsvert magn, og ef útflutningsleyfi fæst verða seld 40-50 þúsund forsútuð skinn til Póllands. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1982 sem Pólverjar sýna skinnaviðskiptum við Islcndinga áhuga, en Loðskinn átti þar stóran niarkað á árum áður. Það er samt ítalia sem er helsti markaður fyrirtækisins í dag. Loðskinn verkar á árs- grundvelli rúmlega 200 þúsund skinn. svo pöntun Pólverja er þar stór hluti. „Maður er svo sem ekkert óskaplega spenntur fyrir að selja skinnin hálfunnin úr landi, en staðreyndin ersú að reksturinn cr ákaflega þungur eftir erfiðleikatíma- bil síðasta árs”, segir Þorbjörn Árnason framkvæmdastjóri Loðskinns. Mikill fjámagns- kostnaður samfara erfiðri skuldastöðu hefur íþvngt mjög rekstrinum mörg undan- farin ár. Skinnadeild Sam- bandsins hefur lýst áhuga sínum á að kaupa þessi forsútuðu skinn sem Loðskinn hyggur að selja til Póllands. Mjög hefur gengið á uppsafnaðar skinnabirðir frá síðasta ári og útlit fyrir að þau verði öll seld fyrir sláturtíð. í vor var fjölgað fólki í Loðskinni, skólafólk ráðið í sumarafleysingar og er verksmiðjan ekki lokuð yfir sumarleyfistímann nú eins og jafnan áður. „Ef dæmið með Pólland hefði komið upp seinni part vetrar, hefðum við ekki bætt við Nýlega afhentu forráðamenn Lionsklúbhs Skagafjarðar ,Heilsugæslustöðinni í Varma- hlíð að gjöf tvö tæki, sjálfvirkan símsvara og tæki til eyrnaskoðunar. Sigríður Pálmadóttir veitti tækjunum viðtöku og færði gefendum þakkir. Gat hún þess í leiðinni að Heilsu- gæslustöðin í Varmahlíð. sem er útibú frá Heilsgæslu- stöðinni á Sauðárkróki. hefur nú starfað í þrjú árog er opin einu sinni í viku. á miðvikudögum frá kl. 13-16. fólki í vor, en annars var mjög gott fyrir krakkana að fá vinnu í sumar”. sagði Þorbjörn. Stöðin þjónar einkum þrem hreppum, þ.e. Lýtingsstaða-, Akra- og Seyluhreppi. Þarna er sinnt m.a. sáraskiptingum, blóðþrýstings- mælingum, sprautugjöfum, ungbarnavernd og heima- hjúkrun. Starfsemi hefur vaxið og árið 1989 leituðu 412 einstaklingar þar þjónustu miðað við 266 árið áður, þar af 112 í ungbarnavernd miðað við 86 árið 1988. 20 einstaklingar nutu þjónustu heimahjúkrunar eða 9 fleiri en árið áður. ÓÞH Séra Ólafur Þór Hallgrímsson, Stefán Haraldsson og Jón Ingimarsson forráðamenn Lionsklúbhs Skagafjarðar og Sigríður Pálmadóttir forstöðumaður Heilsugæslustöðvarinnar í Varmahlíð. kGÆÐAFRAMKÖLLUN BÓKABÚÐ BEYNJARS

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.