Alþýðublaðið - 09.12.1919, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.12.1919, Blaðsíða 2
2 alÞýðublaðið bæjarstjórnir ættu að hafa vald til að ráða slíka menn sem hjú eða þjóna í hendur þeirra, sem þeir álitu stjórnsama og réttláta, og skulu laun sem þessir menn fá, að undanskyldu því, sem fer til fæðis og klæðis, renna í upp- eldissjóð. Sömu lögum yrðu þeir háðir, sem yrðu að taka lán í hallæris- árum af lankssjóði eða öðru opin- beru fé, og ekki gyldu það fyrir ákveðinn tíma. Þó skal þessu ekki fylgja neinn réttindamissir, þar sem að slíkir menn geta oft verið nýtir og duglegir menn, þó þeir kunni sér ekki fjárforráð. (Frh.) Xosningar í Sviss. Jafnaðarmenn vinna 41 sæti og fá 170 þúsund atkvæði. Um miðjan fyrri mánuð fóru fram kosningar í Svisslandi til þjóðþingsins. Þar er kosið eftir svipuðum reglum og til bæjar- stjórna hér, eða með hlutfallskosn- ingu, en þó margbrotnari. Yegna þess að mönnum var heimilt að kjósa hvert þingmannaefnanna sem var, á sínum flokkslista, var mjög erfltt og seinlegt að telja atkvæð- in. Eitt svissneska blaðið, „Berner Tagwacht11, kallar þessa nýju kosn- ingaaðferð hreinasta happdrætti. Kjósi t. d. 10 þúsund kjósendur sameinaðir einn flokkslistann, geta 100 kjósendur með því að stryka út einstöku nafn, felt listann. Eða öðrum orðum: 100 kjósendur geta gert að engu viija 10 þúsund kjós- enda! Við atkvæðatalninguna kom það í Ijós, að 41 jafnaðarmaður var kosinn í stað 19 sem áður höfðu sæti í þinginu og atkvæðamagnið hafði aukist úr 150 þúsund at- kvæða í 170 þúsund; 60 voru kosnir af frjálslyndari vinstrimönn- um í stað 102 áður; 9 af öðrum vinstrimönnum i stað 12 áður; 41 kaþólskir afturhaldsmenn í stað 42 áður; 29 úr flokki bænda og smáframleiðenda í stað einskis áð- ur og 9 úr ýmsum smáflokkum. Um 80 af hundraði neyttu kosn- ingarréttar síns. Eftirtektarvert er það, að frjáls- lyndari vinstri menn, sem um langt skeið hafa verið ráðandi flokkur þingsins, hefir tapað 42 sætum og ekki var nema 40 þús- und atkvæða munur á þeim og jafnaðarmönnum, sem fengu næst flest atkvæði. Þegar litið er á það, að jafnað- armenn hafa átt fremur erfltt upp- dráttar í Svisslandi, er þetta stór- sigur fyrir þá. í þetta sinn hafa kosningarnar, eftir því sem svissnesk blöð segja, farið mikið meira en áður eftir efnahag manna. Gömlu flokkanna gætti minna. Flokkarnir skiftast meira og meira eftir atvinnunni. En það sakar ekki jafnaðarmenn, því þeir eru fulltrúar vinnunnar og þá jafníramt í raun og veru þjóðfélagsins. Sjóleið til Siberiu. Síðastl. sumar sendu Svíar skip til Síberíu undir forystu kapt. Ellsén til að rannsaka möguleika fyrir verzlunarviðskiftum milli Svía og Síberíu. Skipverjár lentu í alls- konar æfintýrum á leiðinni, bæði í Norðuríshafinu, en einkum þó eftir að þeir höfðu kastað akker- um á Ob-fljótinu. far skorti alt, er til uppskipunar þurfti, m. a. pramma, sem þar eru mjög til þess hafðir. Að lokum fengu þeir þó einhver tæki langt að, en þá var orðið svo áliðið sumars, að þeir urðu að halda á brott, því fljótið frýs snemma þar. ICapt. Ellsén leist vel á, að Svíar gætu fengið góðan markað fyrir vörur sínar í Síberíu, og að vel mætti aftur kaupa afurðir þarlendra manna. Bygði hann þetta helzt á því, að nú mun sjóleiðin nær eina færa leiðin -milli Evrópu og Sí- beríu, vegna ástandsins sem ííkir þar eystra og í Rússlandi. Svíþjóð liggur allra landa bezt, að því er snertir þessar siglingar, og ofan á þetta bætist harður skortur á mörgum nauðsynjum í Síberíu. Sænskir kaupmenn eru mjög ánægðir með árangur fararinnar, sem vonlegt er, þegar svo góður markaður býðst fyrir vörur þeirra. + €kkja Zolstoys látin. Sofla Andrajewa Tolstoy, ekkja Leo Tolstoys, er nýlega látin á landseigninni, Jasnaja Poljana, þar sem Tolstoy dvaldi lengst af. Faðir frú Sofíu hét Behrs, og var læknir 1 Moskwa. Hún giftist Tolstoy 1862 og fór vel á með þeim að því er virtist, en samt. fór Tolstoy að heiman til þess að deyja, ‘eins og þeir vita sem þá raunasögu muna. lítleníar fréttir. Sendiherra tehinn íastur. Bandaríkjamenn hafa tekið hönd- um sendiherra Bolsivika þar É iandi, Ludwig Mertens að nafni... Margin hershöfðingi nra Bolsivika. Fyrir liðlega mánuði síðan gerðu: Bandamenn sér góðar vonir um að geta brotið Bolsivika á bat aftur, einkum af því þeir gerðtt sér góðar vonir um að herferð' Judenitsch til Petrograd hepnaðist. En eins og kunnugt er mistókst sú för svo gersamiega að her Judenitsch er nú, samkv. skeytum er hingað komu á dögunum, al- gerlega tvístraður. En um það' leyti sem Bandamenn gerðu sér sem beztar vonirnar, sagði Emile Margin hershöfðingi, sem var for~ maður herstjórnarnefndar Frakka í Suður-Rússlandi, að Bolsivikar voru langt frá brotnir á bak aft- ur þá þeir mistu Petrograd og; Moskva, því þeir mundu þá hafa hörfað undan meðfram VolgafljótÉ til Turkestan, en milli Bolsivika; þar og í Rússlandi eru nú aftur samgöngur, eftir að her Trotskis hefir gereyðilagt suðurher Kolt- schacks. Margin sagði ennfremur, að rauða herliðið (Bolsivikar) hefðu nægan útbúnað til vetrarins, því' auk hergagna þeirra er þeir höíðu- erft eftir keisarastjórnina, hefðu þeir margar hergagnaverksmiðjur^ er gengu með fullum krafti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.