Feykir


Feykir - 24.04.1991, Blaðsíða 1

Feykir - 24.04.1991, Blaðsíða 1
rafsjá Sérverslun með raftæki Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Fulltrúar framboðslistanna bíða hér eftirvæntingarfuilir á sviði Bifrastar eftir jjví að fyrstu tölur birtist. Norðvestlendingum tókst ekki að verða fyrstir með tölurnar eins og síðast. Þeir urðu aðrir í þetta skiptið, fyrstu tölur héðan úr kjördæminu komu rétt upp úr 22, eða skömmu eftir að kjörstað var lokað. Netaveiðideilurnar við Miðfjörð: Stefnt að sáttum fyrir sumarið Biönduvirkjun: Veitt eignar- námsheimild á land undir línulögnina Landsvirkjun hefur fengið heimild tii eignarnáms fyrir land undir lagningu flutnings- línu frá Blönduvirkjun að byggðalínunni, en eins og menn muna var sett lögbann á línulögnina á síðasta hausti, að óskum bænda á Löngu- mýrarbæjunum og Höllustöðum. Matsnefnd sem sett var í málið hefur skilað sínu áliti og Landsvirkjun boðið jarð- eigendum það sem talið er hámarksbætur. Bændurnir geta ekki fallist á það boð, en eru engu að síður óhressir með að skellt verði á eignarmatsgjörð á þessu stigi málsins. Þeir telja að ekki hafi verið reynt til þrautar að ná samkomulagi. Sáttanefnd sú sem skipuð var að tilhlutan Ataksverkefnis Vestur-Húnvetninga á síðasta hausti, til að leita sátta í deilunum um netalögn við Miðfjörð hefur starfað í vetur og rætt við fólk úr röðum beggja aðila, en enn sem komið er hefur ekki verið fundað sameiginlega með deiluaðilum. Vonast er til að varanlegar sættir náist í deilunni áður en veiði í Miðfjarðará hefst í sumar þó skammur tími sé til stefnu. Annars sagðist Olafur B. Oskarsson í Víðidalstungu formaður Héraðsnefndar og oddamaður sáttanefndarinnar sem minnst vilja tjá sig um málið í fjölmiðlum. Það væri skammt á veg komið og reyndar ekki ljóst enn hvort deiluaðilar viðurkenndu þennan áhugahóp sem nefndin vissu- lega væri, sem sáttaaðila. Persónulega sagðist Olafur halda að þetta mál yrði helst leyst með virku eftirliti á netalögn við ströndina, sem báðir deiluaðilar gætu sætt sig við. Þar þyrfti hlutlaus aðili að koma til skjalanna. Atvinnuleysi mest í NV Atvinnuleysi var mest í Norðurlandi vestra í síðasta mánuði, 4,3%, talsvert meira en á öðrum svæðum landsins. Næstmesta atvinnuleysið var á Austurlandi 3,3%. Norður- land eystra kemur þar næst með 2,8% en annars staðar er atvinnuleysi innan við 2%. Atvinnuleysið er heldur meira hjá konum en körlum. Gífurlega spennandi kosningar: Vilhjálmur krækti í uppbótarsætiö Kosningarnar sl. laugardag voru hörkuspennandi, og spennan var ekki sist hér í kjördæminu þar sem það réðst ekki fyrr en langt var liðið á nóttu hver hlyti uppbótarsætið. Jón Sæmundur Sigurjónsson var inni alveg fram yfir fjögur um nóttina, að Vilhjálmur Egilsson annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins ýtti honum út í kuldann. Þegar það gerðist voru reyndar flestir stuðningsmenn Vilhjálms búnir að yfirgefa Sjálfstæðishúsið á Króknum, bjuggust ekki við breytingum þegar svo langt var komið í talningunni. Þrátt fyrir að Alþýðu- flokkurinn bætti við sig l ,5% atkvæða frá síðustu kosning- um og 73 atkvæðum dugði það ekki til að Jón Sæmundur héldi uppbótar- þingsætinu. En mjótt var á mununum. Ef alþýðuflokks- maðurinn í Norðurlandi eystra Sigbjörn Gunnarsson hefði fengið 29 atkvæði til viðbótar, náð kjördæmakjöri og fellt þriðja mann fram- sóknar, hefðu sjálfstæðimenn fengi uppbótarþingsæti kjör- dæmisins á kostnað Vilhjálms Egilssonar. Fall Jóhannesar Geirs þriðja manns fram- sóknar í Ne, hefði þýtt að framsókn hefði fengið upp- bótarþingsæti í Reykjavík en ekki kratinn Össur Skarp- héðinsson, þar með hefði Jón Sæmundur verið kominn inn. Helstu breytingar á fylgi flokka hér í kjördæminu frá síðustu kosningum er að sjálfstæðismenn bæta við sig 6,9%, eða hartnær því atkvæðamagni sem Borgara- flokkurinn hlaut í kjördæm- inu 1987. Alþýðubandalagið bætir við sig 3,5% frá því síðast eða 204 atkvæðum. en framsóknarmenn misstu 225 atkvæði frá síðustu kosningum. Kvennalistinn fær svipaða útkomu og síðast. A landsvísu var sigur gamla „fjórflokksins” greini- legur. Ríkisstjómarflokkarnir fengu meirihluta á þingi, 32 sæti á móti 31. Alþýðubanda- lagið bætti við sig manni en framsókn og kratar standa í stað. Sjálfstæðisflokkurinn endurheimti það sem hann missti yfir til Borgaraflokks- ins við síðustu kosningar. Kvennalistinn tapaði heldur fylgi og einum manni hefur nú fimm þingmenn í stað sex áður. Önnur framboð höfðu ekki árangur sem erfiði. Úrslit kosninganna á Norðurlandi vestra: Alþýðuflokkur 739 (656) Framsóknarflokkur 2045 (2270) 2 Sjálfstæðisflokkur 1783 (1367) 2 Frjálslyndir 25 Alþýðubandalag 1220 (1016) 1 Heimastjórnarmenn 105 Samtök um kvennalista 327 (337) Þjóðarflokkur/Flokkur mannsins 97 (336) Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði Réttingar - Sprautun SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141 A menn rafverkatakaþjónusta Frysti- og kæliþjónusta Bíla- og skiparafmagn Véla- og verkfæraþjónusta ____f%uníll ---- Sími: 95-35519 IV.v%^y\ Bílasími: 985-31419 Aðalgötu 26 Sauöárkróki Fax: 95-36019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.