Feykir - 24.04.1991, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 15/1991
Heilir og sælir lesendur
góðir. í s'íðasta þætti birtist
vísan ..Ákaft sinnti hann
orðastriti” sem er eftir Jón
Eiríksson á Fagranesi. Eitt-
hvað meira en lítið mun
tilefni þess að vísan var gerð
hafa skolast til i meðförum
manna. Kveðst Jón aldrei
hafa skrifað fundargerð á
fundum í sambandi við
samstarfsmál Skarðshrepps
og Sauðárkrókskaupstaðar
og þar af leiðandi ekki fengið
það tilefni sem áður er vikið
að. Ekki er trúlegt að Jóni
þyki mikið til um skröksögur
eftir þessari vísu hans að
dæma.
Ymsir telja af því sóma
ef þeir geta prettað mann,
og látið svarta lýgi hljóma
líkt og hreinan sannleikann.
Það er vel við hæfi nú
þegar enn einu sinni er að
koma vor hjá okkur jarðar-
börnum að birta þessa vísu
Jóns.
Alltaf verð ég eins og nýr
úti í hlýju vori,
enda gerast ævintýr
í öðru hverju spori.
Þá birti ég einnig í síðasta
þætti vísuna ..Hryggir geðið
fremur fátt”. Taldi ég hana
vera eftir Þorleif Jónsson á
Blönduósi og hafði þær
upplýsingar frá syni hans
þar, sem nú er orðinn
aldraður maður. Nokkrar
athugasemdir hafa verið
gerðar við þessi tíðindi og
skal nú vikið að því. Maður á
Sauðárkróki haiði samband
við mig og sagði vísuna vera
eftir Stefán Jónsson á
Höskuldsstöðum í Blöndu-
hlíð. Hafi hún verið ort í
gangnakofa um 1930. Færir
hann sterk rök fyrir þessum
upplýsingum og sendir mér
Ijósrit úrprentuðu máli þeim
til staðfestingar.
Annar maður á Sauðár-
króki lætur mér í té þær
upplýsingar að vísan sé eftir
Agnar Baldvinsson er bjó um
skeið í Litladal í Blöndhlíð
ogsíðará Sauðárkróki. Segir
hann vísuna orta um göngur
í svokölluðum Hálfdánar-
tungukofa. Þá segir hann
einnig að sínar upplýsingar
séu þannig fengnar að
Ingólfur sonur Agnars sem
um árabil hafi átt heima á
Sauðárkróki en er nú fyrir
stuttu látinn hafi sýnt sér bók
með vísum eftir Agnar og
hafi þessi verið þeirra á
meðal. Sagt hafi verið þar
hvar vísan var gerð og einnig
hvaða ár. en það segist hann
ekki muna fyrir víst, en það
hafi verið fljótlega eftir 1920.
Á þessu sést að talsvert ber
þarna á milli og vil ég ekki
leggja neinn dóm á það að
svo stöddu. en tel rétt að
þetta komi hér fram. Eftir-
farandi vísa er mér sagt að sé
eftir Stefán á Höskulds-
stöðum.
Eg hef marga konu kysst
og komist að því sanna,
enginn getur lært þá list
að lifa án freistinganna.
Onnurvísa kemur héreftir
Stefán.
Leið er þröng og lokuð sund
lífs í ströngum önnum,
því er löngum opin und
útigöngumönnum.
Það er Hjörtur Gíslason
sem er höfundur að næstu
vísu.
Gleði veldur vorsins þrá.
vetrar hjaðnar drómi.
Æskan björt og ellin grá
einum syngja rómi.
Það mun vera Teitur
Hartmann sem er höfundur
að næstu vísu.
Lífs míns hef ég tleygi Heytt
fram hjá luktum sundum.
Kátleg hugsun breiðir breitt
bros á varir stundum.
Oft fer svo að þrátt fyrir
lítið hól sem menn hljóta í
lifanda lífi er þeim nokkuð vel
borgið með slíkt um það leyti
sem þeir deyja. Teitur veltir
fvrir sér spakmælinu, „góður
er hver genginn”. og yrkir
svo.
Margan eltir ærurán
uns hann liggur dáinn.
en bætt er fyrir brigsl og
smán
með blómsveigum á náinn.
Allir sem koma í vínbúð-
ina á Sauðárkróki kannast
við hlýlegt viðmót afgreiðslu-
mannanna þar. En þeir eru
sjálfsagt færri sem vita að
„ríkisstjórinn” sjálfur, Stefán
Guðmundsson. er liðtækur
hagyrðingur. Hann var í
vetur spurður eftir drykkju-
skap Króksara. Sá sem
spurði kvaðst liafa heyrt að
það henti að þeir væru farnir
að „detta í það” um helgará
kátínuhúsum. Hann fékk
þetta svar.
Uni ástandið það eitt vil segja
að ei mun Bakkus hafa
völdin.
og mér finnst fleiri mættu
deyja
á Mælifelli seint á kvöldin.
Þegar hríðargusuna gerði
um daginn, lögðu fáir leið
sína í ríkið, en mikið hafði
verið um tóbakspantanir. Þá
varð þessi vísa til hjá
ríkisstjóranum.
Svæla tóbak upp til ösku
ýtar lon og don.
En að þeir nenni eftir flösku
er alveg borin von.
Þá er komið að síðustu
vísunni að þessu sinni. Vegna
þeirrar staðreyndar að í
kvöld lýkur vetri sérhvers
vinnandi manns eins ogsegir
í ljóðinu kunna. Kemur hér
að endingu falleg vorvísa.
Ekki veit ég um höfund að
henni og væru upplýsingar
um það vel þegnar.
Kalda nóttin missir mátt.
myrkrið óðum dvínar.
Móti sól og sunnan átt
sækia vonir mínar.
Á þessum tímamótum
langar mig til að koma á
framfæri þakklæti fyrirsam-
starfið í vetur. Um leið og ég
óska öllum unnendum þáttar-
ins gleðilegs sumars og bið
ykkur þar með að vera sæl að
sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
s: 95-27154
Út í heitn,
ferdabíeklingur
Flugleida, liggur
frammi á
söluskrifstofum
Flugleiða, hjá
umboðsmönnum
um land allt og á
ferðaskrifstofum.
Ltka er htvgt að fá
bteklinginn
sendan ípósti
með þvi að hringja
í 91-690300.
FLUGLEIDIR
19 borgir. 15 þjóðlönd. titíheim er ný-
útkominn ferðabæklingur Flugleiða sem
þú getur nálgast hjá umboðsmanni okkar
í þinni heimabyggð. Markverðir staðir,
leikhús, tónleikahallir, söfn, fornminjar,
skemmtigarðar, skemmtanalíf, veitinga-
hús, verslanir, hótel, náttúruperlur,
útivistarsvæði, ökuleiðir. Út í heim
greinir frá mörgu af því sem bíður
ferðamannsins á áfangastöðum
Flugleiða og á ferðalögum í eigin
bíl um heillandi lönd í Evrópu og
Bandaríkjunum.
Ct i heim er
grundvöllur að
ógleymanlegri
upplifun i 19
borgum og 15
pjóðlöndum
austan hafs og
vestan, veröld
innan seilingar
hvar sem þá ert.
Þú þarft ekki að fara langt
til að vera með út i heim!
\