Feykir


Feykir - 22.05.1991, Page 2

Feykir - 22.05.1991, Page 2
2 FEYKIR 19/1991 FEYKIIR - -ML Óháö frettablað á Noröurtandi vestra ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95- 36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR- VERÐ: 100 krónur hvert tölublað; í lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku- dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Þing Bandalags íslenskra leik- félaga á Blönduósi um helgina Um helgina verður haldið á Blönduósi þing Bandalags íslenskra leikfélaga. Dagskráin hefst annað kvöld, fimmtu- dagskvöld, með sýningu Leik- félags Sauðárkróks á Tíma- mótaverki Hilmis Jóhannes- sonar. Þinginu lýkur á sunnudag með ráðstefnu þar sem ráðstefnugestir velta fyrir sér spumingunni, hvaða kröfur geta áhugamannaleikfélög gert til hins opinbera? Á föstudag verða tvenns konar námskeið í gangi. Annarsvegar um tónlist og Laxveiöimenn bjartsýnir „Menn eru orðnir spenntir og vissulega höfum við nokkra ástæðu til bjartsýni, þar sem svo snemma voraði núna. Það er vitaskuld gróska í seiða- búskapnum núna en um fiskgengdina vitum við lítið”, sagði Böðvar Sigvaldson á Barði formaður Sambands íslenskra veiðifélaga. Veiði fer senn að hefjast í laxveiðiánum, byrjar t.d. 1. júní í Laxá á Asum og 10. júní í Miðfjarðará. Böðvar sagði að það færi sjálfasgt mikið eftir veiðinni i sumar hvernig seiðunum hafi reitt af síðasta sumar, hvort þau hefðu lifað af vorkuld- ana eða ekki. „En hvað sem þessu sumri líður er ýmislegt sem bendir til að bjart sé framundan. Það er gott útlit fyrir að samningar séu að nást við Færeyinga um kaup á laxakvóta þeirra. Þá er væntanlega búið að stöðva sjóræningjaveiðarnar á „gráa svæðinu” svokallaða, rétt utan 200 mílnanna fyrir austan land, þar sem skip með fána frá Pamama stunduðu veiðar. Stjórn Pamama bannaði í vetur þessa útgerð þaðan, og með því hefur væntanlega verið komið í veg fyrir að þau geti landað fiskinum og þar með stundað þessar veiðar”, sagði Böðvar. íslandsdagar ferðamála Þann 25. maí n.k. stendur Upplýsingamiðstöð ferðamála, Bankastræti 2 í Reykjavík fyrir kynningu á ferðamöguleikum á íslandi í sumar. Svipuð kynning var haldin fyrir 3 árum og þótti takast mjög vel. I fyrravor var rútudagurinn haldinn í Umferðamiðstöðinni og er þessi kynning með svipuðu sniði. Þangað komu 10.000 manns til að kynnast ferða- möguleikum á íslandi og voru aðilar í ferðaþjónustu áþreyfan- lega varir við viðbrögð af þeirri kynningu. Á íslandsdeginum er tilvalið fyrir fyrirtæki og sveitarfélög að kynna þjónustu sína. Einnig er tilvalið að setja á blað hug- myndir um áhugaverða skoðunar- ferðir og gönguleiðir á svæðinu auk þess sem þessi kynning er tilvalinn vettvangur til að kynna ýmis konar sértilboð t.d. í júní og í ágúst eða sértilboð fyrir eldri borgara o.s.frv. Auk efnis frá einstökum ferðaþjónustuaðilum og sveita- stjórnum verður lögð áhersla á það að hvetja íslendinga til að ferðast um eigið land í sumar. íslendingadagurinn í Upp- lýsingamiðstöðinni er vafalaust besta og ódýrasta auglýsingin sem völ er á því þangað leita mjög margir sem hyggjast ferðast um landið. SKfiGFIRÐINGfiR SfRIÐáRKRÓKSBÚffR - FERÐffMENN Isumar verður hafin veitingarekstur í Grunnskólanum að Hólum I Hjaltadal Boðið er upp á kaffi, hádegis- og kvöldverð alla daga frá kl. 10.00 - 22.00 Góð aðstaða til að taka á móti smærri sem stærri hópum KAFFIHLAÐBORÐ ALLA SUNNUDAG. SUNNUDAGINN 26. MAÍ VERÐUR OPNAE? með kaffihlaðborði kl. 14.00 VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN Sumarstarfsfólk Grunnskólans Hólum Sími: 36602 leikhljóð í sýningum og hinsvegar um vinnu með börnum og unglingum. Á laugardag verður þingið sjálft á dagskránni og um kvöldið þiggja þingfulltrúar kvöldverðarboð bæjarstjómar Blönduóss. Á ráðstefnunni á sunnu- dag verða frummælendur af hálfu Leikfélagasambands Norðurlands sem er fram- kvæmdaðili þingsins ásamt Leikfélagi Blönduóss, Haukur Ágústsson formaður Menning- arsamtaka Norðlendinga, Menor, og Einar Njálsson bæjarstjóri á Húsavík. Einnig halda framsöguerindi full- trúar frá Sambandi íslenskra sveitárfélaga, Þjóðleikhúsinu og menntamálaráðuneytinu. Héraðsmót USAH í frjálsum íþróttum Héraðsmót USAH í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram á Húnavöllum fyrir skömmu. í stigakeppni félaga bar Umf. Geislar sigur úr býtum, hlaut 93,5 stig. Framarar á Skagaströnd komu næstir með 91 stig, Hvöt hlaut 83, UMf. Vorboðinn 48,5 og UMf. Bólhlíðinga 13. Það var Verslunin Vísir á Blönduósi sem gaf verðlaun til mótsins. Mótsstjóri var Þórhalla Guðbjartsdóttir. Úr- slit í einstökum greinum urðu þessi: Mevjar (15-16) Hástökk 1. G. Sunna Gestsdóttir H 1.50 2. Vilborg Jóhannsdóttir F 1.35 3. Áslaug Jóhannsdóttir F 1.35 Langstökk án atr. 1. G. Sunna Gestsdóttir H 2.45 2. Vilborg Jóhannsdóttir F 2.37 3. Áslaug Jóhannsdóttir F 2.19 Þrístökk án atr. 1. G. Sunna Gestsdóttir H 7.12 2. Vilborg Jóhannsdóttir F 6.61 3. Anna M. Jónsdóttir V 5.97 Kúluvarp 1. María Valberg G 8.06 2. Vilborg Jóhannsdóttir F 7.79 3. G. Sunna Gestsdóttir H 7.67 Konur Hástökk 1. Jóna F. Jónsdóttir V 1.35 2. -3. Ingunn M. Björnsdóttir V 1.35 2.-3. Bylgja Gunnarsdóttir G 1.35 Langstökk án atr. 1. Jóna F. Jónsdóttir V 2.31 2. Bylgja Gunnarsdóttir G 2.25 3. Soffía Pétursdóttir F 2.23 Þristökk án atr. 1. Jóna F. Jónsdóttir V 6.58 2. Soffía Pétursdóttir F 6.21 3. Bylgja Gunnarsdóttir G 6.41 Kúluvarp 1. Guðrún Pétursdóttir U 9.48 2. Soffía Pétursdóttir F 9.37 3. Jóna F. Jónsdóttir V 7.56 Sveinar (15-16 ára) Hástökk án atr. 1. Pálmi Vilhjálmsson H 1.30 2. Sigmundur Þorsteinsson H 1.10 Hástökk 1. Pálmi Vilhjálmsson H 1.65 2. Sigmundur Þorsteinsson H 1.45 Langstökk án atr. 1. Pálmi Vilhjálmsson H 2.69 2. Sigmundur Þorsteinsson H 2.22 Þrístökk án atr. 1. Pálmi Vilhjálmsson H 7.63 2. Sigmundur Þorsteinsson H 6.35 3. Eiður Magnússon G 5.21 Kúluvarp 1. Pálmi Vilhjálmsson H 11.86 2. Björn I. Sigurvaldason G9.69 3. Eiður Magnússon G 8.02 Karlar Hástökk án atr. 1. Hrólfur Pétursson F 1.45 2. Víðir Ólafsson F 1.40 3. Anton Hjartarson G 1.35 Hástökk 1. Ingvar Björnsson G 1.70 2. Anton Hjartarson G 1.65 3. Pálmi Ingimarsson G 1.65 Langstökk án atr. 1. Víðir Ólafsson F 3.12 2. Hrólfur Pétursson F 2.78 3. Stefán Lárusson F 2.76 Þristökk án atr. 1. Víðir Ólafsson F 8.67 2. Stefán Lárusson F 8.35 3. Hrólfur Pétursson F 8.19 Kúluvarp 1. Jón Þ. Heiðarsson G 10.32 2. Magnús Björnsson G 9.60 3. Ingvar Björnsson G 9.25 A döfinni Knattspvrna: Laugardaginn 25. maí. 4. deild karla: Hvammstangavöllur kl. 14 Kormákur - SM. Hofsósvöllur kl. 14 Neisti - Þrymur. Blönduósvöllur kl. 14 Hvöt - HSÞ b. Þriðjudaginn 28. maí. Mjólkurbikarinn: Blönduósvöllur kl.20 Hvöt - Dalvík. Hvammstangavöllur kl. 20 Kormákur - Neisti.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.