Feykir


Feykir - 22.05.1991, Síða 3

Feykir - 22.05.1991, Síða 3
19/1991 FEYKIR 3 Fjölbrautaskólanum slitið í 12. sinn Fjölbrautaskólanum, sem nú- orðið heitir Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðár- króki, var slitið í 12. sinn sl. laugardag við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu. Að þessu sinni brautskráðust frá skólanum 38 nemendurtun samnings um bóknámshúsið og málefni þess, nýtt námsframboð fyrir þroskahefta sem boðið verður upp á næsta haust, tillögugerð um framhaldsdeildir á Húna- völlum, Blönduósi og Siglu- firði, ákvörðun um starfs- rækslu íþróttabrautar næsta vetur ef næg þátttaka verður o.n. Þá vék meistari að aðstöðu- leysi skólans og hvað uppbygging hans hefði tekið lengri tíma en tilefni gæfi til, hvað varðaði áform og alla undirbúningsvinnu sem innt hefði verið af hendi. „Víðast hvar í landinu annars staðar en á Norðurlandi vestra hefur uppbygging mann- virkja framhaldskóla verið hraðari og meiri og verður svo áfram ef aðstæður breytast ekki. Okkar hlut- skipti hefur verið að rækta og efla þolinmæði okkar og bíða eftir tilviljuninni. Gott er að geta notið þolinmæðinnar, þegar það á við, en illt er við hana eina að búa til langframa. Virtust fleiri Þrándar í götu en fjármála- hliðin ein kallaði fram. Deilur um orðalag og tortryggni um túlkun þess réði þar miklu um seinagang- inn. Verðégaðjáta vonbrigði mín yfir því hve skemur menn gengu fram en annars staðar, svo sem á Suður- nesjum, sem er til fyrir- myndar um hvernig sveitar- félög eiga og geta starfað saman. Miklu skiptir að samstaða náist milli heima- aðila á Norðurlandi vestra um höfuðmálefni kjördæmiss inog el ég enn í brjósti mér von um að á komandi tímum muni öll sveitarfélög í þessum áttungi landsins bera gæfu til að standa vörð um hagsmuni heildarinnar í skólamálum sem öðrum málaflokkum”, sagði Jón F. Hjartarson. Tónlistarflutningur við at- höfnina var í höndum nem- enda skólans. Svana Berg- lind Karlsdóttir söng Maríu- vers Páls ísólfssoanr við undirleik Heiðdísar Lilju Magnúsdóttur og Heiðdís Lilja og Vala Bára Valsdóttir léku saman á píanó og þverflautu Etemally Chaplins. Þá flutti Skúli Bjöm Gunnars- son kveðjuorð nemenda. Við skólaslitin voru fjöl- margar viðurkenningar veittar nemendum fyrir ágætan námsárangur og þeir leystir út með bókagjöfum. Alda Bragadóttir nemandi á hag- fræðibraut hlaut viðurkenn- ingu fyrir alhliða náms- árangur á stúdentsprófi og einnig sérstök verðlaun fyrir góðan árangur í íslensku og þýskunámi. Þá hlaut Skúli Margir nemar í framhaldsdeiidum og öldungadeild Skólastarf fjölbrautaskólans var með hefðbundnum hætti í vetur. A haustönn voru innritaðir 324 og 317 á vorönn; þar af 48 sem ekki námu á haustönn, þannig að i vetur stunduðu nám í dagskóla 372 nemendur. Á Siglufirði voru nemendur í framhaldsdeild 22 á haustönn og 17 á vorönn. Á haustönn stunduðu 58 nem- endur nám við öldungadeild, 23 á Sauðárkróki, níu í Varmahlíð og 26 á Siglufirði. Á vorönn voru öldunga- deildarnemar 80 talsins: 35 á Sauðárkróki, 15 í Varmahlíð, 20 á Siglufirði og 10 á Blönduósi. Meðal þeirra áforma sem uppi eru um aukið náms- framboð við skólann, er að á Blönduósi verði boðið fram nám á málabraut framhalds- skólans. Er val þeirra nemenda fellt niður, en þeim jafnframt tryggt eðlilegt framhald við fjölbrautaskól- ann. Skólameistari segir þessi áform óháð þeim skilyrðum sem héraðsnefnd Austur-Húnvetninga hefur sett fyrir þátttöku sinni í uppbyggingu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, að skól- inn hafi starfrækt framhalds- deild í A.-Hún. um eins árs skeið áður en þeir gerist aðilar. Framkvæmdin ráðist fyrst og fremst af nægri þátttöku nemenda, ráðning kennara takist og aðstaða verði viðunandi. Skólinn geti gert sitt til að þetta verði unnt, en ákvörðunin verði í höndum nemenda og foreldra þeirra. Björn Gunnarsson einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur og sérstaka viðurkenningu fyrir ágætan árangur í íslensku. Aðrir eftirtaldir hlutu viðurkenn- ingar á stúdentsprófi: Anna Hulda Hjaltadóttir fyrir sérgreinar hagfræðibrautar. Elínborg Harðardóttir f. ensku. Kjartan H. Grétars- son f. frumleika í beitingu móðurmálsins, Kristín Jóhanna Glúmsdóttir f. dönsku, Sigurður Ágústsson f. mikið og heilladrúgt starf að félags- málum skólans. Hlíf Guð- mundsdóttir hlaut viðurkenn- ingu fyrir ágætan náms- árangur á verslunarprófi, Friðrik Haraldsson fyrir góðan árangur í sérgreinum tækniteiknunar og Skúli Bragason fyrir góðan náms- árangur á iðnbraut húsa- smíða. Jón F. Hjartarson flytur skólaslitaræðu sína. VIÐSKIPTAVINIR •MPNH) SKATTAESLÁTTINN: Fyrirfyrirtœki •FJÁRFESTINGARSJÓÐSREIKNINGAR Frestur til innborgunar rennur út 31. maí n.k. Fyrir einstaklinga •HÚSNÆÐISREIKNINGAR Kynnið ykkur reglur um þá hjá okkur BUNAÐARBANKI ISLANDS Traustur banki Útibúið á Sauðárkróki Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.