Feykir - 29.05.1991, Page 2
2 FEYKIR 20/1991
IFEYKIR
- Óháö frettablað á Norðurlandi vestra
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús
Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR-
VERÐ: 100 krónur hvert tölublað; í
lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku-
dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN:
SÁST sf„ Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Fjórtán ára drengur á
Skagaströnd slapp vel
Varð undir stórgrýti við eggjatínslu í Höfðanum
Fjórtán ára drengur frá
Skagaströnd liggur nú slasaður
á Héraðshælinu á Blönduósi
eftir að hafa fengið grjót-
hnullung ofan á sig við
eggjatöku í Höfðanum í
fyrrakvöld. Við að fá hnull-
unginn á sig hrapaði drengur-
inn niður í fjöru og þurfti
þónokkrar tilfæringar margra
manna til að ná honum úr
stórgrýttri fjörunni um þröngan
veg.
Það var um kvöldmatar-
leytið sem Viktor Pétursson
fór ásamt jafnaldra sínum að
tína fýlsegg í Höfðanum.
Þegar hann hafði klifrað
rúman meter upp snarbratt-
ann Arnarstapann losnaði
stór steinn einum tveim
metmm ofar. Viktor reyndi að
komast undan grjótinu, sem
er talið rúm 50 kíló að þyngd,
en tókst það ekki og féll með
því niður í stórgrýtta fjöruna.
Hinn pilturinn fór þegar í
Laufás sem er þarna rétt hjá
og hringdi í föður Viktors
sem hafði samband við
sjúkrabílstjórann sem einnig
var skammt undan. Björgunar-
sveitarmenn voru einnig
kallaðir á vettvang og veitti
ekki af þar sem aðstæður
voru erfiðar. Tókst samt að
koma svokallaðri bakfjöl
undir Viktor þar sem hann lá
skorðaður og sex menn báru
hann í sjúkrabílinn. Það stóð
á endum að læknir sem hafði
verið kallaður frá Blönduósi
kom rétt í þann mund sem
tekist hafði að koma hinum
slasaða í sjúkrabílinn.
í fyrstu leit út fyrir að
Viktor væri fótbrotinn á
báðum fótum, eins illa og
þeir voru útlítandi og
svöðusár var á vinstra fæti.
Viktor hafði þó tekist að
minnka blóðrennslið með
einangrunarbandi sem hann
vafði um lærið. Telja verður
krftaverki líkast hve vel
drengurinn slapp, því við
fyrstu rannsókn reyndist
hann óbrotinn.
Höfðinn hefur mikið að-
dráttarafl fyrir þá sem hafa
gaman af klifri. Viktor hefur
stundað það frá blautu
barnsbeini nánast. Slys hafa
áður orðið í Höfðanum.
Þing Landsambands íslenskra leikfélaga var haldið á Blönduósi
um helgina. Þingfulltrúar voru allt annað en ánægðir með að
fulltrúi menntamálaráðuneytis og þjóðleikhússtjóri boðuðu
forföll á síðustu stundu. Umræður á ráðstefnunni sem haldin
var á sunnudag urðu því ekki eins gagnlegar og vonast hafði
verið til, en umræðuefnið þar var staða áhugamanna
leikfélaganna gagnvart því opinbera. Mynd-MÓ.
Ekki dús við kláðann
20. maí 1991
14. nóvember 1990 kom
frétt í dagblaðinu Degi frá
heilsugæslustöð Akureyrar
um heilsuleysi og óþrifnað.
Þar kom fram að átta væru
með kláða og einn með lús.
15. maí 1991 kom önnurfrétt
frá heilsugæslustöðinni um
sama efni. Þar kom fram að
tveir voru með lús og fjórir
með kláða, hlutföllin höfðu
breyst. Eftir þennan lestur
datt mér í hug eftirfarandi
vísa.
Við óþrifnaðinn ekki dús,
um það mikið þinga.
Kljást þeir enn um kláða og
lús,
klæjar Eyfirðinga.
Sigfús Steindórsson.
A döfinni
Knattspyrna:
Föstudagur 31. maí.
2. deild:
Sauðárkróksvöllur kl. 20
Tindastóll - Selfoss.
3. deild:
Siglufjarðarvöllur kl. 20
KS - Leiftur.
4. deild:
Laugalandsvöllur kl. 20
UMSE b - Neisti.
Laugardagur l.júní.
Sauðárkróksvöllur kl. 14
Þrymur - Hvöt.
ÞAÐ STENDUR MIKÐ TIL
í SKAÖAFIRÐI í SUMAR !
Er ekki kommn tími til aö endurnýja gamla fánann
eöa kaupa sér fána og stöng í fyrsta sinn!
Allar upplýsingar á Saumastofu Hofsós.
Símar 37366 og 37331
Auglýsing í jafn víð-
lesnu blaði borgar sig
Góðir áskrifendur!
Munið að greiða
heimsenda gíróseðla
hið allra fyrsta
Feykir