Feykir - 29.05.1991, Page 6
6 FEYKIR 20/1991
Vel tekiö á í
Landsbanka-
hlaupi
Landsbankahlaup var þreytt
af yngri kynslóðinni um allt
land sl. laugardag. A Sauðár-
króki fór þessi keppni fram í
fyrsta sinn, enda Landsbank-
inn nýbúinn að hasla sér völl á
Króknum. Skráðir þátttakendur
voru hvorki fleiri né færri en
136 og lögðu keppendur sig
fram hið ýtrasta í hlaupinu.
Fremstir í hverjum aldurs-
flokki voru þessir:
Fædd ’78 - ’79 ... Mín.
1. Sveinn Margeirsson 4:15
2. Indriði Einarsson . 4:21
3. Brynjar Þ. Gunnarss. 4:30
1. Hanna B. Hauksd. 6:04
2. Ágústa Skúladóttir 6:17
3. Sara Dögg Ólafsd. 6:31
Kvenfélags-
konur frá
Blönduósi
slasast við
Kolkustíflu
Kvenfélagskonur á Blönduósi
lentu í miklum hremmingum
þegar þær fóru til þess að
skoða Blönduvirkjun á Iaugar-
daginn. Kantur á veginum við
Kolkuhól gaf sig undan
hópferðabílnum þannig að
hann valt og er stórskemmdur.
Margar konurnar urðu fyrir
meiðslum og voru 7 þeirra
lagðar inn á sjúkrahús. Engin
þeirra er þó alvarlega slösuð.
Það var lán í óláni að ein
kvenfélagskvennanna er hjúkr-
unarfræðingur og hóf hún
þegar hjálparstarf, og hjúkrunar-
fræðingur sem starfar á
virkjunarsvæðinu kom strax
á slysstað. Síðan kom læknir
frá Blönduósi, þrír sjúkra-
bílar og bíll frá hjálparsveit
skáta. Að sögn lögreglunnar
á Blönduósi varð óhappið
þegar hópferðabíllinn var að
mæta öðrum bíl. Þá sprakk
ísak Einarsson og Ingi Árnason að koma í mark í
Landsbankahlaupinu.
Fædd ’80 - ’81 Mín 1. Rakel Hermannsd. 5:01
1. ísak Einarsson ... 4:32 2. Fanney Frostadóttir 5:04
2. Ingi Árnason..... 4:32 3. Ágústa J. Heiðdal 5:13
3. Atli Björn E. Levy 4:37
„Þetta tók það langan tíma að ég gat tekið af mér gleraugun og
náð góðu taki áður en bíllinn lagðist á hliðina”, sagði Margrét
Ásmundsdóttir sem er til vinstri á myndinni. Hin
kvenfélagskonan er Elínborg Guðmundsdóttir.
Pálmi Sighvatsson vallarvörður er hér að „gata” völlinn sem
kallað er, en með því er leið vætu og súrefnis greiðari niður í
svörðinn.
Fagurt heimatún
bíður fótboltamanna
Það eru ekki aðeins kýrnar
sem fagna beitinni á vorin,
heldur eru knattspymumennimir
hinir ánægðustu að komast á
snemmsprottið grængresið.
Langt er síðan grasvöllurinn á
Króknum hefur komið jafn-
góður undan vetri, og ættu
aðstæður að auka líkurnar
fyrir skemmtilegum leik þegar
Selfyssingar koma í heimsókn
nk. föstudagskvöld.
Þetta verður fyrsti heima-
leikur Tindastóls í annarri
deildinni í ár. Liðið hefur
þegar leikið einn leik. Tapaði
í Grindavík sl. föstudags-
kvöld, fremur stórt eða 4:0
Tapið var Tindastólsmönnum
enn sárara fyrir þær sakir að
fyrrverandi lærimeistari þeirra,
Bjarni Jóhannsson, þjálfar
lið Grindvíkinga. Hinsvegar
þykja strákarnir hans Bjarna
firnasterkir og til alls líklegir
í sumar, en að sjálfsögðu
ætla Króksarar að Tjefna
þessa þegar Grindvíkingarnir
koma norður seinna í sumar.
Tindastóll mun stilla upp
sínu sterkasta liði á föstudags-
kvöldið, utan þess að
varnarmaðurinn knái frá
USA verður ekki löglegur
fyrr en í þar næsta leik. En
hann kom til landsins fyrir
helgina og er byrjaður að æfa
með liðinu. Að síðustu eru
allir stuðningsmenn Tinda-
stóls sem vettlingi geta valdið
hvattir til að mæta og hvetja
liðið gegn Selfyssingunum.
Styðjum Tindastól til sigurs í
leikjum sumarsins!
Skólaslit Fjölbrautaskólans:
Nöfn verðlaunahafa
féllu niður
kanturinn langt inn í veg. Á
þessum stað er vegurinn um
þriggja metra hár og rann
bíllinn með fyllunni og
valt að lokum. Er
hann stórskemmdur oga.m.k.
yfirbyggingin ónýt.
Margrét Ásmundsdóttir
ein kvenfélagskvenna vildi
koma fram sérstöku þakklæti
til allra sem aðstoðuðu í
óhappinu og lýsti sérstakri
aðdáun á bílstjóranum sem
gerði sitt til að halda bílnum
á réttum kili meðan kanturinn
seig niður.
MÓ.
Fótbolti
4. deild karla:
Neisti - Þrymur 5:1 (4:0)
Þórlrallur Asmundssonv Haukur
Þórðarson, Ólafur Ólafsson
og Páll Brynjarsson skoruðu
fyrir Neista, en mark númer
tvö var sjálfsmark. Ingvar
Ormarsson skoraði mark
Þryms.
Hvöt - HSÞ b 2:2 (0:2) Bjarni
Gaukur Sigurðsson skoraði
bæði mörk Hvatar.
Kormákur - SM 3:0 (0:0)
Ingvar Magnússon, Hörður
Guðbjörnsson og Albert
Jónsson skoruðu.
Meðal þeirra er viðurkenn-
ingar hlutu við skólaslit
fjölbrautaskólans á dögunum
voru Anna Steinunn Friðriks-
dóttir, fyrir ágætan náms-
árangur á sérgreinum mála-
brautar, og Páll Sighvatsson,
sem útskrifaðist af iðnbraut
vélsmiða.
-Þessi nöfn féllu niður í
grein um skólaslitin í síðasta
blaði og er beðst velviiðingar á
því. Þá var nafni Skúla
Bragasonar ofaukið og að
ósekju hefði mátt geta þess
að árangur Skúla Bjarnar
Gunnarssonar var enn glæsi-
legri sökum þess að hann
lauk prófi af tveim brautum,
iðnbraut vélsmiða og tækni-
braut stúdentsprófs.
MUNIÐ
REYKIAUSA
DAGINN
W TÓBAKSVARNANEFND