Feykir - 10.07.1991, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 26/1991
Sveiflur, rækjan og framtíðin
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús
Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR-
VERÐ: 100 krónur hvert tölublað; í
lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku-
dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN:
SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum baeja- og héraðsfréttablaða.
Húnvetningar
Skagfirðingar!
Verslið í
heimabyggð
Fylgifiskur íslenska efnahagskerfis-
ins eru þær miklu sveillur sem oft á
tíðum eiga sér stað í undirstöðuatvinnu-
grein þjóðarinnar. sjávarútveginum.
Ein slík hefur riðið yfir á síðustu
misserum. Það er vandi rækjuverk-
smiðjanna vegna gífurlegs verðfalls á
erlendum mörkuðum. Ekki er heldur
langt síðan frystihúsin komust í
verulega erfiðleika vegna verðfalls og
óhagstæðrar gengisþróunar. Þá komu
stjórnvöld til aðstoðar á myndarlegan
hátt og sem betur fer kom batinn,
þannig að í dag heyrist enginn
kvörtunartónn úr röðum fiskverkenda.
sem bendir til þess að reksturinn gangi
vel.
Staða rækjuiðnaðarins í landinu er
mjög alvarleg fyrir margar byggðir
landsins, sem nær eingöngu byggja
atvinnulíf sitt á vinnslu ,,rauða
gullsins” eins og rækjan var kölluð hér á
árum áður þegar allt lék í lyndi. Má
nefna staði eins og Hvammstanga,
Hólmavík og þéttbýl isstaðina við
Isafjarðardjúp. Byggð væri mjög í hættu
á þessum stöðum ef vinnsla rækju
legðist af. A fleiri stöðum kæmi stöðvun
sér afar illa, má þar nefna staði eins og
Blönduós, Siglufjörð og Sauðárkrók.
Og það virðast ekki miklar líkur á að
stjórnvöld ætli að koma rækjuvinnslum
í landinu til hjálpar. Staðan er orðin það
alvarleg hjá nokkrum verksmiðjum að
lánveitingar til þeirra yrðu að teljast til
áhættulána. Byggðastofnun hugðist
beita sér fyrir stofnun áhættusjóðs til
bjargar rækjuverksmiðjum. Forsætis-
ráðherra sagði nei takk. Sú tíð væri liðin
að peningum sé ausið i vonlausan
atvinnurekstur og íslenskum skatt-
borgurum síðan sendur reikningurinn.
Og forsætisráðherrann er fljótur að
koma sér inn í málin. Hann fullyrti að
staðan væri svona vegna slæms reksturs
og offjáifestinga hjá mörgurn rækju-
verksmiðjum.
En er hægt að afgreiða málin á svona
einfaldan hátt? Eru ekki hagsmunir
samfélagsins fólgnir í því að a.m.k.
sumum þessara fyrirtækja verði haldið
gangandi? A þar einkanlega við þær
vinnslur sem halda uppi atvinnulífi
viðkomandi byggða. Byggðaröskunin
er búin að vera samfélaginu dýr.
Rækjuiðnaðurinn í landinu er framtíðar-
atvinnugrein. Þó hnignunarskeiðið sé
búið að vera langvarandi kemur að því
fyrr en seinna að birtir til. Stjórnvöld
verða að sýna biðlund engu að síður en
stjórnendur rækjuverksmiðjanna sem
hafa þurft að þreyja þorran og góuna á
undanförnum misserum. þÁ
Vegurinn fyrir Skagann
varasamur fólksbílum
Heilbrigöisgeirinn og hækjan
Þeir fólksbílaeigendur sem
annt er um bílana sína eru
góðfúslega varaðir við að fara
fyrir Skagann, það er að segja
ef ástand vegarins hefur
ekkert lagast frá siðustu helgi.
Þá var hryggurinn af
lausamöl orðinn svo hár á
miðju vegarins að fólksbílar
tóku mjög víða niðri þó svo
að ekið væri varlega. Það var
greinilega orðið mjög tíma-
bært að hefla veginn. en
sjálfsagt hefur þurrviðrið i
sumar aukið myndun lausa-
malar á vegum.
Mikið er nú talað um
sparnað, allir geirarnir eiga
að spara svo sem kostur er,
það eru einkageirarnir og
opinberu geirarnir. Einn
þeirra opinberu fjallar um
heilbrigðismál, þar ertaliðað
hægt sé að spara mikið, svo er
það álitamál hvort sparað sé
á réttum stöðum. Ég álít að
svo sé ekki, samanber gömlu
konuna sem þurfti nauðsyn-
lega á hækju að halda en
heilbrigðisgeirinn var ekki
allögufær með hækjur, svo
gamla konan varð að kaupa
hækjuna sjálf. Svo var
forsjóninni fyrir að þakka að
hún hafði efni á því.
Meirihluti þeirra sem
þurfa á hækjum að halda
hafa ekki efni á því að kaupa
þær sjálfir. Við hvaðeiga þeir
þá að styðja sig, ég bara spyr?
Ég meiddi mig í fæti um
daginn og hefði ég haft gagn
af hækju en heilrigðisgeirinn
bauð mér ekki hækju af
skiljanlegum ástæðum ef
sparnaðurinn á að byrja þar.
Að vísu hefði ég haft efni á að
kaupa hækju sjálfur, því
engin sultarlaun eru borguð
þai' sem ég vinn, en ég keypti
enga hækju, hugðist fara eftir
kenningunni að ganga óhaltur
á meðan báðir fætur væru
jafn langir, en það gekk
Ölgerðin Egill Skallagríms-
son stendur þessa dagana
fyrir RC-hátíðum á Norður-
landi. Ibúar Norðurlands
vestra mega búast við
óvæntum uppákomum í dag
og næstu daga. I dag er RC
hátíðin á Siglufirði, á
morgun á Sauðárkróki og á
Blönduósi nk. föstudag.
Á hátíðum þessum eru
ýmsir leikir fyrir yngstu
kynslóðina, s.s. boltaleikir.
hlaup o.fl. auk þesssem þeim
er fært eitthvert góðgæti.
misjafnlega og er það
sjálfsagt mínum linkuhætti
um að kenna.
Sigfús Steindórsson
dós sem er um 10 metrar á
hæð. einnig verður til sýnis
torfærubíll og rallýbíll sem
merktir eru með RC-cola.
Að sögn forráðamanna
Ölgerðar Egils er ferðin um
Norðurland nokkurskonar
þakklætisvottur til Norðlend-
inga, sem hafa sýnt fyrirtæk-
inu mikinn og góðan stuðning
gegnum tíðina, eins ogsegir í
fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu.
t
Innilegar þakkirtil allra sem auösýndu okkur
hluttekningu og samúö viö fráfall og jaröarför
eiginkonu, móöur, tengdamóöur, ömmu
og langömmu okkar
Sigríöar Sigtryggsdóttur
frá Skefilsstöðum
Sæmundargötu 11 Sauðárkróki
Sérstakar þakkirtil starfsfólks Sjúkrahússins
fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar.
Guö blessi ykkur öll
Viggó Sigurjónsson
Margrét Viggósdóttir Búi Vilhjálmsson
Sigríöur Viggósdóttir Helgi Friöriksson
Börn , tengdabörn og barnabörn
Pökkum efdrtöldum aðilum
veittan stuðning vegna
Kvennahlaupsins 1991
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ ALDAN
BÚNAÐARBANKINN SA UÐÁRKRÓKl
STEINULLARVERKSMIÐJAN
MJÓLKURSAMLAGIÐ Á SAUÐÁRKRÓKl
Undirbúningshópur
RC-hátíðir
Blásinn er upp risastór RC-