Feykir


Feykir - 10.07.1991, Side 6

Feykir - 10.07.1991, Side 6
6 FEYKIR 26/1991 Fjölmiðlaeitur og sögusagnir Athugasemd vegna fréttar um Loðskinn Sveinn Einarsson Hofsósi: Finnst óþarfi að þakka Átaki Ágæti ritstjóri! Þar sem ég undrast nokkuð skrif þín á baksíðu Feykis síðasta tbl. vil ég taka fram nokkur atriði til glöggvunar. Starfsleyfi skv. mengunar- varnarreglugerð, kemur þessu máli ekkert við. Starfsleyfi hefur ekki enn verið afgreitt fyrir sútunina en leyfið hefur verið í vinnslu hjá Hollustu- vernd nú síðustu ár. Til eru lög og reglur sem ná yfir geymslu hættulegra efna. Vinnueftirlitið kemur inn í myndina þegar um vinnustaði er að ræða. Samanburðurinn við upp- gröft á tunnum við Steinullar- verksmiðjuna finnst mér undarlegur. Mér vitanlega hafa börn og unglingar ekki aðgang að hættulegum efnum í eða við Steinullarverksmiðjuna og þess var tryggilega gætt að börn og unglingar kæmu hvergi nálægt þegar umgetnar tunnur voru grafnar upp. Hvorki Hollustuvernd né .ilbrigðiseftirlit notuðu nokk- , tíma orðin eiturefni um • hald tunnanna og verk- • ■inin við uppgröftin var r ^i i höndum ofangreindra 'ila. Eiturkjaftæðið var 'ailega á ábyrgð DV sem á :: r þakkir skyldar fyrir at'kipti sín af málinu. S\o við víkjum aftur að sútuninni. Ég hef ekki heyrt um sniffefni við verksmiðjuna og veit ekki til þess að slík efni séu notuð þar. Ég vil góðfúslega benda á að það ætti ekki að auglýsa geymslu á slíkum efnunr. Til er mun betri farvegur fyrir slíkar upplýsingar. Var ekki verið að minna á nauðsyn þess að koma í veg fyrir slys? Mynd af tómum ílátum, saltsekkjum (venjulegt salt) og trébrettum, sem tekin var fyrir sunnan sútunina getur gefið lesendum ákaflega villandi hugmyndir. Loðskinni er í lófa lagið að setja upp girðingar þannigað ákvæðum gildandi reglna um geymslu nættulegra efna, „þannig að óviðkomandi nái ekki til þeirra”, sé fullnægt. Port og girðingar hafa því miður oft þveröfug áhrif á börn og unglinga; því þarf slík hindrum að vera illklifran- leg til að koma að tilætluðum notum. Það er hins vegar deginum ljósara að viðeigandi hindrun þarf að setja upp ef verksmiðjan geymirhættuleg efni þar sem óviðkomandi á aðgang. Það þarf að leggja höfuðáherslu á slysavarnir sem og aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir. I samráði við bæjaryfirvöld verður vonandi fundin lausn á þessu máli þar sem lóð sútunarinnar nær aðeins fáeina metra suður fyrir húsenda. Þetta er heldur ekki eina svæðið sem þarf að girða rækilega af. Ágæti ristjóri! Það er bæði þarft og gott að vekja athygli á málum sem betur mættu fara og sjálfsagt að ýtt sé við manni. Þú hefðir hinsvegar mátt afla þér betri upplýsinga áður en þú birtir „fréttina”. Með þökk fyrir biiiinguna. Sveinn H. Guðmundsson. Athugasemd ritstjóra Það er ekki laust við að hroka bregði fyrir í athuga- semd þinni heilbrigðisfulltrúi góður. eins og reyndar kemur fram strax í fyrirsögn- inni sem þú valdir. Þú segist skrifa til glöggvunar og að ég hefði átt að afla mér betri upplýsinga. Þú gefur í skyn að sögusagnir hafi verið lagðar til grundvallar frétt- inni. Svo er alls ekki og tel ég mig hafa aflað traustra heimilda, enda hafa bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn verksmiðjunnar sagt við mig eftir að fréttin birtist, að hún sé rétt og mjög þarft að þetta hafi komið fram fyrr en seinna. Enn gengur livorki né rekur hjá Tindastóli í annarri deildinni. Tveir síðustu leikir hafa tapast og það sem verra var að annar þeirra var það sem kallað er „sex stiga leikur”, gegn Haukum sem eru í næstneðsta sæti deildar- innar. Króksarar biðu síðan afhroð gegn Þór á Akureyri sl. föstudagskvöld, 6:0. Tindastólsmenn vona mjög daufir í fyrri hálfleiknum á móti Haukunum sl. þriðju- dagskvöld á Króknum. Gest- irnir skoruðu snemma tvö mörk, en Grétari Karlssyni tókst að minnka muninn fyrir Tindastól meðglæsilegu marki rétt fyrir leikhlé. Heimamenn komu mun ákveðnari til seinni hálfleiks og tókst að skapa sér nokkur ágæt marktækifæri sem ekki nýttust. Þess í stað bættu Haukarnir við sínu þriðja marki um miðjan hálfleikinn. Áfram sóttu Tindastólsmenn og litlu munaði að þeim tækist að jafna leikinn. Sigurjón Sigurðsson skoraði með þrumuskoti á næst síðustu mínútu venjulegs leiktíma og Stefán Pétursson brenndi síðan af í dauðafæri rétt á eftir. Lokatölur 3:2 fyrir Hauka. Lítið er aðsegja um leikinn Sveinn Einarsson á Ilofsósi var ekki beint ánægður með atriði í frétt í síðasta Feyki, þess efnis að Átaki hf væri þakkað það að nýtt fyrirtæki væri koniið á Krókinn, Dettifoss seni keypt var frá Akureyri og frantleiðir gæludýra- fóður. Sveinn segist hafa afltent Átaki hf pappíra varðandi fyrirtækið og telur sig hálfpartinn hafa verið svikinn af framkvæmda- stjóra Átaks. „Það hittist þannig á að Sveinn hafði verið fyrir norðan daginn á undan mér og fengið þá einu pappírana sem þáverandi eigandi hafði í fórum sínum. Mér var sagt að heppilegast væri að fá Ijósrit af þessum pappírum Sveins. sem voru opinberir pappirar. Fasteignasalan sem hafði fyrirtækið til sölu hefði í raun átt að útbíta þeim. Eg veit ekki hvernig í ósköpunum ég átti að fara í þetta mál öðruvísi gagnvart Sveini. Ekki gat ég bent honum á að Skarphéðins- menn væru aðgera tilboð, því þá hefði ég unnið á móti hagsmun- um þeirra sem ég starfa fyrir”. sagði Jón Ásmundsson hjá Átaki. Sveinn segist hafa lagt mikiðá sig til að kanna grundvöll verksmiðjunnar og fórnað mörg- gegn Þór. Tindastólsliðið átti í vök að verjast allan tímann og áttu ekki nema eitt skot að Þórsmarkinu í leiknum. Þórsarar skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleik, en síðan opnuðust flóðgáttir í vörn Tindastóls síðasta stundar- fjórðunginn og þá komu fjögur mörk í bunu. um dögum i vinnu. „Það var Unnur iðnráðgjafi á Blönduósi sem benti mér á þá hjá Átaki. Jón framkvæmdastjóri Átaks tók mér vel.en sagðist samt ekki geta Iofað mér þjónustu Átaks þar sem verkefnið næði aðeins yfir Sauðárkrók og ég væri ekki aðili að þvi. Hann sagði mér samt að skrifa sér formlega beiðni, sem ég gerði, en hef ekki fengið svar við ennþá mánuði seinna. Jón dró úrþví aðéggerði tilboð eða ég fengi fjársterka aðila með mér. Bað mig að bíða og sjá tii hvort verðið á fyrirtækinu lækkaði ekki. það væri greinilega að fara á hausinn. Eg varð svo virkilega svékktur og reiður þegar ég kom á Sauðárkrók á mánudeginum fyrir viku og frétti að fyrirtækið væri konrið þangað. Ef mig hefði grunað að svona mundi fara hefði ég beðið fasteignasöluna að lofa mér að fylgjast nreð ef tilboð bærust í fyrirtækið. En mér finnst eftir það sem okkur framkvæmdastjóra Átaks hefði farið á milli, að hann hefði átt að láta mig vita um að annar aðili væri kominn i spilið”. sagði Sveinn. Tveir næstu leikir Tinda- stóls verða hérheima, báðir í næstu viku gegn liðum af Suðurnesjum. Keflvíkingar koma í heimsókn á mánu- dagskvöld og Grindvíkingar á föstudagskvöld. Eins og áður hefur Tindastóll aðeins 1 stig, Haukar eru með 4 og Fylkir og Selfoss 8. Sjúkrahús Skagfirðingar auglýsir hér með stöðu framkvæmdastjóra Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar Skagfirðinga lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 6. ágúst næstkomandi Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar Jóns E. Friðrikssonar Háuhlíð 7 550 Sauðárkróki. Upplýsingar um starfið veitir undirritaður Sauöárkrókl 8. Júlí 1991 Sæmundur Á. Hermannsson framkvæmdastjórl Símar 95-35474 • 95-35270 Fótbolti 4. deild: Slæm vika hjá Kormáki Enn halda liðin i d-riðli 4. deildar áfram að reita stig livort af öðru. Af efstu liðinum hefur Kormákur farið vers’t út úr því upp á síðkastið, tapað sex stigum í síðustu tveim umferðum. HSÞ b hefur náð forystu í keppninni, er með 14 stig, Hvöt og Neisti koma næst með 13 og Korntákur er með 10. Neisti tapaði illilega fyrir HSÞ b á Laugum sl. miðvikudag, 6:1. Þórhallur skoraði úr víti. Á sama tíma sigraði Hvöt SM 5:1 á Blönduósi. Bjarni Gaukur Sigurðsson skoraði þrjú og Orri Baldursson tvö. Kor- mákur tapaði 1:2 fyrir UMSE b í Eyjafirðinum. Albert Jónsson skoraði mark Kormáks, en sigurmark Eyfirðinga var afar umdeilt og Hvammstangamenn því ósáttir við úrslit leiksins, sem farið gat á hvorn veginn sem var. Hvöt og HSÞ b gerðu jafntefli í hörkuviðureign og jöfnum leik á Laugum sl. laugardag, 2:2. Bræðurnir Hermann og Pétur Arasynir skoruðu mörk Hvatar. Kor- máksmenn töpuðu ósann- gjarnt að þeirra sögn fyrir SM í Eyjafirðinum, 2:0. Neisti vann Þrym 2:0 á Króknum og var sá sigur í minnsta lagi miðað við gang mála. Oddur Jónsson gerði bæði mörkin. Enn gengur ekkert hjá Tindastóli

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.