Feykir


Feykir - 25.03.1992, Side 6

Feykir - 25.03.1992, Side 6
6 FEYKIR 12/1992 hagyrðingaþáttur 116 Heilir og sælir lesendur góðir. Varla er hægt að segja að Stefán Stefánsson frá Móskógum hafi verið yfir sig hrifinn af sálusorgara þeim er flutti honum pistil dagsins, eftir þessari vísu hans að dæma. Kúri ég í kirkjutetri, kjaftæðið er lítils virði, en það er varla von á betri veiði úr slíkum tálknafirði. Þá kemur lýsing Stefáns á erindi kirkjugesta. Kynslóðirnar koma og fara, klerkarnir af trúnni státa, en kerlingarnar koma bara í kirkju til að hósta oggráta. Um konu eina sem starfaði við verslun og þótti afar fégjörn orti Stefán svo. Frúin seldi flestum ket, fjölguðu kunningjarnir. Fyrir aura allt hún lét eins og gyðingarnir. Eins og margir vita var Helgi Hjörvar ákaft elskaður af hlustendum ríkisútvarpsins, þegar hann var að lesa söguna af Bör Börsson. Um það leyti orti Stefán þessa vísu. Hlustendurnir hafa valið Hjörvar litla fyrir kjörson þó á kostum muni mjóu mundi ég heldur taka Börsson. Ung stúlka bað Stefán eitt sinn að skrifa í vísnabók og gerði hann það á eftirfarandi hátt. Ef að bragnar bjóða þér blíðu sína að veita, vita skaltu að vandi er velboðnu að neita. 22. janúar sl. var ég gestur félaga í Lionsklúbbi Skaga- fjarðar. Héldu þeir fund sinn á Löngumýri og var þar hin besta vist þessa kvöldstund. Þegar ég hugðist halda heimleiðis vestur yfir Stóra- Vatnsskarðið lét formaður klúbbsins Kristján Stefáns- son frá Gilhaga mig hafa eftirfarandi vísur. Upp á himinn ber nú bakka bráðum fennir yfir jörð. Nágrannarnir þér svo þakka þessa ferð í Skagafjörð. Þannig starfið fram hér fer, framtíð björt því lifir, bestu kveðju bræðra hér berðu Skarðið yfir. Það er Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd sem er höfundur af næstu vísu. Yfir landi okkar hér andi meina svífur. Nístir allt sem náða ber niðurskurðarhnífur. Ekki er mér grunlaust um að Rúnari ofbjóði eins og fleirum háttarlag heilbrigðis- ráðherra, þrátt fyrir hóflegt orðalag í næstu vísu. Kýs að laga kerfið dýra, kvalinn þó af ábyrgð stynur. Sighvatur með svipinn hýra, sjúklinganna besti vinur. Til voru þeir sem töldu vísu þessa full meinlausa og höfðu orð á því við Rúnar, sem kvaðst þá geta vel bætt úr því. Virðist öllu vilja spilla í velferðinni hér á landi. Sighvatur með svipinn illa sjúklinganna versti fjandi. Rúnar heyrði rætt um ákveðinn mann. Af því tilefni orti hann þessa vísu. Hann er karl í krapinu með kostum bæði og göllum, þó hann skeyti skapinu á Skagstrendingum öllum. Margir hafa nú að undan- förnu fylgst með þeim furðu fréttum frá Alþingi er snerta svokallað atkvæðagreiðslu- mál. Einn af þeim er Hreiðar Karlsson á Húsavík. Hann yrkir svo. Matti sinnir bjöllu beggja, beinni línu hefur tengst. En Arni skröltir utan veggja og ætti að gera það sem lengst. Einhverstaðar hef ég séð eftirfarandi vísur eignaðar Tryggva Kvaran og hafi hann kallað þær uppkast að biðilsbréfi. Ég á ósk í eigu minni ofurlítið grey. Að mega elska einu sinni áður en ég dey. Að það sé svo undur gaman allir segja mér. Eigum við að vera saman og vita hvernig fer. Geta lesendur sagt mér hver yrkir svo? Fletti ég upp í fínni bók, forvitinn til muna. Lindarpenna lítinn tók og letraði á spássíðuna. Það er Gissur Jónsson frá Valadal sem er höfundur að næstu vísu. Margoft hefur mannleg þrá meinin þurft að kanna. Getur orðið gliðsa á götu freistinganna. Einhverju sinni er Gissur bjó í Valadal og var að koma heim frá fjárgæslu, voru gestir sem þangað höfðu komið að ferðbúast á hlaðinu. Segir þá ein frúin eitthvað á þá leið að hér hljóti að vera leiðinlegt að búa því það sjáist ekkert nema upp í heiðan himininn. Um það leyti sem gestirnir héldu úr hlaði komst Gissur að eftirfarandi niðurstöðu. Virðist greiður vegur minn vart þar neyð mun henda. Upp í heiðan himininn held að leiðarenda. Veriði sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum 541 Blönduósi s: 95-27154 Drengjaflokkurinn kominn í undanúrslit íþróttamaöur Hafnfirska íþróttablaösins 1991: LILJA MARÍA SNORRADÓTTIR, SH HLAUT MIKLAGARÐS-BIKARINN Yngri flokkar Tindastóls í körfubolta kepptu á þremur fjölliðamótum um helgina og stóðu sig flestir þokkalega. Drengja- flokkur náði að tryggja sér sæti í úrslitakeppni og leikur gegn Keflavík i undanúrslitum. Drengjaflokkurinn lék á Sauðárkróki og varð í þriðja sæti. Drengirnir sigruðu Val 80:69, Hauka 64:48, KR 67:53 og töpuðu fyrir ÍR 54:84 og Keflavík 65:79. Sigahæstir voru Ingvar Ormarsson með 78 stig, Hinrik Gunnarsson gerði 58, Ómar Sigmarsson 56 og Halldór Halldórsson 55. Minniboltaflokkur 10 ára lék í Njarðvík og hafnaði í fjórða sæti. Tindastóll vann Breiðablik 45:43, en tapaði fyrir Grindavík 33:37, Njarðvík 36:43 og Keflavík 21:54. Stigahæstirurðu Gunnlaugur Erlendsson með 44 stig, Helgi Freyr Margeirsson 23 og Friðrik Hreinsson 21. Þessi flokkur hefur aldrei fengið fjölliðamót hér heima. Attundi flokkur lék í Keflavík og piltarnir virkuðu þreyttir eftir annasama daga í skólabúðum á Reykjum. Tindastóll tapaði öllum leikjunum, fyrir Haukum 22:42, Keflavík 26:38, Grinda- vík 34:49 og Val 27:44. Stigahæstir urðu Víðir Kristjánsson 53, Jón Kort Snorrason 14 og Arni Guðmundsson 13. fjaröar, Höröur Þorsteinsson, formaöur Badmintonfélags Hafnarfjaröar, Hilmar Kristensson, frá Miklagaröi og Gyöa Úlfarsdóttir ritstjóri HÍ. Eftir að nefndin haföi fariö yfir niöurstööur könnunarinnar tilkynnti hún aö Lilja María Snorradóttir, SH væri valin "íþróttamaöur HÍ1991”. Lilja María er vel aö tiltlinum komin, en hún stóö sig frábærlega í keppnum síöasta árs og setti m.a. heims- og Evrópumet í 100 m. skriðsundi og Evrópumet í 100 m. flugsundi. Hún keppir í flokki fatlaöra S-9 og hefur æft sund í 6 ár. Lilja María hefur tekiö þátt í fjölda stórmóta bæöi hérlendis og erlendis og má þar nefna Olympíuleika fatlaöra í Kóreu 1988, Noröurlandamót fatlaöra í Vestmannaeyjum 1989 og í Noregi 1991, heimsleika fatlaöra í Hollandi 1990 og á Spáni í ágúst s.l. Hún stefnir síðan aö því aö taka þátt í Olympíuleikum fatlaðra í Bercelona á Spáni nú í haust. Bikarinn sem veittur er 'lþróttamanni Hí" er glæsilegur farandgripur sem gefinn er af Miklagaröi og fylgir einnig minni bikar til eignar. Aö þessu sinni hlaut "íþróttamaður Hí" einnig ferö til London í verölaun, frá Flugferöum/Sólarflugi og eiga þessir aöilar þakkir skildar fyrir glæsilegt framlag þeirra til þessa íþróttaviðburðar sem hér eftir veröur árlegur meöan blaö þetta lifir. Viö óskum Lilju Maíu til hamingju! Hér á myndinni sjáum viö Lilju Maríu ásamt þeim Hilmari Kristenssyni t.v. og Sigurjóni Ásgeirssyni t.h. verslunarstjórum hjá Miklagaröi, sem afhentu henni Miklagarös-bikarinn. Þriöjudaginn 21. janúar s.l. bauö Hafnfirska íþróttablaöiö þeim 14 íþróttamönnum sem valdir höföu verið "íþróttamenn mánaöarins" hjá blaöinu á síðasta ári, til hófs í Fjörugaröinum. Valinn skildi íþróttamaöur blaösins 1991 úr þessum hópi íþróttamanna og var forráðamönnum félaga og deild einnig boöið . Valiö fór þannig fram aö gerö var könnun meðal þeirra sem mættir voru á staðinn og síðan var þaö 5 manna dómnefnd sem endanlega valdi íþróttamann blaösins 1991. í nefndinni voru þau: Daníel Pétursson, forstööumaður Suöurbæjarlaugar, Ingimar Haraldsson, iþróttaráöi Hafnar-

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.