Feykir - 20.05.1992, Page 3
19/1992 FEYKIR3
Góður liðsauki í körfuboltann
Tindastóli hefur bæst góður
liðsauki í körfuboitann. Páll
Kolbeinsson, sem af mörgum
er talinn annar tveggja bestu
bakvarða landsins, hefur
ákveðið að leika með Tinda-
stóli næsta vetur. Páll hefur
ætíð leikið með KR-ingum og
þjálfaði meistaraflokk félags-
ins síðustu tvo vetur.
Páll mun einnig annast
þjálfun tveggja yngri flokka
Tindastóls. Aðsögn Þórarins
Thorlacius formanns körfu-
knattleiksdeildar er nú verið
að leita að góðum erlendum
leikmanni, er koma mundi í
stað Tékkans Ivans Jonas
sem hefur leikið með Tinda-
stóli tvo síðustu vetur en mun
ekki leika með næsta keppnis-
tímabil. Þá er óráðið hvort
Einar Einarsson og Pétur
Guðmundsson muni leika
með Tindastóli næsta vetur,
en strax í vor var gengið frá
ráðningu Vals Ingimundar-
sonar sem þjálfara oggerður
við hann tveggja ára samningur.
„Við leggjum mikla áherslu á
yngriflokkastarfið og að því
leyti er Iíka mikill fengur í
manni eins og Páli. Nú, Einar
hefur líka sýnt að hann er
mjög frambærilegur þjálfari.
Við erum að fá upp mjög
efnilegt fólk og það er stutt í
það að við getum stillt upp
liði í toppbaráttu eingöngu
skipað heimamönnum”, sagði
Þórarinn. Þess má geta að
Milan Rósanik þjálfari hefur
látið af störfum hjá Tinda-
stóli eftir farsælt starf síðustu
tvo vetur.
Víðavangshlaup á Skagaströnd
Kristján Örn Kristjánsson hér „Maddalegur” að gera við IÍMX
hjól.
Hegri opnar
reiðhjólaþjónustu
Það er alltaf gaman að sjá
æskuna á flugi og ferð, og þegar
víðavangshlaup vorsins eiga sér
stað á Skagaströnd, þá er
saman kominn mikill fjöldi til að
taka þátt í ævintýrinu. Fólk
safnast saman á götunni milli
skólans og pósthússins, og þó
svo vilji til að napur norðaustan-
vindur blási, er svo mikið kapp
fyrir hendi í börnum og
fullorðnum að enginn hirðir um
liret og kulda. Ungviðið hoppar
fram og aftur, fullt af gáska og
tilhlökkun og bíður spennt eftir
því að hlaupið hefjist.
Oft er það Lárus Ægir sem
hefur stjórnina á hendi, vörpu-
legur og snar í snúningum.
Hann hefur hátt, baðar út
höndum og minnir einna helst á
Patton hershöfðingja. Krakkarnir
gangast hlýðnir undir agann,
taka sér stöðu við rásmarkið,
hver hópurinn eftir annan.
Augun glampa af sigurvilja og
vangar allra eru rjóðir og
hraustlegir. Einkum er gaman
að sjá yngstu börnin taka
sprettinn. Það er strax sett á fullt
og hver og einn reynir að hreyfa
ganglimina sem tíðast. Þó að
vindurinn sé i fangið og sótt á
brattann upp Bogabrautina, er
allt kapp lagt í það, alveg frá
rásmarki, að vera fyrstur.
Það er engin deyfð yfir
æskulýðnum á Skagaströnd.
Það er kraftur, seigla og þor fyrir
hendi i ríkum mæli. Og þegar
hlaupararnir liafa hlaupið að
mestu hringinn og koma í Ijós
við hornið hjá Herðubreið, þá
upphefst mikið hvatningaröskur
frá þeim fullorðnu. Sumir þeirra
hlaupa til móts við keppendur
og hrópa nöfn þeirra hástöfunt
og hvetja þá til að greikka
sporið, sigur sé í nánd. Allir
sætta sig við fengna niðurstöðu.
Gleðin yfir að vera með í
ævintýrinu vinnur bug á von-
brigðum þeim sem fylgja því að
sigra ekki. H ver og einn einsetur
sér að gera betur næst. Það er
klappað fyrir hverjum hóp og
krakkarnir finna það að þeir
hafa í raun og veru allir staðið
sig vel. Að sjá svo mörg andlit
full af gleði og saklausum
fögnuði yfir því að vera til er
sannarlega mikils virði. Þegarég
var búinn að meðtaka allt þetta
skemmtilega sjónarspil heil-
brigðrar lífsánægju, gekk ég
heim á leið og fann sannleikann í
þeim orðum ,,að gleðin er heilust
og dýpst við það smáa”.
Það er gott starf að móta
æskufólkið i farvegi þess
metnaðar að hver læri að standa
sig og þroski vilja sinn með
heilbrigðum keppnisanda. Lengi
býr að fvrstu gerð. Það þarf ef til
vill að hafa einhverja Pattona á
hverjum stað til að halda
skipulagi og aga í málum en til
allrar hamingju er landið okkar
sneisafullt af mönnum sem eru
fæddir til að stjórna. Það er
víkingablóðið gamla sem ólgar
enn í kynstofninum og gerir
hann að þessu sérstaka afbrigði í
mannlífsgarði þessarar veraldar
sem hann vissulega er.
Rúnar Kristjánsson
Nýlega opnaði Verslunin
Hegri í samvinnu við reiðhjóla-
verslunina Öminn í Reykjavík,
reiðhjólaverslun og reiðhjóla-
þjónustu að Aðalgötu 20.
Viðgerðarþjónusta á reiðhjólum
hefur verið í lágmarki á
Sauðárkróki undanfarin ár,
aðeins kaupfélagið séð fyrir
viðgerð á hjólum sem þeir
hafa umboð fyrir, en nú ætlar
Hegri að bjóða viðgerða-
þjónustu á öllum tegundum
hjóla.
Pétur Valdimarsson í
Hegra segir þessa þjónustu
hafa vantað í bæinn. Reið-
hjólaeign og notkun hafi
áreiðanlega verið minni en
ella af þessum sökum. Með
hækkandi sól og auknu
bensínverði megi búast við
að margir hugsi til þess að fá
sér hjól, njóta hreyfingar.
góða veðursins og spara
bílinn í leiðinni. Pétur segir
að kappkostað verði að veita
ekki lakari þjónustu en hún
gerðist á dögum Madda og
Berta, en síðan Berti hætti að
gera við hjól sé varla hægt að
tala um að almennri þjónustu
við reiðhjólaeigendur í bænum
hafi verið sinnt að staðaldri.
Lárus „Patton” að stjórna æskulýðsfylkingunni.
43SK& FRA FJOLBRAUTASKOLA NORÐUR-
Ajfj? LANDS VESTRA Á SAUÐÁRKRÓKI
UMSÓKNIR UM SKÓLAVIST OG HEIMAVIST
Vegna fjölda umsókna um skólavist og heimavist á haustönn 1992 eru
þeir, sem hafa hug á að stunda nám við skólann og hafa ekki þegar sótt
um, beðnir að senda inn umsóknir sem allra fyrst og þó ekki síðar en 5. júní.
ÍBÚAR SAUÐÁRKRÓKIATHUGIÐ!
Þeir sem áhuga hafa á að leigja skólanum herbergi fyrir nemendur
skólans eru beðnir að hafa samband við skrifstofu skólans sem allra
fyrst.
SKÓLASLIT
Skólanum verður slitið laugardaginn 23. maí n.k. kl. 14 í íþróttahúsinu.
Allir velunnarar velkomnir.
Jón F. Hjartartson
skólameistari