Feykir


Feykir - 20.05.1992, Síða 6

Feykir - 20.05.1992, Síða 6
6 FEYKIR 19/1992 t Björn Guðnason byggingameistari Fæddur 27. aprN 1929 Dáinn 11. maí 1992 Vinur minn, Bubbi Guðna er látinn, langt um aldur fram. Sérstæður mannkostamaður er genginn. Kynni okkar hófust fyrir 45 árum. Foreldrar mínir og ég fluttum vorið 1947 í „Vonina”, Freyjugötu 34. Mikið og myndarlegt hús á þeim tíma. Ungur og gerðarlegur piltur utan úr Hofsósi falaðist eftir herbergi og flutti þá síðsumars í herbergið á norðurloftinu, og hugðist vera þar a.m.k. fram á næsta vor. Það teygðist úr dvölinni og árin urðu sex í "Voninni”. Mér er minnistæður dagurinn þegar Bubbi flutti til okkar. Það héldu mér engin bönd, og þrátt fyrir áminningar móður minnar fór ég strax í heimsókn á norðurloftið og allt frá fyrstu stundu var ég þar velkominn. Fyrr en varði eignaðist ég vin og leiðbeinanda í Bubba, sem ég leit gríðarlega mikið upp til. Það var vandratað meðalhófið að ganga ekki um of á vináttuna við hann, ég ekki nema fjögurra ára þegar kynni okkar hófust, en Bubbi fljótt vinsæll og vinmargur. Vinátta okkar óx frá ári til árs. Samfélagið á norðurloftinu sífelldur viskubrunnur og at- hvarf. Stundum spilað á hand- snúinn grammófón, lög sem voru ”allt önnur” og "betri” en á Gömlu gufunni. Bubbi tók þátt í og skipulagði með mér lífsbaráttuna og framtíðina. Ég hafði séð tindáta hjá strák, sem voru glæsilegri og litskrúðugri en dæmi voru um í bænum á þeirri tíð. Við vinirnir vorum sammála um að slíka kjörgripi væri nánast vonlaust að eignast. En hvað skeði? Á næstu jólum fékk ég þessa forláta tindáta frá Bubba, vini mínum. Gleði min var mikil, og lengi voru þessir kjörgripir til á heimilinu,gengu í erfðir til bræðra minna. 1951 var Skugga-Sveinn sýndur í ”gömlu" Bifröst. Það kostaði 5 krónur fyrir börn á sýninguna, og þótti dýrt. Skugga-Sveinn var mikil leiksýning á þessum tíma. Ákveðin varsérstök aukasýning fyrir börn, aðsóknin var svo mikil. Það var mér ofviða, þó aðgangseyrir væri kominn niður í tvær krónur. Þetta voru enn atvinnuleysisár og lítið um aura í bænum undir Nöfum. Við ræddum það vinirnir, að það væri afleitt fyrir mig að komast ekki aftur á þessa snilldar- sýningu. Hver biður mig þá að koma sem snöggvast, upp á norðurloft, nema Bubbi vinur minn, gefur mér spánnýjan túkall, og segir mér að drífa mig á Skugga-Svein,því égsjái mikið og lengi eftir því, ef ég missi af sýningunni. Það komu margar guðsgjafirnar ofan af norður- loftinu. Þessar leifturmyndir frá löngu liðnum tíma eru talandi dæmi um þann kærleika og manngæsku sem Bubbi viðhafði við allt sitt samferðafólk. Hann var alla tíð næmur á líðan samferðamanna sinna, sígefandi af sjálfum sér, ekkert of gott fyrir vinina, stöðugt veitandi. Bræður mínir nutu þess sama og fjölskylda min öll. Vináttan var til Iifstíðar, það bar aldrei skugga á, sem sjaldgæft er í mannlegum samskiptum. Bubbi kynntist konuefni sínu í „Voninni”. Magga leigði herbergi eins og hann. Eitt sinn spurði hann mig, hvernig mér litist á Möggu sem konuefni fyrirsig? Égvarðstraxspenntur, og sagði að Magga væri besta stelpan sem hann gæti fengið. Þó ungur væri, fann ég straumana milli þessara góðu vina minna. Þó Magga væri, að sumu leyti, að taka frá mér minn traustasta vin, náði afbrýðissemin ekki teljandi tökum á mér. Því vinátta mín við þau minnkaði síst við samdrátt þeirra. Magga og Bubbi fluttu úr ,,Von” á vordögum 1953, og stofnsettu sitt eigið heimili. Fyrst í því fornfræga húsi, sem kennt var við Kristján Gíslason „borgara”. Síðan lá leiðin til Valda Bergs á Ægisstígnum, þá á Freyjugötu lOb og síðan að Hólavegi 22, þar sem Bubbi hafði reist fjölskyldu sinni veglegt hús. Það varð heimili þeirra upp frá því, allt fram á þennan dag. Samlíf Bubba og Möggu varð farsælt og hamingjuríkt, rnikið jafnræði með þeim hjónum og barnalán mikið. Fyrirmyndar- hjónaband, eins og þau gerast best. Heimili þeirra alla tið mannmargt, opið og notalegt kærleiksheimili. Börn Bubba og Möggu eru: Óskar Guðvin f. 7/7 1957, tvíburarnir Lovísa Birna og Guðni Ragnar f. 29/6 1959. Yngstur er Björn Jóhann f. 20/5 1967. Barnabörnin eru orðin sjö. Óskar og Lovísa búa með fjölskyldum sínum hér á Sauðárkróki, en bræðumir Guðni og Björn dvelja í Reykjavík. Bubbi hafði mannkosti sína að veganesti, veraldlegan auð engan, þegar hann kom á Krókinn til náms i húsasmíði hjá Sigurði Sigfússyni. Það voru umbyltingatímar, hafnar miklar framkvæmdir í sveitum, sem náðu fyrr en varði hingað til Sauðárkróks, bæjarins undir Nöfum. Mikil athafnasemi og áræði fylgdi Sigga Siff. og það safnaðist að honum mikið mannval. Bubbi var í þeirra liópi. Krókurinn var ekki nægt olnbogarými fyrir Sigga Siff, en lærisveinar hans urðu eftir og stofnuðu m.a. tvö fyrirtæki: Litlu trésmiðjuna, forvera Tré- smiðjunnar Borgar og Byggingar- félagið Hlyn. Bæði urðu þessi fyrirtæki afar öflugt á skagfirskan mælikvarða, raunará landsvísu. Bubbi stofnaði Byggingar- félagið Hlyn árið 1954, ásamt Braga Jósafatssyni, Reyni Ragnars- syni, Isak Árnasyni og Kára Hermannssyni. Fyrirtækið óx og dafnaði og tókst á við fjöldann allan af stórverkum. Bubbi varð yfir- smiður við byggingu Sjúkrahúss Skagfirðinga á Sauðárhæðum, undir stjórn Sveins Ásmunds- sonar frá Ásbúðum. Við það verk hlaut Bubbi þá eldskírn, sem gerði hann að forystumanni allt tii æviloka. Hann hafði yfirumsjón með byggingu heilsu- gæslustöðvarinnar við „Sjúkra- húsið” og síðan öldrunarheimilið, og við fráfall hans standa þessar byggingar allar fullbyggðar. Þau verða ekki talin frekar öll þau mannvirki í héraði og bæ, sem Bubbi hafði umsjón með, eða lagði hönd að. Öldin hefur senn runnið sitt skeið. Enginn einn maður hefur komið jafn mikið að byggingum hér á Sauðárkróki og Björn Guðna- son. Gróskumikið vaxtarskeið bæjarins fylgdi starfsævi hans. Síðasta stórvirkið sem hann tókst á hendur, með félögum sínum, var bygging Bóknáms- húss Fjölbrautarskólans en þar stendur nú fullbúinn grunnur, mikið verk, sem bíður framhalds- ins. Að sjálfsögðu byggði hann hús mitt á Smáragrundinni, hver annar? Ymsar mannabreytingar urðu hjá Hlyn í gegnum tíðina, en alla tíð var Bubbi hjarta fyrirtækisins. Því miður hallaði mjög undan fæti hjá Hlyn síðustu misseri, sem auðveldaði vini mínum ekki baráttuna við hinn erfiða sjúkdóm. Hin hörðu gildi, vaxandi samkeppni og peningahyggja, og afleiðingar þeirrar samfélagsþróunar, urðu vini mínum mikill baggi, enda honum anddrægt að fjarlægjast hin mildari mannlegu gildi. Mikið mannval hefur lengstum verið hjá Hlyn og naut Bubbi mikils trausts sem einn af stjórnendum fyrirtækisins og hnýtti vináttubönd við samstarl's- menn sína, eins og alla aðra á lifsleiðinni. Bubbi var fyrst og fremst maður verksins og framkvæmda, sívinnandi um- fram það sem skynsamlegt var. Fjármálamaður var hann ekki að eðlisfari, en rekstrarmál annaðist hann engu síður en önnur verk. Vinsældir Bubba vinar míns voru með ólíkindum miklar, eins hlédrægur maður og hann var. Hann lét eitt sinn tilleiðast að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar- stjórnarkosningar. Hann stóð uppi sem lang vinsælasti maður flokksins, sem kom honum alveg í opna skjöidu, en velvildarmönnum hans var það ekkert undrunarefni. Að hugsuðu máli var Bubbi ekki tilbúinn að taka að sér pólitíska forustu, og hafnaði vegsemdunum og sigldi lygnan sjó með flokki sínum. í raun var Bubbi vinur minn þeirrar gerðar, að pólitísk störf hlutu að vera fjarlæg honum. Mannkostir hans voru hafnir yfir alla flokkadrætti. Aðfaranótt 11. maí ók ég norður yfir heiðar, og heim, mót silfurtærri vornóttinni, með sólareld við hafsbrún. Það var svalt en fagurt. Að kvöldi þessa dags höfðu tveir vinir mínir kvatt þetta líf, Bubbi og Ýtu-Keli (Þorkell Halldórsson), hinum megin götunnar. Leiðir okkar lágu oft saman á Sæmundar- götunni. Bubbi að huga að fyrirtæki sínu, ég við verslun mína. Samfélagið í götunni er fátækara, það er ekki samt. Björn Guðnason var mikill mannkostamaður, með ljúfustu mönnum sem þetta hérað hefur alið á þessari öld, umburðar- lyndur drengskaparmaður. Gjörvi- legir afkomendur hans munu minna á forföður sinn. Ég kveð nú minn gamla góða vin. Fjölskyldan mín þakkar órofa tryggð í áratugi. Það er söknuður i hjarta, það eiga margir um sárt að binda. Eiginkona, börn og barnabörn, tengdafólk, systur, frændfólk og vinir. Tengdamóðir sem sér að baki miklum vini. Slíkir menn sem Björn Guðnason verða ætíð fátíðir, en verðmætir hverju því samfélagi sem þeir fæðast í. Það er bjart yfir minningunni um Björn Guðnason, mann- gæskumann sem genginn er. Hans verður minnst langt inn í framtiðina. Hörður Ingimarsson. Þegar ég fyrir 18 árum ákvað að flytjast nær heimahögunum og koma á Krókinn, hafði ég samband við Björn Guðnason byggingameistara hjá Byggingar- félaginu Hlyn. Það var auðsótt mál að fá vinnu og námssamninginn fluttan frá Húsavík,enda nógað gera á Króknum á þessum tíma og gósentimabil fyrir bygginga- mann af guðs náð eins og Björn Guðna. Þetta var þjóðhátíðarvorið 1974. Það var verið að byrja á sökklum undir heimavist Fjöl- brautaskólans. Nokkur hús höfðu þegar þarna var komið verið byggð uppi í Hliðahverfinu. Á þessum tíma var framundan mikið uppbyggingartímabil á Króknum. Bærinn þandist út á nokkrum árum, tugir íbúðar- húsa byggð á hverju ári og hver stórbyggingin rak aðra. Smiðir þurftu síður en svo að kvarta undan verkefnaleysi. Helst þurftu þeir að vera á mörgum stöðum í einu að vinna. Það hentaði Bubba Guðna ágætlega. Það var hans stíll mátti segja að þeytast á milli vinnustaða ogsetja smá „trukk” á verkin. Hann kom og tók góða skorpu og varsvo þotinn burtuá hvítu fólkswagenbjöllunni, hafði kannski rétt tíma til að segja við strákana: „Það er bras í mixinu, ha”. Þetta var klassískt orða- tiltæki hjá Bubba. Og hviti voffinn var á þeytingi um bæinn allan liðlangan daginn, yfirleitt vel lestaður. Toppgrindin var óspart nýtt og menn höfðu á orði að það væri hreint ótrúlegt hvað Bubbi kæmi miklu á toppinn. Þetta væri bara eins og vörubíll. Það var einn síðasta veturinn minn á Hlyn sem ég kynntist Bubba Guðna ákaflega vel. Þennan vetur var Hlynur að byggja iðnaðarhúsnæði sitt í Borgartúni. Það má segja að mestmegnis værum við Bubbi þarna tveir einir allan veturinn. Reyndar var Björn þarna aðeins stund og stund, þar sem liann þurfti að líta eftir öðrum verkum. En það gekk undan drengnum þegar hann var á staðnum. Þessi vetur er einn sá skemmtilegasti sem ég man eftir, þrátt fyrir vetrarmyrkrið og oft erfið vinnuskilyrði. Ég hafði talsvert frjálsar hendur eins og margir þeir sem unnu með Birni, vegna þess að hann lagði mikið upp úr því að menn ættu að sjá fram úr hlutunum sjálfir, sem sagt að læra að bjarga sér. Enda var lífsskoðun Björns byggð á frelsi einstaklingsins og athafnaþrá. Vinnufélaginn var ákaflega skemmtilegur og þær voru margar vísurnar og sögurnar sem Bubbi sagði mér þennan vetur. Hann hafði t.d. ákaflega gaman að segja frá þeirri lífsbaráttu sem Skagfirðingar háðu áratugina á undan og gjaman fylgdu þá með gaman- sögur og vísur, eftir Halla Hjálmars, ísleif Gísla eða aðra höfuðsnillinga. Mér fannst Björn hafa þroskandi áhrif á mig þennan vetur og með okkur tókst vinátta sem hélst, þrátt fyrir að fundum okkar bæri lítið saman eftirað églagði hamarinn frá mér fyrir nokkrum árum. Björn var eins og áður segir byggingarmaður af guðs náð. Það var ekki nóg með að hann væri húsasmiður að atvinnu. hann var það í tómstundum líka. Björn var afkastamikill og vann gjarnan langan vinnudag yfir sumarmánuðina. Hann var filhraustur og heilsan var góð. Það másegjaað honum hafiekki orðið misdægurt alveg þar til hann fór að kenna lasleika síns fyrir um ári. Lokavertíðin var Birni erfið og lést hann á Sjúkrahúsi Skagfirðinga á „loka- daginn” 11. maí sl. Björns er nú sárt saknað af stórri fjölskyldu, sem hann hlúði einkar vel að og fjölda vina. Ég vil votta nánustu ættingjum samúð mína. Það ergjarnan sagt til huggunar að minningin sé dýrmætust allraeigna. Vissulega er það rétt, því sá sem á ekki skemmtilegar og góðar minningar í hugskotinu, hlýtur að eiga á brattann að sækja i lifinu. Björn Guðnason skipar ábyggilega veglegan sess í hugum margra samferðamanna. Blessuð sé minning haas. Þórhallur Ásmundsson.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.