Feykir - 20.05.1992, Page 8
Öháö fréttablaö á Noröurlandi vestra
20. maí 1992,19. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLYSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla
virka daga frá kl. 9.15 -16.00
Sími 35353 L
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
Vaktavinna í Fiskiðjunni
Bætt verður við 30 - 40 manns
Starfsfólk Fiskiðjunnar sam-
þvkkti í síðustu viku að tekið
yrði upp vaktafyrirkomulag í
frystihúsinu til reynslu í júní
og júlí í sumar. Af 74 sem
greiddu atkvæði voru 46
fylgjandi tilrau ninni 27 á
móti. Vaktavinnan gerir það
að verkum að bæta þarf við
rúmlega 30 manns fyrir utan
sumarafleysingafólk, en 70-
80 skólanemar hafa óskað
eftir vinnu.
Unnið verður á tveim
vöktum. frá sex á morgnana
til tvö á daginn og síðan frá
tvö til átta á kvöldin.
Fastráðnir starfsmenn Fisk-
iðjunnar munu flestir vinna á
fyrri vaktinni, en hinirásamt
skólafólkinu á seinni vakt-
inni. Greitt verður 53% álag
Guðbjörg sú fyrsta
yfir 16 metrana
Guðbjörg Gylfadóttir frá
Skagaströnd bætti enn íslands-
nietið í kúluvarpi á móti í
Bandaríkjunum í fyrrakvöld,
og varð fyrst íslenskra kvenna
til að kasta vfir 16 metra.
Guðbjörg kastaði 16,33
metra og hefur því næstum
bætt Islandsmetið um einn
meter á tæpum mánuði.
Fyrst bætti hún það um 35 fyrir tveimur vikum. Guð-
sentimetra, í 15,75 og síðan björg virðist líkleg til að bæta
aftur um tæpa 30 sentimetra metið enn frekar í sumar.
á fyrstu tvo tímana á
morgnana og segir Einar
Svansson framkvæmdastjóri
að launin eigi ekki að
skerðast við þetta breytta
fyrirkomulag, og þeir starfs-
menn sem hingað til hafi
aðeins unnið dagvinnuna
hækki í launum.
Samningurinn sem gerður
hefur verið er all frábrugðinn
rammasamningi. Hann tryggir
greiðslu umsamins álags í allt
að tvo daga í senn, þó að
hráefnjsskortur eða hliðstæð
tilvik valdi verkefnisskorti.
Vari hráefnisskortur lengur
greiðast dagvinnulaun til
allra starfsmanna.
f
i if &*■ J
Æ
Eftir kalt vor hefur hitastigið hækkað verulega, menn
fullyrða að nú sé vorið komið og sumarið innan seilingar. Það
hefur heldur betur lifnað vfir hlutunum síðustu daga og
útiverkin komin á fullt. Pálmi í Pálmalundi er einn þeirra sem
framkvæmdahugurinn hefur gripið, og hér eru smiðir að laga
þakið svo það haldi örugglega gróðrarskúrunum.
Strax farið að bítast um
aðsetur kjördæmissamtakanna
Ljóst er að Kjördæmis-
samband Norðurlands vestra
verður stofnað í haust í kjölfar
Austur-Húnavatnssýslur:
Leitað leiða til að styrkja
rekstur samvinnufélaganna
Aðalfundir samvinnufélaganna
í Austur-Húnavatnssýslu voru
haldnir í síðustu viku. Vegna
samdráttar í héraðinu eru
nokkrar blikur á lofti varðandi
rekstur félaganna en sammála
voru menn um það á
fundunum að með samstilltu
átaki þyrfti að styrkja félögin
til að þau yrðu betur i stakk
búin til að takast á við vanda
komandi ára. A fundunum var
ákveðið að stjórnir félaganna
skoðuðu leiðir í þessu sam-
bandi og leggi niðurstöður
þeirra athugana fyrir fram-
haldsaðalfund.
Kaupfélag Húnvetninga
hefur átt við nokkurn
rekstrarvanda að etja undan-
farin ár. Eiginfjárstaða félagsins
er orðin neikvæð og vaxta-
byrði því þung. Á síðasta ári
varð hagnaður félagsins 7.5
milljónir fyrir fjármagnsliði,
en vegna hárra vaxta varð
17,8 milljóna halli á félaginu.
Eiginfjárstaða Sölufélags-
ins er hinsvegar sterk og út á
við er greiðslustaða þessara
tveggja félaga, sem rekin eru
í mjög nánu samstarfi, í góðu
lagi. Hinsvegar skuldar Kaup-
félagið Sölufélaginu nokkurt
fé og þarf að lagfæra þá stöðu
milli félaganna.
Á aðalfundi Kaupfélagsins
var ákveðið að stofna b-
stofnsjóð, en það mundi
styrkja félagið mjög að fá
þannig nýtt fé inn í
reksturinn. Hjá Sölufélaginu
var hinsvegar ákveðið að
bíða með allar lagabreytingar
til framhaldsaðalfundar, sem
haldinn verður í júní, ef
menn kæmust að þeirri
niðurstöðu við athugun að
skynsamlegt væri að gera
einhverjar skipulagsbreytingar,
t.d. með því að sameina
reksturinn.
Lilja Ámadóttir á Blönduósi
gaf ekki kost á sér til
endurkjörs í stjórn KH og
var Hilmar Kristjánsson
kjörinn í hennar stað. Þá
hafði Friðrik Björnsson á
Gili setið í níu ár í stjórn
SAH og var því ekki
kjörgengur. í hans stað var
Jóhanna Magnúsdóttir Ár-
túnum kjörin í stjórnina.
Framkvæmdastjóri beggja
félaganna er Guðsteinn Einars-
son. MÓ.
þess að Fjórðungssamband
Norðlendinga verði lagt niður.
Sveitarstjórnir í kjördæminu
hafa lýst vilja sinum til
stofnunar slíkra samtaka og
svo virðist sem nógir verði til
þess óska eftir skrifstofu
samtakanna til sín. Hrepps-
nefnd Hvammstangahrepps
lét á síðasta fundi bóka að hún
teldi Hvammstanga ákjósan-
legan stað fyrir aðsetur
samtakanna, og á aukafundi
Fjórðungssambandsins á dögun-
um létu Blönduósingar í það
skína að þeir vildu gjarnan að
hækistöðvar nýju samtakanna
yrðu hjá þeim.
Á aukaþinginu var ákveðið
að haldið yrði áfram undir-
búningi tveggja svæðissam-
taka sem kæmi í stað
Fjórðungssambandsins, en
síðasta þing þess verður
haldið í Vestur-Húnavatns-
sýslu í haust, á Reykjum eða
Hvammstanga.
Birni Sigurbjörnssyni á
Sauðárkróki var falið að
kalla saman undirbúnings-
nefndina fyrir Norðurland
vestra sem kemur til fundar í
þessari eða næstu viku. Auk
Björns eru í nefndinni
Valgarður Hilmarsson á
Fremstagili, Bjami Þór Einars-
son Hvammstanga, Sigfríður
Angantýsdóttir Hólum og
Björn Valdimarsson Siglu-
firði.
Björn sagði að drög að
lögum samtakanna gerðu ráð
fyrir að formaðuryrði kosinn
til tveggja ára í senn og
embættið færðist milli staða.
Þeirri hugmynd hefði einnig
verið fleygt að framkvæmda-
stjórinn fylgdi formanninum.
Menn teldu þetta fyrirkomu-
lag líklegt til að skapa
ferskleika í starfi samtakanna,
en aðrir teldu hættu á
losarabrag með þessum hætti.
Að sjálfsögðu væri einnig
talað um að ákveða fast
aðsetur samtakanna og aug-
lýsa eftir framkvæmdastjóra.
„Jú sjálfsagt verða ein-
hverjir sem keppa að því að
fá þetta til sín. Það hefur því
miður stundum verið þannig
að menn séu tilbúnir að stíga
skóinn hver af öðrum. Ég hef
samt trú á því að menn hafi
þann þroska að skerast ekki
úr leik þó þeir hreppi ekki
hnossið. Aðalatriðið með
stofnun samtakanna er að
efla samstarf staðanna”,
sagði Björn.
CÆOAFRAMKOLLUN \
GÆÐAFRAMKOLLUN
BÓKABtE)
BEYNJARS